Hálfvættur 2024
161.100 kr.
Besta áskorun lífs þíns!
Athugið að æfingar fyrir Landvættaþrautirnar 2024 hefjast í nóvember 2023
Þjálfun og undirbúningur til að ljúka hálfum vegalengdum Landvættaáskorunarinnar.
Stórskemmtileg áskorun til að komast í gott form og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Þetta er til dæmis heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið Úti 101 námskeiðinu.
Vörðurnar á leiðinni eru fjórar.
Dagsetningar fyrir árið 2024 hafa ekki verið birtar en eru þessar fyrir árið 2023.
- Fossavatnsgangan 15. apríl 2023
25 km skíðaganga - Bláalónsþrautin 10. júní 2023
30 km hjólreiðar - Þorvaldsdalsskokkið 1. júlí 2023
16 km fjallahlaup - Urriðavatnssundið 22. júlí 2023
1250 m vatnasund
Þátttakendur þurfa ekki að hafa grunn í skíðagöngu til að geta tekið þátt en allir þurfa að kunna að hjóla og synda 🙂
Æfingaáætlunin byggir á tveimur til þremur sameiginlegum æfingum á viku. Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og laugardögum/sunnudögum til skiptis kl. 9:30.
Þjálfunin styðst við æfingagrunn Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari er nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun. Þær viðbótaræfingar sem bætast ofan á, snúa fyrst og fremst að því að ná upp færni á gönguskíðunum en einnig er um að ræða sundæfingar og kuldaþjálfun. Sérmenntaðir þjálfarar og sérfræðingar í skíðagöngu og sundi munu meðal annars koma inn á þessar æfingar.
Að öðru leyti koma margir þjálfarar með mikla þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig að námskeiðinu. Landvættaþjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi.
Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu sína og markmið og fá markvissa endurgjöf, eftirfylgni og utanumhald allt tímabilið. Sérstakt markþjálfunarnámskeið er haldið í janúar og í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá eru fræðslu- og upplýsingafundir haldnir fyrir hverja keppnisgrein og þátttakendur fá stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar.
Námskeiðið kostar 161.100 kr. Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara í ferðir hreyfingarinnar, Úti ævintýri.
Viltu vita meira? Hér getur þú lesið allt um hvað það þýðir að verða Landvættur.