- Fossavatnsgangan 12. apríl 2025 50 km skíðaganga
- Bláalónsþrautin, dagsetning 2025 ekki staðfest en síðast 8. júní 2024 60 km hjólreiðar
- Þorvaldsdalsskokkið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 6. júlí 2024 25 km fjallahlaup
- Urriðavatnssundið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 27. júlí 2024 2500 m vatnasund
-
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í NÓV KYNNINGARFUNDUR 24. SEPT Skoraðu á sjálfan þig! Þjálfun og undirbúningur til að ljúka heilum Landvætti sem kallar á að þátttakendur ljúki fjórum þrautum í fjórum landshlutum á innan við ári. Þrautirnar felast í skíðagöngukeppni, hjólreiðakeppni, fjallahlaupi og vatnasundskeppni. Þetta er frábær áskorun fyrir þá sem eru nú þegar í sæmilega góðu formi, vilja komast í sitt besta lífsform og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Jafnframt heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið hálfum Landvætti. Dagsetningar þrautanna fjögurra
-
NÁMSKEIÐ HEFST 29. október Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig; hlaupa lengra, fara hærra á fjöllum, og vera aðeins lengur ofan í sjónum. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.
Dagskrá námskeiðsins- Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
- Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
- Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Tvær lengri helgaræfingar, laugardaginn 2. nóvember og sunnudaginn 24. nóvember.
Hægt er að greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur njóta þátttakendur sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal. -
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 3. OKTNámskeið þar sem útivist er notuð til endurhæfingar ásamt samveru og jafningjaspjalliÆtlað öllum sem eru að koma sér aftur af stað eftir erfið veikindi svo sem krabbameinsmeðferð. Leiðarljós námskeiðsins er fólk finni sinn eigin kraft og frið í náttúrunni og öðlist styrk í gegnum samveru með öðrum sem eru á sama stað. Frábært fyrsta skrefið fyrir meistara sem vilja koma sér í gott útivistarform, sigra fjöll og firnindi og sig sjálf í leiðinni. Léttar göngur, kaffispjall og raunhæf markmið, eitt skref í einu! Hópurinn hittist alls fimm sinnum og lokatakmarkið er hæg ganga upp á Úlfarsfell sem rís tæplega 300 metra yfir sjávarmál. Dagskrá námskeiðsins
- 3. okt, kl. 14. Laugardalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall í Kaffi Flóru.
- 10. okt, kl. 14. Öskjuhlíð. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bragganum.
- 17. okt, kl. 14. Elliðaárdalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bístró.
- 24. okt, kl. 14. Úlfarsfell. Sigurgangan :)
- Í lok námskeiðs verður bónusferð í sjósund í Nauthólsvík.
-
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 29. SEPT Fjögurra mánaða æfingahópur fyrir stráka sem vilja koma sér af stað í hreyfingu og útivist Hreyfinga- og ævintýrabræðralag fyrir stráka á öllum aldri sem vilja koma sér í og viðhalda góðu formi. Markmið hópsins er ná og tryggja líkamlega getu; þol, þrek, jafnvægi og liðleika fyrir útivist og ævintýri. Æfingaáætlunin byggir á fjölbreyttri hreyfingu og útivist í lokuðum hópi fyrstu vikurnar en svo taka við æfingar með æfingahópi Útihreyfingarinnar sem æfir tvisvar til þrisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum kl. 9:30. Þátttakendur taka fyrstu skrefin inn í nýjan lífsstíl þar sem hreyfing og útivera í samfélagi við aðra er megininntakið. Markmiðið er að koma sér í það form að geta æft með stærri hópum, gengið á fjöll, hlaupið, hjólað, synt og farið í sjóinn. Sameiginlegar göngur og styrktaræfingar ásamt hreyfingaáætlun þar sem áhersla er á stuttar daglegar göngur á virkum dögum. Alla miðvikudaga kl. 12:15 er hist í sjósundi í Nauthólsvík. Persónulegt upphafsviðtal og eftirfylgni ásamt fyrirlestrum um hreyfingu, mataræði og markmiðasetningu. Sameiginlegar göngur hópsins
- Sun. 29. sept., kl. 08. Djúpavatn og Sogin
- Fim. 3. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Mosfell
- Sun. 6. okt., kl. 08. Móskarðshnúkar
- Fim. 10. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Búrfell
- Fim. 17. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Helgafell
- Sun. 20. okt., kl. 08. Stóri Meitill
- Fim. 24. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Esja upp að steini
- Sun. 27. okt., kl. 08. Blákollur
-
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 17. SEPT Kynningarfundur 10. sept, kl. 17:30 í Útilífi, Skeifunni 11
Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, apríl og september. Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.
Dagskrá námskeiðsins- Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar. Æfingarnar fara fram í Elliðaárdal, Öskjuhlíð, Laugardal og víðar.
- Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar. Á Hólmsheiðinni, Úlfarsfelli, í Heiðmörk, Bláfjöllum og víðar.
- Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Lengri hreyfing aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum. Gamlir og nýir slóðar í nágrenni Reykjavíkur. Helgaræfingar næsta námskeiðs eru haldnar laugardaginn 21. september, sunnudaginn 29. september og laugardaginn 19. október.
Á Úti 101 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeið Úti 102 eða jafnvel taka þátt í Hálfvættanámskeiði Útihreyfingarinnar. Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftarferð þar sem áfanganum er fagnað. Hægt er að greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur njóta þátttakendur sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal ásamt Helgu Maríu Heiðarsdóttur. -
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 15. SEPT Fyrir öll sem elska fjöll og vilja nýta náttúruna til líkamsræktar Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni, kynnast nýjum stöðum, bæta við færni sína á fjöllum, eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Áherslan í haust er á aðgengilegar stuttar til meðallangar fjallgöngur í nágrenni höfuðborgarinnar. Gengið er á sunnudögum, tvær helgar í mánuði og flestar göngurnar taka 3-5 klst. Eftir áramót gefst tækifæri til að bæta við færni sína og form með lengri og flóknari göngum eins og á Eyjafjallajökul í lok apríl. Dagskrá til áramóta
- 15. sept. Móskarðshnúkar. Hringleið á alla hnúkana
- 29. sept. Botnssúlur
- 13. okt. Hengill
- 27. okt. Blákollur
- 10. nóv. Þyrill í Hvalfirði
- 24. nóv. Stóri Meitill
- 15. des. Stutt aðventuganga í nágrenni Rvk
- 19. jan. Helgafell í Hfj.
- 2. feb. Mosfellsbæjarfjöll hringleið
- 23. feb. Esjuhringur
- 2. mar. Geirmundartindur í Akrafjalli
- 16. mar. Stóra Kóngsfell og Drottning
- 30. mar. Hellutindar/Stapatindar
- 12. apr. Eyjafjallajökull
- 4. maí. Vífilsfell