• Útigengið

    32.000 kr.64.000 kr.
    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 15. SEPT Fyrir öll sem elska fjöll og vilja nýta náttúruna til líkamsræktar Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni, kynnast nýjum stöðum, bæta við færni sína á fjöllum, eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Áherslan í haust er á aðgengilegar stuttar til meðallangar fjallgöngur í nágrenni höfuðborgarinnar. Gengið er á sunnudögum, tvær helgar í mánuði og flestar göngurnar taka 3-5 klst. Eftir áramót gefst tækifæri til að bæta við færni sína og form með lengri og flóknari göngum eins og á Eyjafjallajökul í lok apríl.  Dagskrá til áramóta
    • 15. sept. Móskarðshnúkar. Hringleið á alla hnúkana
    • 29. sept. Botnssúlur
    • 13. okt. Hengill
    • 27. okt. Blákollur
    • 10. nóv. Þyrill í Hvalfirði
    • 24. nóv. Stóri Meitill
    • 15. des. Stutt aðventuganga í nágrenni Rvk
    Dagskrá eftir áramót
    • 19. jan. Helgafell í Hfj.
    • 2. feb. Mosfellsbæjarfjöll hringleið
    • 23. feb. Esjuhringur
    • 2. mar. Geirmundartindur í Akrafjalli
    • 16. mar. Stóra Kóngsfell og Drottning
    • 30. mar. Hellutindar/Stapatindar
    • 12. apr. Eyjafjallajökull
    • 4. maí. Vífilsfell
    Athugið að ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags. Þátttaka í Útigenginu fram að áramótum kostar 32.000 kr. sem felur í sér 7 göngur frá miðjum september fram í desember byrjun. Einnig er hægt að taka þátt út veturinn með það að markmiði að æfa sig fyrir hæstu tinda landsins. Þátttaka í Útigenginu allan veturinn kostar 64.000 kr. sem felur í sér 15 göngur frá miðjum september allt til maí loka. Þátttakendur njóta sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjónarmenn Útigengisins eru allt vanir leiðsögumenn Útihreyfingarinnar Skráðir þátttakendur fá upplýsingapóst í aðdraganda námskeiðsins.
  • Úti 101

    29.900 kr.

    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 17. SEPT Kynningarfundur 10. sept, kl. 17:30 í Útilífi, Skeifunni 11

    Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, apríl og september. Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

    Dagskrá námskeiðsins
    • Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar. Æfingarnar fara fram í Elliðaárdal, Öskjuhlíð, Laugardal og víðar.
    • Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar. Á Hólmsheiðinni, Úlfarsfelli, í Heiðmörk, Bláfjöllum og víðar.
    • Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Lengri hreyfing aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum. Gamlir og nýir slóðar í nágrenni Reykjavíkur. Helgaræfingar næsta námskeiðs eru haldnar laugardaginn 21. september, sunnudaginn 29. september og laugardaginn 19. október.
    Á Úti 101 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeið Úti 102 eða jafnvel taka þátt í Hálfvættanámskeiði Útihreyfingarinnar. Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftarferð þar sem áfanganum er fagnað. Hægt er að greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur njóta þátttakendur sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal ásamt Helgu Maríu Heiðarsdóttur.
  • NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 29. SEPT RAFRÆNN KYNNINGARFUNDUR 18. SEPT Fjögurra mánaða æfingahópur fyrir stráka sem vilja koma sér af stað í hreyfingu og útivist Hreyfinga- og ævintýrabræðralag fyrir stráka á öllum aldri sem vilja koma sér í og viðhalda góðu formi. Markmið hópsins er ná og tryggja líkamlega getu; þol, þrek, jafnvægi og liðleika fyrir útivist og ævintýri. Æfingaáætlunin byggir á fjölbreyttri hreyfingu og útivist í lokuðum hópi fyrstu vikurnar en svo taka við æfingar með æfingahópi Útihreyfingarinnar sem æfir tvisvar til þrisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum kl. 9:30. Þátttakendur taka fyrstu skrefin inn í nýjan lífsstíl þar sem hreyfing og útivera í samfélagi við aðra er megininntakið. Markmiðið er að koma sér í það form að geta æft með stærri hópum, gengið á fjöll, hlaupið, hjólað, synt og farið í sjóinn. Sameiginlegar göngur og styrktaræfingar ásamt hreyfingaáætlun þar sem áhersla er á stuttar daglegar göngur á virkum dögum. Alla miðvikudaga kl. 12:15 er hist í sjósundi í Nauthólsvík. Persónulegt upphafsviðtal og eftirfylgni ásamt fyrirlestrum um hreyfingu, mataræði og markmiðasetningu. Sameiginlegar göngur hópsins
    • Sun. 29. sept., kl. 08. Djúpavatn og Sogin
    • Fim. 3. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Mosfell
    • Sun. 6. okt., kl. 08. Móskarðshnúkar
    • Fim. 10. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Búrfell
    • Fim. 17. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Helgafell
    • Sun. 20. okt., kl. 08. Stóri Meitill
    • Fim. 24. okt., kl. 06. Fjall fyrir vinnu. Esja upp að steini
    • Sun. 27. okt., kl. 08. Blákollur
    Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara í ferðir hreyfingarinnar, Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum. Aðgangur að sjóbaðsaðstöðunni í Nauthólsvík er ekki innifalinn í verði. Hægt er að greiða fyrir þátttökuna í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Umsjón með námskeiðinu hefur Róbert Marshall. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsingapóst í aðdraganda námskeiðs.
  • Aftur út

