• Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar Þriggja ára stórbrotið ferðalag Jöklafarar er heitið á nýrri áskorun Útihreyfingarinnar þar sem þátttakendur ganga á ferðaskíðum þvert yfir sex stærstu jökla landsins, þ.e. Eyjafjallajökul, Drangajökul, Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Langjökul og Vatnajökul. Markmiðið er ekki að fara upp á hæsta tind hvers jökuls fyrir sig, þ.e. fram og til baka, heldur að skíða þvert yfir jöklana þannig að endað sé á öðrum stað en ferðin hófst. Hægt er að klára áskorunina á eigin hraða, þ.e. á eins skömmum eða löngum tíma og hentar hverjum og einum. Hins vegar skipuleggur Útihreyfingin verkefnið og mælir með því að það sé klárað á alls þremur árum frá upphafi til enda, þannig að byrjað sé á æfingum á ferðaskíðum og minni jöklum áður en ráðist er í flóknari og lengri ferðir og jöklaútilegur. Í hnotskurn Við mælum með því að þau sem hafa enga reynslu og eru að byrja frá grunni, hefji vegferðina með því að læra á ferðaskíði þ.e. utanbrautargönguskíði með stálköntum og æfa sig svo vikulega nágrenni Reykjavíkur með Úti ferðaskíðahópnum. Að auki þurfa óvanir að taka kvöldnámskeið þar sem kennd er línuhegðun á jökli og notkun á jöklabroddum og ísöxi. Fyrsta árið er frábært að stefna að því að þvera einn eða alla af þessum þremur jöklum: Drangajökul, Eyjafjallajökul og Langjökul. Þessa jökla er hægt að þvera hvern um sig á einum löngum skíðadegi og því þarf ekki að gista í tjaldi á jökli þetta fyrsta árið. Annað árið mælum við með námskeiðinu Ferðast á gönguskíðum þar sem þátttakendur læra öll trixin við að ferðast með púlku í eftirdragi og tjalda í snjó auk þess sem farið er í æfingaútilegu til að þjálfa handtökin. Að vori er síðan hægt að halda í 3-4 daga ferðir á Hofsjökul annars vegar og Mýrdalsjökul hins vegar. Síðasta árið er svo komið að konungi íslenskra jökla, sjálfum Vatnajökli. Það er ferðalag sem tekur heila viku og þarfnast góðs undirbúnings og æfinga. Ekki aðeins þurfa þátttakendur að vera í góðu líkamlegu formi og þekkja búnaðinn sinn vel, heldur er líka nauðsynlegt að undirbúa hausinn fyrir átökin og langa daga á jökli. Að lokum fá þátttakendur viðurkenningarskjal og heiðursnafnbótina Jöklafari og eru þá komnir með fullan og óskoraðan rétt til að grobba sig á alla jöklakanta, jafnvel á alþjóðavettvangi 🙂 Síðasta tækifærið? Markmið þessa verkefnis er þó ekki eingöngu að vera þátttakendum til skemmtunar og áskorunar. Með frásögnum af ferðunum í máli og myndum, viljum við líka vekja athygli almennings, heima og erlendis, á hraðri bráðnun jöklanna af völdum loftslagshlýnunar. Myndum leiðangursmanna verður m.a. safnað á sameiginlega myndasíðu á samfélagsmiðlum undir samheitinu #lastoftheglaciers eða síðustu jöklarnir. Hópurinn reynir þannig að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að okkar kynslóð verði ekki síðasta kynslóðin sem nýtur þess að ferðast á skíðum um jökla landsins. Skráning Athugið að hvorki er nauðsynlegt að klára áskorunina í ofangreindri röð né á þremur árum. Ef fólk er vant því að ferðast á skíðum þá er hægt að raða jöklaferðunum saman á hvern þann hátt sem hentar og jafnvel byrja á Vatnajökli! Að auki geta þeir sem þegar eru búnir að þvera einhverja jökla auðvitað líka verið með og bætt í safnið. Til að taka þátt þarf aðeins að skrá sig til leiks með því að smella hér. Í kjölfarið verður þér boðið inn í sérstakan FB hóp allra þátttakanda og ævintýrið hefst. Hér að neðan setjum við jafnóðum inn linka inn á viðeigandi jöklaferðir og undirbúningsnámskeið auk ferða sem hægt er að nýta til að æfa skíðatæknina og handtökin. JÖKLAFERÐIR 2026 Eyjafjallajökull. Ný dagsetning fljótlega Drangajökull. Ný dagsetning fljótlega Vatnajökull. 30. apríl - 7. maí. Langjökull. Ný dagsetning fljótlega Mýrdalsjökull. Á dagskrá 2026 Hofsjökull. Á dagskrá 2026 UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ 2026 Úti ferðaskíði. Námskeið og æfingahópur. Ný dagsetning fljótlega Ferðast á gönguskíðum. Námskeið og útilega. 21. jan. og 31. jan-1. feb. Vetrarfjallamennska. Grunnnámskeið. Ný dagsetning fljótlega ÆFINGAFERÐIR 2025. Ferðir 2026 detta fljótlega inn Norðurljósaganga á ferðaskíðum. Kvöldganga. 18. jan. Ferð er lokið Þingvellir. Dagsferð. 8. feb. Ferð er lokið Undir Tröllakirkju. Púlkuferðalag. 15.-16. feb. Ferð er lokið Yfir Snæfellsnes. Dagsferð. 22. feb. Ferð er lokið Tvídægra. Skíðað á milli skála. 28. feb-2. mars. Ferð er lokið Ok. Dagsferð. 15. mars. Ferð er lokið Jötunheimar í Noregi. Skíðað á milli skála. 20.-25. mars. Ferð er lokið
  • Kajaknámskeið

    26.000 kr.
