• Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar Þriggja ára stórbrotið ferðalag Jöklafarar er heitið á nýrri áskorun Útihreyfingarinnar þar sem þátttakendur ganga á ferðaskíðum þvert yfir sex stærstu jökla landsins, þ.e. Eyjafjallajökul, Drangajökul, Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Langjökul og Vatnajökul. Markmiðið er ekki að fara upp á hæsta tind hvers jökuls fyrir sig, þ.e. fram og til baka, heldur að skíða þvert yfir jöklana þannig að endað sé á öðrum stað en ferðin hófst. Hægt er að klára áskorunina á eigin hraða, þ.e. á eins skömmum eða löngum tíma og hentar hverjum og einum. Hins vegar skipuleggur Útihreyfingin verkefnið og mælir með því að það sé klárað á alls þremur árum frá upphafi til enda, þannig að byrjað sé á æfingum á ferðaskíðum og minni jöklum áður en ráðist er í flóknari og lengri ferðir og jöklaútilegur. Í hnotskurn Við mælum með því að þau sem hafa enga reynslu og eru að byrja frá grunni, hefji vegferðina með því að læra á ferðaskíði þ.e. utanbrautargönguskíði með stálköntum og æfa sig svo vikulega nágrenni Reykjavíkur með Úti ferðaskíðahópnum. Að auki þurfa óvanir að taka kvöldnámskeið þar sem kennd er línuhegðun á jökli og notkun á jöklabroddum og ísöxi. Fyrsta árið er frábært að stefna að því að þvera einn eða alla af þessum þremur jöklum: Drangajökul, Eyjafjallajökul og Langjökul. Þessa jökla er hægt að þvera hvern um sig á einum löngum skíðadegi og því þarf ekki að gista í tjaldi á jökli þetta fyrsta árið. Annað árið mælum við með námskeiðinu Ferðast á gönguskíðum þar sem þátttakendur læra öll trixin við að ferðast með púlku í eftirdragi og tjalda í snjó auk þess sem farið er í æfingaútilegu til að þjálfa handtökin. Að vori er síðan hægt að halda í 3-4 daga ferðir á Hofsjökul annars vegar og Mýrdalsjökul hins vegar. Síðasta árið er svo komið að konungi íslenskra jökla, sjálfum Vatnajökli. Það er ferðalag sem tekur heila viku og þarfnast góðs undirbúnings og æfinga. Ekki aðeins þurfa þátttakendur að vera í góðu líkamlegu formi og þekkja búnaðinn sinn vel, heldur er líka nauðsynlegt að undirbúa hausinn fyrir átökin og langa daga á jökli. Að lokum fá þátttakendur viðurkenningarskjal og heiðursnafnbótina Jöklafari og eru þá komnir með fullan og óskoraðan rétt til að grobba sig á alla jöklakanta, jafnvel á alþjóðavettvangi 🙂 Síðasta tækifærið? Markmið þessa verkefnis er þó ekki eingöngu að vera þátttakendum til skemmtunar og áskorunar. Með frásögnum af ferðunum í máli og myndum, viljum við líka vekja athygli almennings, heima og erlendis, á hraðri bráðnun jöklanna af völdum loftslagshlýnunar. Myndum leiðangursmanna verður m.a. safnað á sameiginlega myndasíðu á samfélagsmiðlum undir samheitinu #lastoftheglaciers eða síðustu jöklarnir. Hópurinn reynir þannig að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að okkar kynslóð verði ekki síðasta kynslóðin sem nýtur þess að ferðast á skíðum um jökla landsins. Skráning Athugið að hvorki er nauðsynlegt að klára áskorunina í ofangreindri röð né á þremur árum. Ef fólk er vant því að ferðast á skíðum þá er hægt að raða jöklaferðunum saman á hvern þann hátt sem hentar og jafnvel byrja á Vatnajökli! Að auki geta þeir sem þegar eru búnir að þvera einhverja jökla auðvitað líka verið með og bætt í safnið. Til að taka þátt þarf aðeins að skrá sig til leiks með því að smella hér. Í kjölfarið verður þér boðið inn í sérstakan FB hóp allra þátttakanda og ævintýrið hefst. Hér að neðan setjum við jafnóðum inn linka inn á viðeigandi jöklaferðir og undirbúningsnámskeið auk ferða sem hægt er að nýta til að æfa skíðatæknina og handtökin. JÖKLAFERÐIR 2026 Eyjafjallajökull. Ný dagsetning fljótlega Drangajökull. Ný dagsetning fljótlega Vatnajökull. 30. apríl - 7. maí. Langjökull. Ný dagsetning fljótlega Mýrdalsjökull. Á dagskrá 2026 Hofsjökull. Á dagskrá 2026 UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ 2026 Úti ferðaskíði. Námskeið og æfingahópur. Ný dagsetning fljótlega Ferðast á gönguskíðum. Námskeið og útilega. 21. jan. og 31. jan-1. feb. Vetrarfjallamennska. Grunnnámskeið. Ný dagsetning fljótlega ÆFINGAFERÐIR 2025. Ferðir 2026 detta fljótlega inn Norðurljósaganga á ferðaskíðum. Kvöldganga. 18. jan. Ferð er lokið Þingvellir. Dagsferð. 8. feb. Ferð er lokið Undir Tröllakirkju. Púlkuferðalag. 15.-16. feb. Ferð er lokið Yfir Snæfellsnes. Dagsferð. 22. feb. Ferð er lokið Tvídægra. Skíðað á milli skála. 28. feb-2. mars. Ferð er lokið Ok. Dagsferð. 15. mars. Ferð er lokið Jötunheimar í Noregi. Skíðað á milli skála. 20.-25. mars. Ferð er lokið
  • Fyrir öll sem elska fjöll og vilja nýta náttúruna til líkamsræktar Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni, kynnast nýjum stöðum, bæta við færni sína á fjöllum, eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum. Haustdagskráin er fjölbreytt. Áhersla er lögð á góða blöndu af kunnuglegum fjöllum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og fjöllum sem eru sjaldfarnari og krefjast aðeins lengri aksturs.  Gengið er á laugardögum, tvær helgar í mánuði og flestar göngurnar taka 3-6 klst. Hópurinn er farinn af stað en hægt er að kaupa sig inn í stakar göngur á 6,500 kr með því að smella á hverja göngu hér fyrir neðan. Næstu göngur með Útigenginu Athugið að ef veður hamlar för á laugardegi, getur verið að göngu verði seinkað til sunnudags. Umsjónarmenn Útigengisins eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall ásamt öðru leiðsögufólki Útihreyfingarinnar. Skráðir þátttakendur fá upplýsingapóst í aðdraganda göngu.
  • Úti 102