    4.900 kr.
    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 3. OKT
    Námskeið þar sem útivist er notuð til endurhæfingar ásamt samveru og jafningjaspjalli
    Ætlað öllum sem eru að koma sér aftur af stað eftir erfið veikindi svo sem krabbameinsmeðferð. Leiðarljós námskeiðsins er fólk finni sinn eigin kraft og frið í náttúrunni og öðlist styrk í gegnum samveru með öðrum sem eru á sama stað.  Frábært fyrsta skrefið fyrir meistara sem vilja koma sér í gott útivistarform, sigra fjöll og firnindi og sig sjálf í leiðinni. Léttar göngur, kaffispjall og raunhæf markmið, eitt skref í einu! Hópurinn hittist alls fimm sinnum og lokatakmarkið er hæg ganga upp á Úlfarsfell sem rís tæplega 300 metra yfir sjávarmál.  Dagskrá námskeiðsins
    • 3. okt, kl. 14. Laugardalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall í Kaffi Flóru.
    • 10. okt, kl. 14. Öskjuhlíð. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bragganum.
    • 17. okt, kl. 14. Elliðaárdalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bístró. 
    • 24. okt, kl. 14. Úlfarsfell. Sigurgangan :)
    • Í lok námskeiðs verður bónusferð í sjósund í Nauthólsvík.
    Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, betur þekkt sem Sirrý, leiðir námskeiðið. Hún hefur tvisvar greinst með krabbamein og hefur reynt á eigin skinni hversu mikilvæg útivist er í endurhæfingu og bataferli. Tíu árum eftir að hún greindist fyrst, gekk hún á gönguskíðum eftir endilöngum Vatnajökli og ári síðar á Hvannadalshnúk. Hér fyrir neðan eru tvö viðtöl þar sem Sirrý segir sína sögu.  Viðtal í Vísi Viðtal á mbl.is Skráðir þátttakendur fá upplýsingapóst og boð á undirbúningsfund í aðdraganda námskeiðsins.

  • Úti 102

    22.900 kr.

    NÁMSKEIÐ HEFST 29. október Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig; hlaupa lengra, fara hærra á fjöllum, og vera aðeins lengur ofan í sjónum. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

    Dagskrá námskeiðsins
    • Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Tvær lengri helgaræfingar, laugardaginn 2. nóvember og sunnudaginn 24. nóvember.
    Á Úti 102 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem vilja halda áfram að hreyfa sig, koma sér aftur af stað í útihreyfingu og einnig tilvalið fyrir þau sem hafa áhuga á að taka síðan þátt í Hálfvættanámskeiði Útihreyfingarinnar sem hefst í lok nóvember.
    Hægt er að greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur njóta þátttakendur sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal.
  • Landvættur 2025