    ÖRFÁ SÆTI LAUS 25. júní, 2025 Fátt er eins nærandi, draumkennt og dásamlegt og að líða hljóðlaust áfram á kajak í fullkominni sátt og tengingu við náttúruna. Á þessu þriggja klukkustunda námskeiði verður farið yfir þann grunn sem þarf til að geta bjargað sér á kajak og byrjað að lifa drauminn! Farið er yfir búnaðinn og áratökin útskýrð áður en allir koma sér fyrir, hver í sínum kajak og ýtt er úr vör. Í framhaldi eru áratökin æfð ásamt mismunandi aðferðum við að stýra kajaknum, halda réttri stefnu, beygja og snúa við. Farið er yfir undirstöðuatriðin í félagabjörgun og að lokum eru allir látnir velta kajaknum sínum til að æfa sig í því að komast klakklaust úr honum og upp í hann aftur. Mæting er við höfnina á Stokkseyri kl. 18 þar sem byrjað verður á því að taka til kajakana og klæða sig í viðeigandi fatnað áður en kennsla hefst. Þátttakendur fá allan nauðsynlegan búnað á námskeiðinu og þurfa aðeins að mæta í hlýjum fötum og með aukaföt til skiptanna. Ítarlegur upplýsingapóstur er sendur á þátttakendur í aðdraganda námskeiðs. Athugið að þetta námskeið eða sambærilegt námskeið og/eða reynsla er forkrafa inn í allar kajakferðir Útihreyfingarinnar svo sem Kajakferð á Hvítárvatn og Kajakferð í norska skerjagarðinn. Námskeiðið kostar 26.000 kr. og innifalið er kajakleiga, ár, toppur, svunta og björgunarvesti ásamt kennslu faglærðra kajakkennara.
  • Fjórir göngudagar á Austfjörðum 1.-4. júlí Gerpissvæðið, svokallaða, er landssvæðið á milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar, kennt við Gerpi, sem ber þann sæmdartitil að vera austasti tangi á meginlandi Íslands. Svæðið er allt á náttúruminjaskrá og var friðlýst árið 2021. Landssvæðið minnir að nokkru leyti á Hornstrandir, því áður stóðu þarna blómlegir bæir með gróin tún og bátum í fjöru en nú er allt í eyði og aðeins fuglinn fljúgandi og stöku göngumann að sjá. Víða á svæðinu má finna stórbrotin jarðlög, stuðlabergsmyndanir og litfögur líparítbjörg og tignarlegir tindar gnæfa svo yfir öllu og gefa svæðinu hrikalega ásýnd. Tvær víkur og tveir firðir skerast inn í landið og á milli þeirra liggja nes og múlar sem sumir hverjir ganga þverhnípt beint í sjó fram. Í þessari ferð verður leitast við að ganga sem víðast um svæðið og kynnast því sem mest og best í fylgd heimafólks sem þekkir svæðið vel og alla sögu þess. Gengið verður fjóra daga og gist í vel búnum skála/húsi í þrjár nætur, þar af tvær nætur í húsi sem státar ekki bara af sturtum heldur líka gufubaði! Göngufólk þarf aðeins að bera léttan dagpoka hvern göngudag en farangur og matur verður trússaður á milli næturstaða. Að auki verður bátur til taks til að aðstoða göngufólk. Í upphafi og í lok ferðar þarf hópurinn að hjálpast að við að flytja bíla á milli staða, því ferðin byrjar á öðrum stað en hún endar. Fyrsta daginn verður gengið frá Karlsskála, þar sem vegurinn endar norðan Reyðarfjarðar, fyrir Krossanes og að Karlsstöðum, sem er vel búinn skáli Ferðafélags Fjarðarmanna í Vöðlavík. Um 20 km. Annan daginn verður gengið upp í Gerpisskarð þaðan sem stórbrotið útsýni býðst yfir Gerpi og Sandvík, svo yfir Nónskarð og endað í húsi í Viðfirði. Um 17 km. Þriðja daginn verður genginn hringur um Barðsnesið, út á Barðsneshornið og um hin fögru Rauðubjörg. Gist aftur í Viðfirði þar sem slegið verður upp veglegri grillveislu. Um 15 km. Fjórða og síðasta daginn er svo gengið út Viðfjörð, um Hellisfjörð og fyrir Hellisfjarðarmúla til Norðfjarðar. Þar lýkur ferðinni á því að náð verður í þá bíla sem skildir voru eftir fyrsta daginn, við upphafsstað göngunnar. Um 17 km. Ferðin kostar 118 þúsund kr og innifalið er utanumhald og leiðsögn, gisting í húsi í þrjár nætur, bíla- og bátatrúss og ein sameiginleg grillmáltíð. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan búnaðarlista og boð á undirbúningsfund í aðdraganda ferðar. Fararstjórar og leiðsögumenn eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall ásamt heimafólki.
