NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 29. SEPT
RAFRÆNN KYNNINGARFUNDUR
Kl. 20, miðvikudaginn 18. sept
Smellið hér til að tengjast fundinum
Fjögurra mánaða æfingahópur fyrir stráka sem vilja koma sér af stað í hreyfingu og útivist
Hreyfinga- og ævintýrabræðralag fyrir stráka á öllum aldri sem vilja koma sér í og viðhalda góðu formi. Markmið hópsins er ná og tryggja líkamlega getu; þol, þrek, jafnvægi og liðleika fyrir útivist og ævintýri.
Æfingaáætlunin byggir á fjölbreyttri hreyfingu og útivist í lokuðum hópi fyrstu vikurnar en svo taka við æfingar með æfingahópi Útihreyfingarinnar sem æfir tvisvar til þrisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum kl. 9:30.
Þátttakendur taka fyrstu skrefin inn í nýjan lífsstíl þar sem hreyfing og útivera í samfélagi við aðra er megininntakið. Markmiðið er að koma sér í það form að geta æft með stærri hópum, gengið á fjöll, hlaupið, hjólað, synt og farið í sjóinn.
Sameiginlegar göngur og styrktaræfingar ásamt hreyfingaáætlun þar sem áhersla er á stuttar daglegar göngur á virkum dögum. Alla miðvikudaga kl. 12:15 er hist í sjósundi í Nauthólsvík. Persónulegt upphafsviðtal og eftirfylgni ásamt fyrirlestrum um hreyfingu, mataræði og markmiðasetningu.
Sameiginlegar göngur hópsins
- Sun. 29. sept., kl. 08. Djúpavatn og Sogin
- Fim. 3. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Mosfell
- Sun. 6. okt., kl. 08. Móskarðshnúkar
- Fim. 10. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Búrfell
- Fim. 17. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Helgafell
- Sun. 20. okt., kl. 08. Stóri Meitill
- Fim. 24. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Esja upp að steini
- Sun. 27. okt., kl. 08. Blákollur
Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara í ferðir hreyfingarinnar,
Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum. Aðgangur að sjóbaðsaðstöðunni í Nauthólsvík er ekki innifalinn í verði.
Hægt er að greiða fyrir þátttökuna í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu.
Umsjón með námskeiðinu hefur Róbert Marshall.
Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsingapóst í aðdraganda námskeiðs.