    161.100 kr.
    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í NÓV KYNNINGARFUNDUR 24. SEPT Skoraðu á sjálfan þig! Þjálfun og undirbúningur til að ljúka heilum Landvætti sem kallar á að þátttakendur ljúki fjórum þrautum í fjórum landshlutum á innan við ári. Þrautirnar felast í skíðagöngukeppni, hjólreiðakeppni, fjallahlaupi og vatnasundskeppni. Þetta er frábær áskorun fyrir þá sem eru nú þegar í sæmilega góðu formi, vilja komast í sitt besta lífsform og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Jafnframt heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið hálfum Landvætti. Dagsetningar þrautanna fjögurra
    • Fossavatnsgangan 12. apríl 2025 50 km skíðaganga
    • Bláalónsþrautin, dagsetning 2025 ekki staðfest en síðast 8. júní 2024 60 km hjólreiðar
    • Þorvaldsdalsskokkið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 6. júlí 2024 25 km fjallahlaup
    • Urriðavatnssundið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 27. júlí 2024 2500 m vatnasund
    Æfingaáætlunin byggir á tveimur til þremur sameiginlegum æfingum á viku. Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og aðra hvora helgi til skiptis laugardag og sunnudag kl. 9:30. Þjálfunin styðst við æfingagrunn Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari er nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun. Athugið að þátttakendur þurfa ekki að hafa grunn í skíðagöngu til að taka þátt, því þær viðbótaræfingar sem bætast ofan á, snúa fyrst og fremst að því að kenna og ná upp færni á gönguskíðunum en einnig er um að ræða sundæfingar og kuldaþjálfun. Sérmenntaðir þjálfarar og sérfræðingar í skíðagöngu og sundi munu meðal annars koma inn á þessar æfingar. Að öðru leyti koma margir þjálfarar með mikla þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig að námskeiðinu. Þjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi. Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu sína og markmið og fá markvissa endurgjöf, eftirfylgni og utanumhald allt tímabilið. Í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá eru fræðslu- og upplýsingafundir haldnir fyrir hverja keppnisgrein og þátttakendur fá stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar. Námskeiðið tekur 9 mánuði og kostar 161.100 kr. eða 17.900 kr. á mánuði. Hægt er greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara ferðir hreyfingarinnar, Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum. Viltu vita meira? Hér getur þú lesið allt um hvað það þýðir að verða Landvættur.
  • Hálfvættur 2025

    161.100 kr.
    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í NÓV KYNNINGARFUNDUR 24. SEPT Besta áskorun lífs þíns! Þjálfun og undirbúningur til að ljúka hálfum vegalengdum Landvættaáskorunarinnar sem kallar á að þátttakendur ljúki fjórum þrautum í fjórum landshlutum á innan við ári. Þrautirnar felast í skíðagöngukeppni, hjólreiðakeppni, fjallahlaupi og vatnasundskeppni. Stórskemmtileg áskorun til að komast í gott form og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Þetta er til dæmis heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið Úti 101 námskeiðinu. Dagsetningar þrautanna fjögurra
    • Fossavatnsgangan 12. apríl 2025 25 km skíðaganga
    • Bláalónsþrautin, dagsetning ekki staðfest en síðast 8. júní 2024 30 km hjólreiðar
    • Þorvaldsdalsskokkið, dagsetning ekki staðfest en síðast 6. júlí 2024 16 km fjallahlaup
    • Urriðavatnssundið, dagsetning ekki staðfest en síðast 27. júlí 2024 1250 m vatnasund
    Æfingaáætlunin byggir á tveimur til þremur sameiginlegum æfingum á viku. Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og aðra hvora helgi til skiptis laugardag og sunnudag kl. 9:30. Þjálfunin styðst við æfingagrunn Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari er nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun. Athugið að þátttakendur þurfa ekki að hafa grunn í skíðagöngu til að vera með, því þær viðbótaræfingar sem bætast ofan á, snúa fyrst og fremst að því að kenna og ná upp færni á gönguskíðunum en einnig er um að ræða sundæfingar og kuldaþjálfun. Sérmenntaðir þjálfarar og sérfræðingar í skíðagöngu og sundi munu meðal annars koma inn á þessar æfingar. Að öðru leyti koma margir þjálfarar með mikla þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig að námskeiðinu. Þjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi. Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu sína og markmið og fá markvissa endurgjöf, eftirfylgni og utanumhald allt tímabilið. Í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá eru fræðslu- og upplýsingafundir haldnir fyrir hverja keppnisgrein og þátttakendur fá stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar. Námskeiðið tekur 9 mánuði og kostar 161.100 kr. eða 17.900 kr. á mánuði. Hægt er að greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara ferðir hreyfingarinnar, Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum. Viltu vita meira? Hér getur þú lesið allt um hvað það þýðir að verða Landvættur.
  • Arnarfjörður. Gönguferð