    22.900 kr.

    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í LOK OKTÓBER Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig; hlaupa lengra, fara hærra á fjöllum, og vera aðeins lengur ofan í sjónum. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

    Dagskrá námskeiðsins
    • Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 Tvær lengri helgaræfingar.
    Á Úti 102 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem vilja halda áfram að hreyfa sig, koma sér aftur af stað í útihreyfingu.
    Námskeiðið kostar 22.900 kr. og umsjón með því hefur Kristín Ýr Lyngdal.
  • Fjórar þrautir: Ferðaskíði. Fjallganga. Fjallahjól. Sundhlaup Æfingar hefjast 2. nóv. Útinaglinn er ný útivistar- og ævintýraáskorun, hönnuð fyrir þau sem vilja sameina útivist og þol, halda sér í formi og stíga örlítið út fyrir þægindarammann í þéttum og skemmtilegum félagsskap. Þetta er ferðalag í fjórum áföngum því þátttakendur taka þátt í fjórum mismunandi þrautum yfir árið. Árið 2026 eru það ferðaskíði, fjallganga, fjallahjól og sundhlaup. Þau sem klára allar fjórar þrautir ársins fá heiðursnafnbótina Útinaglinn 2026. Á hverju ári verða svo nýjar áskoranir og þrautir á nýjum slóðum, því markmiðið er að halda sér í frábæru útivistarformi með því að hafa alltaf skemmtileg, krefjandi og fjölbreytt verkefni til að stefna að. Útinaglaþrautirnar eru ekki keppnir, heldur alvöru útivistaráskoranir. Þetta eru ólíkar áskoranir en allar krefjast bæði úthalds og þrautseigju þar sem þú sjálf/ur ert þinn eini keppandi. Í leiðinni kynnistu nýju fólki, nýjum stöðum, lærir eitthvað nýtt, styrkir þig og bætir og færð mögulega nýja sýn á þig og þína getu! Naglaþrautir 2026 11. apríl. Ferðaskíði um Tröllakirkju Einn dagur. 10., 11. eða 12. apríl* Skíðað umhverfis Tröllakirkju á Holtavörðuheiði. 32 km Ekið samdægurs til og frá Rvk 23. maí. Fjallganga á Þverártindsegg Einn dagur. 22., 23. eða 24. maí* Jöklaganga á Þverártindsegg. 17 km Gist í Öræfum á eigin vegum 20. júní. Fjallahjól að Fjallabaki Einn dagur. 19., 20. eða 21. júní* Hjólað frá Landmannahelli í Hvanngil. 53 km Gist að Fjallabaki á eigin vegum 18. júlí. Sundhlaup í Gufunesi og Viðey** Einn dagur. 17., 18. eða 19. júlí* Hlaupið í Gufunesi. 2 km Synt frá Gufunesi í Viðey. 750 m Hlaupið í Viðey. 4,5 km Synt frá Viðey í Gufunes. 750 m Hvernig virkar þetta?
    • Árið 2026 er prufukeyrsla og aðeins 40 pláss í boði
    • Þátttaka í öllum fjórum Naglaþrautunum kostar 128 þúsund og þátttakendur skrá sig skuldbindandi inn í allar fjórar þrautirnar í einu lagi
    • Ef hópurinn fyllist ekki, er mögulegt að selt verði inn í stakar þrautir
    • Æfingar og undirbúningur fyrir þrautirnar fara fram í Útiræktinni og þátttakendur þurfa því að vera áskrifendur í aðdraganda þrautanna
    • Fyrsta formlega æfingin fyrir Útinaglann verður 2. nóvember, en hægt er að slást í hópinn til áramóta, ef pláss leyfir