  • Kvöldhjólaferð á nýjum slóðum 16. júlí Stórskemmtilegur fjallahjólahringur þar sem við þræðum alls konar stíga í Mosfellsbæ og nágrenni, prófum m.a. glænýja hjólaleið niður Æsustaðafjall og brunum líka niður Reykjafellið. Lagt er af stað stundvíslega kl. 18 frá Álafossi í Mosfellsbæ, á rafmagnsfjallahjólum með nauðsynlegt viðgerðardót og nesti í bakpoka. Gera má ráð fyrir að hjóleríið taki um 3 klst. en ferðin endar á sama stað og hún byrjar. Leiðin sem er hjóluð býður upp á alls konar skemmtilegar áskoranir sem eru til þess fallnar að bæta jafnvægi hjólaranna og æfa þá í bæði klifri og downhill og að fara yfir hindranir á öruggan hátt. Við tökum fagnandi á móti bæði byrjendum og lengra komnum, því ferðin er skipulögð þannig að hver og einn getur hjólað á sínum hraða. Auk þess er fræðslu um hjólið og góða hjólatækni blandað inn í ferðalagið ásamt fróðleik um áfangastaðina. Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól og vera með heilhjálm með kjálka (fullface hjálm) og hjólabrynju. Skráðir þátttakendur fá tölvupóst með upplýsingum og búnaðarlista í aðdraganda ferðar. Fararstjóri er Helga María Heiðarsdóttir.
  • Tjaldnótt í krúnudjásni Hvítárvatns, Karlsdrætti 19.-20. júlí Sólkatla, Baldheiði og Hrefnubúðir. Örnefnin í kringum Karlsdrátt í Hvítárvatni eru nánast óþekkt og það er ótrúlegt til þess að hugsa að við séum rétt hjá Kili, Hvítárnesi og Bláfellshálsi en samt á svo framandi slóðum. Karlsdráttur er lítill og aflokaður, gróðursæll vogur í norðurenda Hvítárvatns þar sem fjölbreytt plöntulíf birtist óvænt milli jökulvatns og eyðisanda. Hér vex birki upp í miðjar hlíðar og einkennisblóm staðarins, eyrarrósin er alltumlykjandi. Alls vaxa hér 82 aðrar plöntutegundir í rúmlega 400 metra hæð yfir sjávarmáli sem þykir einstakt á Íslandi. Gegnt voginum skríður Norðurjökull út úr Langjökli við hlið Skriðufells og kelfir næstum því ofan í fölgrænt jökulvatnið. Neðar fellur sama jökulvatn í foss allra íslenskra fossa, Gullfoss í gljúfri Hvítár, sem Hvítárvatnið dregur nafn sitt af. Við leggjum í hann með vistir og viðlegubúnað til tveggja daga frá bökkum Hvítárvatns og róum 8-10 kílómetra leið að höfðanum sem lokar af voginum. Þarna sláum við upp tjöldum og gistum eina töfranótt í þessari vin á hálendinu. Þau allra hörðustu baða sig að sjálfsögðu í Hvítárvatni eða velta sér í það minnsta upp úr dögginni á þessum kyngimagnaða stað! Í morgunsárið daginn eftir, fyllum við á brúsa með tæru lindarvatni og göngum á Sólkötlu sem rís í ríflega 1000 metra hæð yfir sjávarmáli. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Langjökul og jökulskerin Þursaborg og Fjallkirkju auk þess sem Hrútfellið, Hvítárvatnið sjálft og sögufrægt umhverfi Kjalvegar blasir við frá afar sjaldséðu sjónarhorni. Gangan er um 10 km fram og til baka. Að göngu lokinni, seinnipart sunnudags tökum við saman tjaldbúðir og róum til baka sömu leið og við komum. Athugið að kajaknámskeið og/eða kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á undirbúningsnámskeið Útihreyfingarinnar. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og pökkunarpóst í aðdraganda ferðarinnar. Ferðin kostar 83.000 kr. og innifalið í verðinu er leiðsögn og utanumhald, leiga og flutningur á kajak, ár, toppi, svuntu og björgunarvesti. Sérhæfðir kajakleiðsögumenn fylgja hópnum alla leið.