    98.000 kr.117.000 kr.
    Upplifun og dekur um fjöll og fjörur 20.-22. september Ferðalög færast á annað stig þegar ferðast er í fylgd með heimamönnum. Þeir þekkja svæðið eins og lófann á sér, allar földu náttúruperlurnar og skemmtisögurnar. Í þessari upplifunar- og dekurferð leiðir kokkurinn og lífskúnstnerinn Sirrý Ágústsdóttir frá Bíldudal göngur um sínar heimaslóðir og dekrar við þátttakendur eins og henni einni er lagið. Ferðin hefst snemma á föstudagsmorgni þegar ekið er í samfloti úr Reykjavík áleiðis vestur á firði eða allt upp á Dynjandisheiði. Bílar eru skildir eftir og lagt af stað gangandi ofan fjalla út Langanes og niður að Langanesvita við Arnarfjörð, um 16 km leið. Þar er slegið upp veislu við varðeld í fallegri fjörulaut á meðan hópurinn drekkur í sig útsýnið yfir hin dulmögnuðu vestfirsku alpafjöll með öllum sínum óteljandi hvilftum og flötum toppum. Langanesið er magnaður staður. Enginn vegur liggur að vitanum og aðeins er fært þangað gangandi eða sjóleiðina. Hvergi er sólarlagið fallegra en einmitt þarna og eftir að búið er að njóta þess er hópurinn fluttur á bát þvert yfir Arnarfjörðinn á Bíldudal. Hnúfubakar, hrefnur og hnísur gera sig heimkomna í firðinum og ef heppnin er með í för sjáum við til þessara tignarlegu skepna. Gist er á hlýlegu og notalegu gistiheimili á Bíldudal næstu tvær nætur. Daginn eftir er ekið á smárútu út Arnarfjörðinn og inn í Selárdal. Eftir að hafa skoðað hið merkilega safn listamannsins Samúels og Uppsali þar sem þjóðsagnapersónan Gísli bjó, eru bakpokar axlaðir og haldið upp Selárdalinn. Gengið er ofan á fjallgarðinum og komið niður hinn réttnefnda Fagradal í Tálknafirði, um 15 km leið. Á leiðarenda skolar hópurinn af sér göngurykið í fallegri náttúrulaug og svamlar í sjónum við gula sandströnd. Eftir gott bað og búbblur er haldið til baka á Bíldudal í kvöldmat og kvöldvöku að hætti heimamanna hjá sjálfum Vegamótaprinsinum. Að loknum letilegum morgunmat er boðið upp á stutta en snarpa fjallgöngu upp á Bíldudalsfjall þaðan sem sést vítt og breitt yfir Arnarfjörðinn. Eftir léttan hádegismat er svo ekið heim á leið með viðkomu í náttúrulauginni í Reykjafirði. Ferðin kostar 98 þúsund fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en 117 þúsund fyrir aðra. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Mikið er innifalið í verðinu eða gisting í tvær nætur í tveggja manna herbergi með morgunmat, tveir kvöldverðir, nesti og fordrykkur, trúss og selflutningur á bílum og bátum ásamt leiðsögn og alls utanumhalds.
  • Fjallganga 29. september Fáir fjallstoppar bjóða uppá jafn glæsilegt útsýni og Botnsúlur sem standa fyrir botni Hvalfjarðar og eru á sama tíma krúnudjásnið í fjallasýn Þingvalla. Þessi þúsund metra hái fjallabálkur er skyldufag í íslenzkum fjallafræðum. Þarna þurfa allir að ganga upp og kynnast þessu risastóra útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarinnar. Þetta er umtalsverð fjallganga um gróið land og skriður í töluverðum bratta en efst er greiður og breiður hryggur. Búast má við 4-5 tíma göngu yfir um það bil 6 til 7 km, með hækkun uppá 970 metra. Útigengið er fjallgönguhópur þar sem gleðin er í fyrirrúmi. Dagskráin er fyrir öll sem langar að kynnast fjöllum og stöðum í nágrenni Reykjavíkur. Tilvalinn hópur fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref í fjallgöngum eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum og vilja kynnast útivistarfólki, nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.
  • Tindfjöll. Giljaganga

