Úti 102
22.900 kr.
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í LOK OKTÓBER
Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig; hlaupa lengra, fara hærra á fjöllum, og vera aðeins lengur ofan í sjónum. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.
Dagskrá námskeiðsins
- Alla þriðjudaga kl. 17:30
Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni. - Alla fimmtudaga kl. 17:30
Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni. - Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30
Tvær lengri helgaræfingar.
Á Úti 102 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem vilja halda áfram að hreyfa sig, koma sér aftur af stað í útihreyfingu.
Námskeiðið kostar 22.900 kr. og umsjón með því hefur Kristín Ýr Lyngdal.