  • Fjórir göngudagar á hjara veraldar 24.-27. júlí Á Hornströndum rennur hrikaleg náttúrufegurð saman við dulmagnað andrúmsloft horfinna tíma á svo ólýsanlegan hátt að ferðalangar fá ekki nóg og þurfa að koma aftur og aftur. Þetta er náttúruperla sem sannarlega liggur við endimörk hins byggilega heims og hér háðu ábúendur fyrri tíma hreint ótrúlega lífsbaráttu. Á Hornströndum fær fólk enda á tilfinninguna að náttúruöflin sýni annað hvort sínar allra bestu eða allra verstu hliðar, en lítið þar á milli! Í þessari ferð verður gist í tjöldum í þrjár nætur og gengið í fjóra daga um svæði sem margir líta á sem hjarta Hornstranda, þ.e. svæðið umhverfis Hornbjarg og Hælavíkurbjarg. Þetta er svokölluð hægferð, þ.e. aðalmarkmiðið er að njóta þess að vera á staðnum, ganga á eigin hraða, hlusta á fuglana og gaggið í friðaðri tófunni. Tvo fyrstu dagana er gengið með allan viðlegubúnað á bakinu en tvo seinni dagana með léttan dagpoka. Hópurinn fær svo sendar vistir fyrir sameiginlega grillveislu síðasta kvöldið. Snemma fyrsta daginn er siglt frá Ísafirði yfir á Hesteyri og samdægurs gengið yfir Kjaransvíkurskarð í Hlöðuvík (16 km) þar sem tjaldað er. Á öðrum degi er gengið upp Skálakamb og um Atlaskarð yfir í Höfn í Hornvík (12 km) þar sem tjaldað verður til tveggja nátta. Veður og skýjalög fá að ráða gönguskipulagi síðustu daganna. Annan daginn verður að minnsta kosti gengið á Hornbjarg (18 km) og hinn yfir í Látravík (12 km) eða Rekavík bak Höfn (10 km), allt eftir veðri og vindum. Síðla síðasta daginn, eftir hressandi sjóbað, nær bátur í hópinn og komið verður til baka til Ísafjarðar um kvöldmatarleytið. Fararstjórar í þessari ferð eru frænkurnar og garparnir Andrea Sigrún Harðardóttir og Hildur Jóna Gylfadóttir sem rekja ættir sínar í Hornvík og dvelja þar hvert einasta sumar. Þær þekkja þarna hvern krók og kima og bókstaflega allar sögur svæðisins og kunna að auki þá list að segja skemmtilega frá :) Ferðin kostar 112 þúsund kr. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið er siglingin, leiðsögn og utanumhald plús grillmáltíð síðasta kvöldið. Skráðir þátttakendur verða boðaðir á rafrænan upplýsingafund í aðdraganda ferðar og fá að auki ítarlegan tölvupóst með búnaðarlista og góðum undirbúningsráðum.
  • Norski skerjagarðurinn. Kajak

    50.000 kr.197.000 kr.