    36.000 kr.49.000 kr.
    Stórbrotin gil undir Tindfjöllum 12.-13. október Okkur finnst fátt skemmtilegra en að skoða fáfarin svæði og nýjar slóðir og þessa hausthelgi er ferðinni heitið á svæðið í og undir Tindfjöllum. Þar leynast ótal náttúruperlur, gil og gljúfur sem ferðalöngum yfirsést oft þegar stefnt er á hærri og þekktari tinda fjallanna, svo sem Ými og Ýmu. Gengið er með vistir og svefnpoka á bakinu báða dagana, en gist er í nýuppgerðum skála Útivistar í Tindfjöllum, Tindfjallaseli, sem liggur í 700 metra hæð. Ferðin hefst snemma á laugardagsmorgni þegar ekið er í samfloti úr Reykjavík. Við notum þennan fyrri dag til að ganga gamla bakdyraleið upp í Tindfjallasel, meðfram gljúfrum sem liggja að baki Þórólfsfelli, um 12 km leið. Daginn eftir, á sunnudegi, eru byrðar axlaðar og haldið norðvestur yfir fjöllin í Austurdal, sannkallaðan leynidal sem kúrir undir Tindfjallajöklinum. Þegar búið er að skoða þennan grösuga dal og leyndardóma hans verður haldið niður með stórbrotnu gljúfri Valárinnar, Stóra-Valagili. Ferð líkur með því að gengið er yfir Eystri-Rangá á traustu vaði. Ferðin kostar 35 þúsund fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en annars 49 þúsund. Innifalið er gisting, leiðsögn og utanumhald. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sameinist í bíla og hjálpist að við alls konar bílatilfæringar :) Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Fjallganga 27. október Blákollur er fjall sem kemur á óvart! Þetta er sjaldfarinn tindur en samt í alfaraleið því við höfum öll ekið þarna framhjá mörg hundruð sinnum. Leiðin á tindinn opnar á útsýni á fjalllendi sem hulið er sjónum þegar ekið er framhjá Hafnarfjalli. Landsýnin á tindinum er stórfengleg. Í suðri er Akrafjall, Esjan og Reykjanesið, í vestri allt Snæfellsnesið, Baula og Holtavörðuheiði í norður og allir tindar Skarðsheiðarinnar í austur. Góður stígur hefur myndast á hryggnum á leið upp á Blákoll en búast má við að gangan taki 3-4 tíma með um það bil 700 metra hækkun yfir rúma 5 kílómetra. Útigengið er fjallgönguhópur þar sem gleðin er í fyrirrúmi. Dagskráin er fyrir öll sem langar að kynnast fjöllum og stöðum í nágrenni Reykjavíkur. Tilvalinn hópur fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref í fjallgöngum eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum og vilja kynnast útivistarfólki, nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.
  • Kerlingarfjöll. Fjallaskíðanámskeið

