Úti ferðaskíði. Byrjendanámskeið
18.000 kr.
Stutt ferðaskíðanámskeið fyrir byrjendur
14. – 23. janúar
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái að kynnast ferðaskíðum / utanbrautarskíðum og þessum frábæra ferðamáta sem sameinar skíðagöngu, náttúruupplifun og vetrargleði.
Þetta er stutt, snarpt en hagnýtt námskeið þar sem þú fræðist um muninn á mismunandi búnaði, lærir á skíðin og skinnin, kynnist grunntækni í beitingu skíðanna og hvernig við skíðum örugglega og áreynslulaust á mismunandi undirlagi.
Við byrjum rólega, lærum á skíðin, bindingarnar og skinnin og tökum svo fyrstu skrefin í brekkum og hliðarhalla, mismunandi færi og í fjölbreyttu landslagi.
Námskeiðið samanstendur af rafrænum fræðslufundi og tveimur skíðaæfingum sem taka um 2 klst hvor. Staðsetning æfinganna fer eftir snjóalögum og færð, en reynt er að miða við að ekki taki meira en 30-40 mínútur að aka frá Reykjavík á æfingastaðinn.
Dagskrá námskeiðsins
- Fim. 14. jan. Kl. 20. Rafrænn fræðslufundur
- Mið. 20. jan. Kl. 18. Æfing
- Lau. 23. jan. Kl. 10. Æfing
Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs.
Úti ferðaskíði byrjendanámskeið kostar 18 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.
Aldrei gengið á gönguskíðum?
Athugaðu að ef þú hefur aldrei gengið á gönguskíðum, þá er gott að byrja á því að læra tæknina á brautarskíðum, áður en þú færir þig yfir á ferðaskíðin. Sjá t.d. námskeiðið Úti brautarskíði.
Viltu ganga meira á ferðaskíðum?
Þetta byrjendanámskeið á ferðaskíðum er sett upp þannig að þau sem vilja halda áfram að æfa sig, geta runnið beint inn í æfingahópinn Úti ferðaskíði. Hann byrjar laugardaginn 23. janúar, sama dag og síðasta æfing byrjendanámskeiðsins, og hittist síðan á miðvikudagskvöldum fram í miðjan mars. Þar æfum við tæknina enn betur, förum á nýja staði í nágrenni Reykjavíkur og náum góðum tökum á ferðaskíðamennskunni.
En ferðast á gönguskíðum?
Ef hugurinn hneygist í þá átt að ferðast á gönguskíðunum með púlku í eftirdragi og læra allt um vetrarútilegur þá er námskeiðið Ferðast á gönguskíðum fyrir þig. Það hefst með bóklegum fundi mánudaginn 18. janúar, búnaðarkvöldi fimmtudaginn 21. janúar og lýkur með vetrarútilegu helgina 30.–31. janúar.
Leiðbeinendur á öllum þessum námskeiðum eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum.