    ÖRFÁ SÆTI LAUS Fjórir himneskir ferðadagar á kajak 6.-10. ágúst, 2025 Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli fallegra og afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, synt og slappað af, auk þess sem sérstakur leiðangurskokkur er með í för til að halda hópnum vel nærðum og glöðum! Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna og fjörlegt fuglalíf. Dagleiðirnar eru mjög stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma. Gist er í þrjár nætur í skálum sem eru hver öðrum glæsilegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / lakpoka. Hver og einn flytur sinn eigin farangur og sameiginlegan mat í kajaknum á milli gistiskálanna. Í upphafi ferðarinnar kaupir hópurinn saman í matinn en annar fararstjóranna er lærður kokkur og galdrar fram dásemdarmáltíðir bæði kvölds og morgna. Auk þess verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða. Ferðin tekur í heild fimm daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti dagurinn er ferðadagur. Þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum og gista í Osló eina nótt fyrir ferð og ef vill, eftir ferð. Hópurinn heldur af stað frá Osló með rútu snemma fimmtudaginn 7. ágúst og ferðinni lýkur í Osló sunnudagskvöldið 10. ágúst. Þátttakendur þurfa því að vera komnir til Oslóar í síðasta lagi miðvikudaginn 6. ágúst og geta annað hvort flogið heim seint á sunnudagskvöld eða á mánudagsmorgun 11. ágúst. Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið 2. júní, 2025. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir. Verð 197.000 kr. Innifalið: Gisting í 3 nætur, ferðir innan Noregs með rútum, strætóum og leigubílum, kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Ekki innifalið: Flug til Noregs og gisting í Osló fyrir og eftir ferð. Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 50.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
  • Kvöldhjólaferð á nýjum slóðum 20. ágúst Í þessari ferð þræðum við gamla malarvegi um Leirárdal undir Skarðsheiði og að hluta til aldagamla þjóðleið, svokallaðan Skarðsheiðarveg, sem tengir Hvalfjörð og Borgarfjörð. Við hjólum hringleið sem býður upp á bæði bratt uppklifur og fantaskemmtilega, langa niðurleið, ásamt hreint út sagt stórkostlegu útsýni. Hér verður hægt að æfa sig í alls konar aðstæðum og læra vel inn á rafmagnshjólið og virkni þess. Lagt er af stað úr Reykjavík stundvíslega kl. 18 og ekið í samfloti upp í Leirársveit, þar sem hjóleríið byrjar. Gera má ráð fyrir að ferðin taki 3-4 klst. Nauðsynlegt er að vera með viðgerðardót og gott nesti í bakpoka. Við tökum fagnandi á móti bæði byrjendum og lengra komnum, því ferðin er skipulögð þannig að hver og einn getur hjólað á sínum hraða. Auk þess er fræðslu um hjólið og góða hjólatækni blandað inn í ferðalagið ásamt fróðleik um svæðið sem ferðast er um. Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól og vera með heilhjálm með kjálka (fullface hjálm) og hjólabrynju. Skráðir þátttakendur fá tölvupóst með ítarlegum upplýsingum og búnaðarlista í aðdraganda ferðar. Fararstjóri er Helga María Heiðarsdóttir.
  • Undir Matterhorn. Snarganga

    80.000 kr.334.000 kr.
    Átta dýrðardagar á stórbrotnum fjallastígum 22. - 29. ágúst Ferðast um eitt mikilfenglegasta svæði Alpanna, fjallasalina sem liggja um hið heimsfræga Matterhorn, fjallið sem stundum er kallað Toblerone-fjallið, enda er súkkulaðið mótað eftir þríhyrndri lögun fjallsins! Í þessari ferð er gengið á milli vinalegra og vel útbúinna fjallaskála og m.a. gengið á hæsta Alpatindinn sem hægt er að sækja heim án sérstaks háfjallaútbúnaðar, 3.600 metra yfir sjávarmáli. Við reynum okkur líka við auðvelda klettagönguleið (via ferrata), dáumst að umhverfinu speglast í blátærum fjallavötnum og böðum okkur að sjálfsögðu í einu þeirra, göngum yfir lengstu hengibrú í Ölpunum, ferðumst í kláfum og úðum í okkur svissnesku súkkulaði og bráðnum osti á meðan við fræðumst um sviplega fjallgöngusögu héraðsins og kapphlaupið um hver yrði fyrstur upp á Matterhorn. Við köllum þennan ferðamáta snargöngu, sem er íslenskun á fyrirbærinu fast hiking og liggur á milli hefðbundinnar fjallgöngu og fjallahlaups. Í snargönguferðum er verið að njóta náttúrunnar og hraði er ekki takmark í sjálfu sér. Hins vegar er gengið í léttum utanbrautahlaupaskóm en ekki gönguskóm og leitast við að ferðast með eins léttan bakpoka og kostur er auk þess sem stundum er valhoppað við fót, því Sviss er jú heimaland sjálfrar Heidi :) Hópurinn hittist á flugvellinum í Genf og ferðast saman í lest inn í Rhonedalinn, þaðan sem farið er með lítilli rútu upp í enn þrengri háfjallasal. Þar hefst svo gangan strax síðdegis á því að gengið er stuttan spöl upp í fyrsta fjallaskálann. Ferðin