    93.000 kr.125.000 kr.
    Fjallaskíðanámskeið 22.-24. nóvember Stórskemmtilegt fjallaskíðanámskeið í Kerlingarfjöllum, vöggu íslenskrar skíðamenningar. Hér hafa Íslendingar lært að skíða í árafjöld og hvergi er betra að æfa sig í skíðalistinni. Í Kerlingarfjöllum má finna brekkur við allra hæfi, allt frá þægilegum aflíðandi byrjendabrekkum yfir í snarbrattar  jökulhlíðar. Að auki er frábært að ferðast vítt og breitt um þessa fallegustu útsýnistinda landsins með fjallaskíðin á fótunum og koma niður á allt öðrum stað en upp var farið. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi reynslu á svigskíðum, en námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna á fjallaskíðum. Þátttakendum er skipt upp í getuhópa þannig að á meðan sumir eru að læra að nota fjallaskíði í fyrsta sinn, þá eru aðrir sem eru komnir lengra að fá tækifæri til að fínpússa tæknina, fara hærra, lengra og hraðar. Byrjendur fá kennslu í grunnatriðum fjallaskíðamennsku; hækkanir með skinnum og broddum, undirbúning skíðaferða og leiðarval ásamt kennslu í skíðatækni utan brauta. Að auki verður farið yfir meginatriði í snjóflóðamati og notkun snjóflóðaýla. Það er góð regla að rifja árlega upp tæknina við snjóflóðaleit og björgun og sett verður upp æfingaleit í því skyni. Allir þátttakendur fá persónulegar ábendingar og leiðsögn þrautreyndra skíðakennara og myndbandsupptökur eru notaðar til að fínstilla tæknina hjá hverjum og einum. Miðað er við að þátttakendur komi á eigin fjallabílum í Kerlingarfjöll og lagt er af stað í samfloti um hádegisbil á föstudegi og áætluð heimkoma aftur til Reykjavíkur er síðla dags á sunnudag. Gist er í tvær nætur á nýju og glæsilegu fjallahóteli í Kerlingarfjöllum, Highland Base með morgunmat og kvöldmat. Þar er frábær aðstaða og hægt að láta líða úr sér í nýopnuðum Hálendisböðum fyrir hefðbundna Kerlingarfjallakvöldvöku með gítarspili við arineld síðar um kvöldið. Námskeiðið kostar 93.000 kr. fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en annars 125.000 kr. Verðið er pr. mann og miðar við tveggja manna standard herbergi en hægt er að panta einstaklingsherbergi og/eða uppfæra í delux gegn hærra gjaldi. Sendið fyrirspurn á utihreyfingin@utihreyfingin.is. Innifalið: Gisting í tvær nætur, morgunverður og aðgangur að Hálendisböðum. Léttur kvöldverður á föstudagskvöldinu og þriggja rétta kvöldverður seinna kvöldið ásamt fordrykk. Skíðakennsla, leiðsögn og utanumhald.
  • Dagsferð í núvitund 8. desember Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum annan sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar. Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað! Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti. Lagt er af stað í ljósaskiptunum eða kl. 15 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna. Ferðin er ókeypis fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar sem þó þurfa að smella hér til að skrá sig til leiks, svo hægt sé að skipuleggja ferðina sem best. Aðrir greiða 13 þúsund kr. og fara í gegnum kaupferlið hér að neðan. Allir skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Ferðast á gönguskíðum. Námskeið

    37.000 kr.52.000 kr.
    Námskeið í vetrarferðalögum Bóklegt 13. jan og verklegt 25.-26. jan Þátttakendur læra og æfa það helsta sem kunna þarf til að geta ferðast með öruggum hætti á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) um ótroðnar slóðir íslenskra óbyggða. Námskeiðið skiptist annars vegar í fræðslukvöld og hins vegar æfingaferð í nágrenni Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að reyna sig í krefjandi en öruggum vetraraðstæðum. Á fræðslukvöldinu verður m.a. farið yfir hvaða útbúnað þarf til vetrarferðalaga á skíðum, hvernig tjöld, dýnur, svefnpoka og sleða / púlku best er að nota, þau öryggisatriði sem þarf að hafa í huga, hvernig á að velja tjaldstað og tjalda í snjó, hita vatn og næra sig, halda á sér hita og útbúa klósett! Á síðari hluta námskeiðsins er svo komið að því að nota þekkinguna í alvöru vetrarferðalagi. Gengið er á skíðum á laugardagsmorgni með farangurinn í eftirdragi og tjaldbúðir settar upp í snjó. Á leiðinni er skíðatæknin æfð, upp og niður brekkur sem og hliðrun í brattlendi. Hópurinn lærir og æfir að auki grunnatriði í leiðavali og rötun ásamt því hvernig á að moka út neyðarskýli í snjó og fleira. Áfangastaðurinn þessa æfingahelgi skiptir minna máli en ferðalagið sjálft og fer alfarið eftir snjóalögum og færð. Þó er stefnt að því að halda sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Námskeiði kostar 37.000 kr. fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en 52.000 kr. fyrir aðra. Hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið í verði er öll kennsla og æfingar, búnaðarfundur, leiðsögn og utanumhald.
  • Himneskir Jötunheimar. Ferðaskíði

