Norski skerjagarðurinn. Kajak

50.000 kr.197.000 kr.

Fjórir himneskir ferðadagar á kajak
14.-19. ágúst

Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, gengið, synt og slappað af.

Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna.

Dagleiðirnar eru stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma.

Gist er í þrjár nætur í skálum sem eru hver öðrum glæsilegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / silkipoka.

Hver og einn flytur sinn eigin farangur í kajaknum á milli gistiskálanna. Hópurinn flytur líka með sér mat og eldar saman í náttstað en líka verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða.

Ferðin tekur í heild sex daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar þar sem þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum og gista í Osló, bæði fyrir og eftir ferð.

Hópurinn heldur af stað frá Osló með rútu snemma fimmtudaginn 15. ágúst og ferðinni lýkur í Osló sunnudagskvöldið 18. ágúst. Þátttakendur þurfa því að vera komnir til Oslóar í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 14. ágúst og geta ekki flogið aftur heim fyrr en í fyrsta lagi mánudaginn 19. ágúst.

Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið 5. júní.

Verð 197.000 kr.

Innifalið: Gisting í 3 nætur, ferðir innan Noregs, kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald.
Ekki innifalið: Flug til Noregs og gisting í Osló fyrir og eftir ferð.

Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 50.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.

Title

Go to Top