tekur í heild átta daga og þar af er gengið um stórkostlega fjallastíga í sjö daga. Dagleiðirnar eru um 10-13 km langar og oftast gefst tækifæri til að borða góðan hádegismat í skálum á leiðinni. Eftir því sem líður á ferðina, færist Matterhornið stöðugt nær og síðustu þrjá dagana er varla hægt að komast úr sporunum fyrir óviðjafnanlegu útsýni og fjallafegurð. Okkar mottó er að það eigi alltaf að ljúka svona fjallaskálaferðum með góðu dekri. Hópurinn endar því í miklum vellystingum á lúxushóteli í Zermatt, þar sem hægt er að láta ferðaþreytuna líða úr sér í heitum nuddpotti á meðan sólin sest á bak við fjallið fagra. Ef fólk hefur tök á því, þá mælum við heilshugar með því að framlengja dvölinni í Zermatt um nokkra daga. Þar eru frábærir fjallahjólastígar, klettagönguleiðir og endalaus tækifæri til frekari útivistar. En svo má líka bara liggja í leti, nuddi og dekri :) Daglegur farangur er ekki trússaður á milli skála, enda liggja þeir flestir langt utan akvega og alfaraleiða. Í upphafi ferðar, þ.e. á flugvellinum í Genf, eru töskur þátttakenda hins vegar sendar til Zermatt, svo að þar gefst tækifæri til að klæða sig í spariföt fyrir síðustu kvöldmáltíðina. Ferðin er skipulögð með þeim hætti að fólk getur flogið frá Íslandi til Genfar sama dag og ferðin hefst, þ.e. 22. ágúst og jafnframt náð flugi heim frá Sviss daginn sem ferðinni lýkur, þ.e. 29. ágúst. Athugið að líka er hægt að fljúga til og frá Zurich eða Milano, allt eftir því sem hentar best. Hafið samband ef spurningar vakna. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni sem kostar 334 þúsund er lestarferð til og frá Genf í upphafi og lok ferðar, skutl með rútu að upphafsstað göngunnar, gisting í sjö nætur, þar af fimm í fjallaskálum, ein á fjallahóteli og ein á lúxushóteli. Kvöldmatur öll kvöld nema tvö. Morgunmatur alla morgna og nesti þá daga sem ekki gefst tækifæri til að stoppa í hádegismat. Flutningur á farangri til Zermatt, far með kláfum, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Athugið að flug til og frá Sviss er ekki innifalið í verði. Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 80.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
  • Ein flottasta hjóladagleið landsins 13. september Gamli Kjalvegur, þjóðleiðin frá Hveravöllum niður að Hvítárvatni, er hreint út sagt stórkostleg hjólaleið og hentar fullkomlega sem góð dagleið fyrir rafmagnsfjallahjól, alls um 45 km. Hjólað er á alls konar undirlagi. Á malarvegum, yfir helluhraun, um sandorpin svæði og á vel þjöppuðum moldargötum á milli angandi lyngbreiða svo eitthvað sé nefnt. Í þessari ferð er hvorki mikið klifur né downhill en við þorum hins vegar að fullyrða að einhver flottasta náttúrulega flæðihjólabraut landsins sé að finna á þessu svæði. Komdu með og upplifðu flæðið! Útsýnið er frábært. Við hjólum í hálfhring um Hrútfellið fallega, með Langjökul á aðra hönd, meðfram farvegi Fúlukvíslar, um svipmikil hraun og stórkostleg gljúfur. Að auki er þetta gríðarlega sögfrægt svæði. Hér eru slóðir Reynisstaðabræðra, Fjalla Eyvindar og Höllu auk margs konar hyskis, bæði þessa heims og annars og nóg af skemmtilegum sögum til að rifja upp. Lagt er af stað úr Reykjavík kl. 8 á laugardagsmorgun og gera þarf ráð fyrir að ferðin taki allan laugardaginn og fram á kvöld. Stefnt er að því að enda ferðina á góðri útigrillveislu áður en ekið verður aftur til Reykjavíkur. Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól. Ekki er verra ef þátttakendur eru með heilhjálm með kjálka (fullface hjálm) og hjólabrynju. Allir þurfa að auki að taka með viðgerðardót og gott nesti í bakpoka. Skráðir þátttakendur fá tölvupóst með ítarlegum upplýsingum um alla ferðatilhögun og búnaðarlista í aðdraganda ferðar. Fararstjóri er Brynhildur Ólafsdóttir.
  • Úti 101

    32.000 kr.

    Næsta námskeið hefst 2. september

    Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, maí og september. Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar. Æfingarnar fara fram á útivistarsvæðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, svo sem í Elliðaárdal, Öskjuhlíð og Laugardal en líka er gengið á lægri fjöll í nágrenni Reykjavíkur svo sem upp á Mosfell og Úlfarsfell og víðar.
    Dagskrá námskeiðsins
    • Kynningarfundur 26. ágúst kl. 20:00
    • Alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30
    • Lengri æfingar aðra hvora helgi, kl. 9:30
      • Sunnudaginn 7. sept
      • Sunnudaginn 21. sept
      • Sunnudaginn 5. okt
    Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeið Úti 102. Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftaræfingu þar sem áfanganum er fagnað. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal ásamt Helgu Maríu Heiðarsdóttur.