    70.000 kr.272.000 kr.
    Skíðað á milli skála í Noregi 20.-25. mars Það má líkja Jötunheimum í Noregi við Fjallabak okkar Íslendinga. Þetta stórkostlega fjallahérað er eitt vinsælasta útivistarsvæði Norðmanna, umkringt jöklum og hæstu fjöllum landsins. Á milli fjallanna liggja stór og mikil vötn sem á veturnar bjóða upp á sannkallaðar himnabrautir fyrir skíðafólk á gönguskíðum. Á veturnar er líka aðeins hægt að ferðast um Jötunheima fótgangandi eða á skíðum og það gerum við í þessari ferð því gengið er á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) í alls  fjóra daga og gist í huggulegum, hlýjum og fullþjónustuðum fjallaskálum. Fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Leiðangurinn hefst á lestarferðalagi frá Gardemoen flugvelli í Osló. Haldið er norður í Guðbrandsdal en þaðan er svo ekið með smárútu á fyrsta næturstaðinn, rómantískt sveitasetur með mikla sögu. Þar bíður góður kvöldmatur eldaður úr hráefni frá héraði og að auki sána og heitur pottur þar sem hægt er að láta ferðaþreytuna líða úr sér og undirbúa sig fyrir átök næstu daga. Eftir staðgóðan morgunmat næsta dag hefst skíðaferðalagið sjálft á því að gengið er inn í Jötunheimana. Þennan dag er gengið á skíðum um 24 km leið, allt á skíðabrautum í góðum skíðasporum. Þessa aðra nótt er svo gist í einum stærsta og þekktasta fjallaskála Norðmanna sem hefur verið starfræktur í tæplega 150 ár! Næstu þrjá daga er gengið á skíðunum á milli stórra og vel útbúinna skála þar sem boðið er upp á allan mat og þjónustu, hægt að kaupa drykki og ýmsan smávarning og komast í sturtu. Dagleiðirnar þessa þrjá daga eru um 20 km og tvær þeirra liggja að mestu eftir frosnum, rennisléttum fjallavötnum sem gerir færið jafnt og slétt og býður upp á magnað útsýni á fjöllin sem umlykja okkur á alla vegu. Síðasta daginn er skíðað til byggða, niður í lítið fjallaþorp þar sem gist er á góðu hóteli með heilsulind. Þar gerir hópurinn vel við sig í mat og drykk en næsta dag er ekið með rútu beint á Gardemoen flugvöll í Osló, þar sem flogið er heim til Íslands, nú eða hvert á land sem er! Þátttakendur þurfa að hafa einhverja reynslu á gönguskíðum og gott er að undirbúa sig í aðdraganda ferðar með því að taka námskeið eða fara í æfingaferðir. Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur fyrir ferð þar sem m.a. verður farið ítarlega yfir búnað og annað skipulag. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni sem kostar 272 þúsund er öll gisting, þ.e. þrjár nætur í fjallaskálum, ein á gistiheimili og ein á hóteli. Allur matur utan dagsnesti ferðadagana tvo, þ.e. fyrsta og síðasta daginn. Lestar- og rútufargjöld innan Noregs. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Flug til og frá Noregs er ekki innifalið, en ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið út að morgni 20. mars, sama dag og leiðangurinn hefst og heim daginn sem honum lýkur, þ.e. 25. mars. Hægt er að greiða ferð að fullu eða greiða staðfestingargjald 70.000 kr og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
  • Fjallastígar Mallorca. Gönguferð

