Útikonur

9.900 kr.

Námskeiðshópur frá september til júlí
Kynning 1. sept. Fyrsta ganga 5. sept

Fyrir konur sem vilja hreyfa sig reglulega, byggja upp gott gönguþol og upplifa skemmtileg ævintýri saman.

Útikonur er námskeiðshópur fyrir konur sem langar að gera útiveru og hreyfingu að föstum hluta af lífinu. Hópurinn hittist að meðaltali fjórum sinnum í mánuði, tvisvar á þriðjudögum og tvisvar á laugardagsmorgnum, frá byrjun septembers og fram í byrjun júlí.

Gengið er á fjöll og fell, en einnig meðfram sjónum og yfir holt og hæðir. Áherslan er á að byggja smám saman upp gott gönguþol og þrek þannig að við getum tekist á við stærri ævintýri eftir því sem líður á veturinn og vorið.

Okkur finnst líka gaman að hafa útivistina fjölbreytta og skemmtilega. Þess vegna brjótum við reglulega upp göngurnar og prófum eitthvað allt annað svo sem hjól, gönguskíði, sjósund eða annað sem hentar hópnum og árstímanum.

Skemmtilegast er svo að hafa ákveðin markmið til að stefna að og halda sér á göngutánum. Þess vegna höfum við sett hópnum tvö markmið af ólíkum toga sem bæði eru fanta spennandi.

  • Snæfellsjökull.  29. maí. Gengið á broddum og í línu upp á jökulinn* Gangan gæti færst yfir á sunnudag, ef illa viðrar þennan laugardag.
  • Fjallabak. 10.-11. júlí. Gönguhelgi, þar sem gengið verður í tvo daga, meðal annars á Grænahrygg, að Rauðufossum og Auganu. Gist í fjallaskála**

Kynningarfundur fyrir Útikonur verður þriðjudaginn 1. september og fyrsta gangan er laugardaginn 5. september.

Athugaðu að þú þarft ekki að ekki að hafa neina reynslu til að byrja. Hugmyndin er að við byggjum okkur upp saman og mætum hverri áskorun þegar að henni kemur. Markmiðið er heldur ekki að gera útivistina að átaki, frekar að skapa góðan hóp og venju sem endist til lengri tíma. Við ætlum að mæta reglulega, hreyfa okkur og verða sterkari saman og smám saman færa okkur út fyrir það sem við héldum að við gætum. Og svo auðvitað ætlum við að hafa ótrúlega gaman á leiðinni.

Konur eru teknar í upphafsviðtal og vel er fylgst með framgangi og framförum þeirra m.a. inni á sameiginlegum Strava-hópi. Dagskrá hvers mánaðar er birt með góðum fyrirvara í sameiginlegum Facebook-hópi. Þar fá konur einnig allar upplýsingar um göngurnar, heimaverkefni og góða hvatningu.

Umsjón með Útikonum hafa gleðisprauturnar Kristín Ýr Lyngdal og Bubba Snorradóttir.

Þátttaka kostar 108.900 kr. fyrir tæpa 11 mánuði eða 9.900 kr. á mánuði. Til að skrá sig þarf einfaldlega að greiða fyrsta mánuðinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Þessi fyrsti mánuður er óskuldbindandi prufumánuður en eftir hann binda konur sig út tímabilið.

*Konur sem ekki eiga brodda og ísöxi þurf að fá slíkan búnað lánaðan eða leigðan
**Við sjáum um að panta gistinguna en hún er ekki innifalin í mánaðargjaldinu og greiðist sér