  • Fjögurra mánaða æfingahópur fyrir stráka sem vilja koma sér af stað í hreyfingu og útivist.  Haldið einu sinni á ári og hefst í september. Hreyfinga- og ævintýrabræðralag fyrir stráka á öllum aldri sem vilja koma sér í og viðhalda góðu formi. Markmið hópsins er ná og tryggja líkamlega getu; þol, þrek, jafnvægi og liðleika fyrir útivist og ævintýri. Æfingaáætlunin byggir á fjölbreyttri hreyfingu og útivist í lokuðum hópi fyrstu vikurnar en svo taka við æfingar með æfingahópi Útihreyfingarinnar sem æfir tvisvar til þrisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og aðra hvora helgi, til skiptis á laugardögum og sunnudögum kl. 9:30. Þátttakendur taka fyrstu skrefin inn í nýjan lífsstíl þar sem hreyfing og útivera í samfélagi við aðra er megininntakið. Markmiðið er að koma sér í það form að geta æft með stærri hópum, gengið á fjöll, hlaupið, hjólað, synt og farið í sjóinn. Sameiginlegar göngur og styrktaræfingar ásamt hreyfingaáætlun þar sem áhersla er á stuttar daglegar göngur á virkum dögum. Í hádeginu alla miðvikudaga er hist í sjósundi í Nauthólsvík. Persónulegt upphafsviðtal og eftirfylgni ásamt fyrirlestrum um hreyfingu, mataræði og markmiðasetningu. Aðgangur að sjóbaðsaðstöðunni í Nauthólsvík er ekki innifalinn í verði. Hægt er að greiða fyrir þátttökuna í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Umsjón með námskeiðinu hefur Róbert Marshall. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsingapóst í aðdraganda námskeiðs.
  • Útigengið

    42.000 kr.
    NÆSTI HÓPUR HEFUR GÖNGUR SÍNAR Í SEPTEMBER Fyrir öll sem elska fjöll og vilja nýta náttúruna til líkamsræktar Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni, kynnast nýjum stöðum, bæta við færni sína á fjöllum, eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum. Dagskráin er fjölbreytt og áhersla á stuttar til meðallangar fjallgöngur. Síðasta vor leit dagskrá Útigengisins svona út: Gengið er á sunnudögum, tvær helgar í mánuði og flestar göngurnar taka 3-5 klst. Þátttakendum gefst þó einnig tækifæri til að ganga sig í form fyrir erfiðari og flóknari göngu því haldið er á Eyjafjallajökul í lok apríl þar sem reynir meira á færni og form.  Útigengið er einnig tilvalin æfingahópur fyrir lengri göngur að vori eins og til dæmis á Hrútsfjallstinda. Síðasta Dagskrá
    • 19. jan. Helgafell í Hfj.
    • 2. feb. Mosfellsbæjarfjöll hringleið
    • 23. feb. Esjuhringur
    • 9. mar. Geirmundartindur í Akrafelli. Hægt að kaupa sem staka ferð
    • 23. mar. Stóra Kóngsfell, Drottning og Eldborg. Hægt að kaupa sem staka ferð
    • 6. apr. Hellutindar/Stapatindar
    • 26. apr. Eyjafjallajökull. Hægt að kaupa sem staka ferð
    • 11. maí. Vífilsfell
    Athugið að ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags. Þátttaka í Útigenginu eftir áramót kostar 42.000 kr. sem felur í sér 8 göngur frá janúar fram í maí. Þátttakendur njóta sérstakra afsláttarkjara Útihreyfingarinnar. Umsjónarmenn Útigengisins eru öll vanir leiðsögumenn Útihreyfingarinnar Skráðir þátttakendur fá upplýsingapóst í aðdraganda námskeiðsins.
  • Úti 102

    22.900 kr.

    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í LOK OKTÓBER Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig; hlaupa lengra, fara hærra á fjöllum, og vera aðeins lengur ofan í sjónum. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

    Dagskrá námskeiðsins
    • Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Tvær lengri helgaræfingar.
    Á Úti 102 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem vilja halda áfram að hreyfa sig, koma sér aftur af stað í útihreyfingu.
    Námskeiðið kostar 22.900 kr. og umsjón með því hefur Kristín Ýr Lyngdal.