    80.000 kr.305.000 kr.
    Upplifunarveisla fyrir sál og líkama 21.-28. apríl Í þessari ferð þarf oft að stoppa. Anda inn. Anda út. Og andvarpa svo af ánægju yfir lífsins lystisemdum. Gengið er á aldagömlum steinlögðum stígum um Tramuntana fjöllin á spænsku eyjunni Mallorca. Á milli friðsælla strand- og fjallaþorpa, um ilmandi appelsínu- og sítrónulundi, gil og klettaborgir, blágræn fjallavötn og litlar víkur. Fjölbreytt dýralíf, marglitt blómskrúð og ævaforn, kræklótt ólífutré gleðja augað við hvert fótmál. Svo ekki sé talað um matinn! Ferskur fiskur, ferskur appelsínusafi, sælkeratómatar, ólífur fyrir alla bragðlauka, brakandi súrdeigsbrauð, bragðsterkar harðpulsur og ótrúlegir eftirréttir úr möndlum og hunangi sem hvoru tveggja eru þekktar landbúnaðarafurðir frá eyjunni. Þetta er hlið á Mallorca sem fæstir kynnast og er í órafjarlægð og hrópandi andstöðu við háværa strandbari og yfirfullar sólarstrendur sem er ímynd flestra af þessari fallegu Miðjarðarhafseyju. Ferðin tekur alls átta daga en fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Gengið er í fimm daga og dagleiðirnar eru frekar þægilegar og engin lengri en 15 km. Einn hvíldardagur er inni í miðri ferð ásamt því að næstsíðasta daginn er aðeins gengið í tæpar 2 klst að morgni áður en við tekur afslöppun og dekur. Gist er í fjórar nætur á gistiheimilum, tvær nætur í fjallaskálum og eina nótt á lúxushóteli. Athugið að þar sem ekki er hægt að trússa farangur í fjallaskálana þá þurfa þátttakendur að ganga með bakpoka með fötum til skiptanna. Annar farangur verður fluttur á lokahótelið og bíður þar. Ferðin hefst í Barcelona um seinnpart mánudaginn, 21. apríl, þaðan sem hópurinn flýgur saman til Mallorca. Frá flugvellinum er ferðast í smárútu upp í Tramuntana fjöllin og fyrstu nóttina er gist í sögufrægu og afar fallegu fjallaþorpi, þar sem tími gefst til að skoða sig um og snæða góðan kvöldverð. Daginn eftir er gengið yfir Tramuntana fjallgarðinn og byrjað á því að ganga upp á ríflega 900 metra hátt fjall þar sem stórkostlegt útsýni opnast yfir stóran hluta Mallorca. Svo er fetað hægt og rólega niður bratt gil og niður í annað ekki síður fallegt fjallaþorp þar sem gist er um nóttina. 14 km. 500 m hækkun. Á þriðja degi er þræddur stígur sem liggur um friðsæla aldinlundi meðfram norðurströnd eyjunnar með útsýni yfir blágrænt hafið. Þennan dag er gist í litlum strandbæ þar sem hægt er að busla í sjónum og gæða sér á nýveiddu fiskmeti. 14 km. 250 m hækkun. Fjórði dagur ferðarinnar er menningarlegur afslöppunardagur. Morguninn er letilegur og kannski verður farið í sjóinn áður en ferðast er með opnum sporvagni inn í næsta þorp. Þar er hægt að skoða lítil söfn með verkum Picasso og Miró, rölta á milli búða og bragða á dæmigerðum réttum eyjunnar. Fimmti dagurinn er lengsti og erfiðasti göngudagurinn og því er gott að hafa safnað kröftum daginn áður. Gengið er á góðum stíg upp þverbratt en geysifagurt gil, framhjá uppistöðulónum, gegnum lítil jarðgöng og í huggulegan fjallaskála þar sem gist er um nóttina. 15 km. 1200 m hækkun. Á sjötta degi er byrjað á því að lækka sig niður úr fjöllunum áður en gengið er aftur upp og nú upp á snarbratta en hreint ótrúlega klettaborg sem hýsir gamla kapellu og kastala sem búið er að breyta í fjallaskála. Útsýnið er óviðjafnanlegt og næturstaðurinn svo einstakur að honum verður vart lýst með orðum. Þetta er einfaldlega eitthvað sem fólk verður að upplifa á eigin skinni! 15 km. 600 m hækkun. Að morgni næsta dags er gengið niður af klettaborginni og í næsta þorp þar sem smárúta bíður til að flytja hópinn á lúxushótel við draumfagra strönd. Þar er hægt að láta gönguþreytuna líða úr sér í algjöru dekri, marflöt undir sólhlíf, synda í tærum sjó og snæða saman síðustu kvöldmáltíðina. 7 km. Snemma síðasta daginn ferðast hópurinn með rútu á flugvöllinn í Mallorca og flýgur til Barcelona þar sem ferð lýkur í tæka tíð til að hægt sé að ná flugi seinnipart dags heim til Íslands eða hvert á land sem er. Leiðsögumenn ferðarinnar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni, sem kostar 305 þúsund er flug frá Barcelona til Mallorca og til baka, gisting í sjö nætur, allur morgunmatur og tvær kvöldmáltíðir, allar ferðir og flutningur á farangri innan Mallorca, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Athugið að flug til og frá Barcelona er ekki innifalið en ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið frá Íslandi til Barcelona, á upphafsdegi ferðarinnar, þ.e. snemma sunnudaginn 20. apríl og heim frá Barcelona, sama dag og ferð líkur, þ.e. mánudaginn 28. apríl. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns en sökum þess að staðfesta þarf gistingu í fjallaskálunum að lágmarki 4 mánuði fyrir ferð, þá er nauðsynlegt að greiða staðfestingargjald ferðarinnar FYRIR 15. DESEMBER. Eftirstöðvar ferðarinnar eru síðan greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð.

Title

Go to Top