  • Námskeið í vetrarferðalögum Bóklegt 21. jan og verklegt 31. jan - 1. feb Þátttakendur læra og æfa það helsta sem kunna þarf til að geta ferðast með öruggum hætti á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) um ótroðnar slóðir íslenskra óbyggða. Námskeiðið skiptist annars vegar í rafrænt fræðslukvöld í gegnum Zoom og hins vegar æfingaferð í nágrenni Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að reyna sig í krefjandi en öruggum vetraraðstæðum. Á fræðslukvöldinu verður m.a. farið yfir hvaða útbúnað þarf til vetrarferðalaga á skíðum, hvernig tjöld, dýnur, svefnpoka og sleða / púlku best er að nota, þau öryggisatriði sem þarf að hafa í huga, hvernig á að velja tjaldstað og tjalda í snjó, hita vatn og næra sig, halda á sér hita og útbúa klósett! Á síðari hluta námskeiðsins er svo komið að því að nota þekkinguna í alvöru vetrarferðalagi. Gengið er á skíðum á laugardagsmorgni með farangurinn í eftirdragi og tjaldbúðir settar upp í snjó. Á leiðinni er skíðatæknin æfð, upp og niður brekkur sem og hliðrun í brattlendi. Hópurinn lærir og æfir að auki grunnatriði í leiðavali og rötun ásamt því hvernig á að moka út neyðarskýli í snjó og fleira. Áfangastaðurinn þessa æfingahelgi skiptir minna máli en ferðalagið sjálft og fer alfarið eftir snjóalögum og færð. Þó er stefnt að því að halda sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið kostar 58.000 kr og innifalið í verði er öll kennsla og æfingar, búnaðarfundur, leiðsögn og utanumhald.
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 30. apríl - 7. maí Stórkostlegur vikulangur leiðangur þar sem sjálfur konungur jöklanna, Vatnajökull, er genginn endilangur á ferðaskíðum. Svona leiðangrar verða jafnan eitt af stærstu ævintýrunum í lífi hverrar manneskju. Við lofum ógleymanlegu, valdeflandi og krefjandi ferðalagi, fyrir bæði líkama og sál. Þátttakendur ganga á svokölluðum ferðaskíðum (utanbrautargönguskíðum með stálköntum) og draga púlkur / sleða með öllum farangrinum á eftir sér. Gist er í tjöldum á jöklinum í fjórar nætur en eina nótt í skála á Grímsfjalli. Gert er ráð fyrir að jöklagangan sjálf taki 6-7 daga en nokkrir dagar eru hafðir til vara ef hópurinn þarf að hafast við á jöklinum og bíða af sér veður og jafnframt til að gera ráð fyrir ferðalögum til og frá jökli. Það fer eftir færð og veðri í aðdraganda ferðar hvort gengið verður frá austri til vesturs eða frá vestri til austurs. Leiðangurinn hefst því annað hvort við Jöklasel á Skálafellsjökli við suðurbrún Vatnajökuls eða upp frá Jökulheimum undir Tungnaárjökli við vesturbrún jökulsins. Ógnarfegurð, alger kyrrð og mikil núvitund felst í svona löngu ferðalagi yfir jökul. Fegurðin getur stundum verið yfirþyrmandi. Rósrauð sólris og sólsetur einkenna jökulinn og á leiðinni gefst stórkostlegt útsýni á marga af hæstu tindum landsins. Oft er þó líka gengið í hrímþoku eða algerri hvítablindu sem reynir á skilningarvitin á allt annan hátt. Þegar ferðalagið er nokkurn veginn hálfnað, nánast á miðjum jöklinum, er komið á Grímsfjall við Grímsvatnaeldstöðina. Þar bíður vistlegur skáli Jöklarannsóknarfélagsins eftir göngufólkinu, hlýr og notalegur. Í skálanum er hægt að kjarna sig, elda dýrindismat, þurrka föt ef á þarf að halda og síðast en ekki síst láta þreytuna líða úr sér í goðsagnakenndu jöklagufubaði! Heildarvegalengd leiðangursins er 130 km og gert er ráð fyrir að hópurinn skíði 20-25 km á hverjum degi, eftir færð og veðri. Þetta er krefjandi ferð sem hentar vönu ferðafólki með reynslu af vetrarferðalögum eða fólki sem ætlar að nota veturinn fyrir leiðangurinn til að læra og æfa sig. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og námskeiðið Ferðast á gönguskíðum, en hvoru tveggja verður á dagskrá í janúar 2026. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska (sem er líka alltaf á dagskrá Útihreyfingarinnar á vormánuðum) eða sambærilegt. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist töluvert og kynnist fyrir ferð og æfi sig að einhverju leyti saman, en stungið verður upp á sameiginlegum ferðum og æfingum í aðdraganda leiðangursins. Brynhildur Ólafsdóttir og Helga María Heiðarsdóttir leiða ferðina en báðar eru mjög reynslumiklar og hafa leiðsagt fjölmargar ævintýraferðir, bæði hérlendis og erlendis. Þær eru með gilt Wilderness First Responder skírteini og hafa lokið réttindanámi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna (AIMG), bæði í fjalla- og jöklaleiðsögn. Ferðin kostar 265.000 kr. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið í verðinu er gisting í eina nótt á Grímsfjalli, far með jepparútum til og frá Reykjavík og að og frá jökli, nokkrir undirbúningsfundir, aðstoð með búnað, næringu, æfingaáætlun og pökkun, ein óveðursútilega í aðraganda ferðar ásamt leiðsögn og utanumhaldi í sjálfum leiðangrinum. Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.

Title

Go to Top