    Vertu með frá upphafi og komdu þér í frábært útivistarform til að geta tekist á við öll þau dásamlegu útivistarævintýri sem íslensk náttúra býður upp á. Skráning hér að neðan!   *Athugaðu að við tökum þrjár dagsetningar frá fyrir hverja þraut. Stefnt er að því að halda þær allar á laugardegi, en ef veðrið er ekki að spila með, þá eru föstudagar og sunnudagar hafðir til vara. Ef veður er ekki hagstætt alla þessa þrjá daga, þá reynum við að flytja þrautina á milli landshluta. Og ef svo ólíklega vill til að það verði óveður um allt land, þá finnum við nýja dagsetningu fyrir uppbótarþraut, innan ársins. **Sundhlaup, hvað er nú það? Þetta er íþrótt sem rekur rætur sínar til fjögurra vina sem skoruðu hvert á annað að synda og hlaupa um 75 km leið í sænska skerjagarðinum. Og já, þau voru víst dálítið við skál þegar þetta var ákveðið :) Hér eru flottar upplýsingar frá áströlsku sundhlaupssamtökunum. Annars höldum við hjá Útihreyfingunni að mögulega sé þetta í fyrsta sinn sem sundhlaupsþraut er sett á dagskrá á Íslandi!
  • Dagsferð í núvitund 14. desember Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum þriðja sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar. Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað! Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti. Lagt er af stað skömmu fyrir ljósaskiptin eða kl. 14:30 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna. Ferðin er ókeypis fyrir þá sem æfa með Útihreyfingunni í Útiræktinni. Aðrir greiða 14.900 þúsund kr. og fara í gegnum kaupferlið hér að neðan. Allir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Úti 101

    32.000 kr.

    Næsta námskeið hefst í janúar 2026

    Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, maí og september. Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar. Æfingarnar fara fram á útivistarsvæðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, svo sem í Elliðaárdal, Öskjuhlíð og Laugardal en líka er gengið á lægri fjöll í nágrenni Reykjavíkur svo sem upp á Mosfell og Úlfarsfell og víðar.
    Dagskrá síðasta námskeiðs
    • Kynningarfundur 26. ágúst kl. 20:00
    • Alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30
    • Lengri æfingar aðra hvora helgi, kl. 9:30
      • Sunnudaginn 7. sept
      • Sunnudaginn 21. sept
      • Sunnudaginn 5. okt
    Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeið Úti 102. Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftaræfingu þar sem áfanganum er fagnað. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal.
  • Stutt upphafsnámskeið á brautarskíðum 5. - 10. janúar Allir geta gengið á skíðum og allir ættu að læra þessa frábæru íþrótt sem reynir á allan líkamann og eykur úthald, þol og styrk. Við hjá Útihreyfingunni höldum því fram að hvort sem fólk stefni á frama og verðlaunapalla í skíðagöngukeppnum eða þverun jökla á ferðaskíðum með púlkur í eftirdragi, þá þurfi allir að byrja á því að læra undirstöðutæknina í skíðagöngu í braut. Grunntæknina verður að læra í spori áður en sá lærdómur er yfirfærður yfir á ferðaskíðin, þannig að fólk geti byrjað að láta skíðin vinna fyrir sig og svífi áfram í staðinn fyrir að þramma! Þetta námskeið er því bæði hugsað fyrir byrjendur á brautarskíðum sem og þá sem hafa hingað til aðeins gengið á ferðaskíðum en vilja bæta tæknina. Þetta er líka frábært upphafsnámskeið fyrir skíðavertíðina, þ.e. fyrir þá sem þegar kunna eitthvað á brautarskíðum, en þurfa að rifja upp grunntæknina og taktana! Námskeiðið hefst á rafrænum fræðslufundi þar sem fjallað er um hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að búnaði, hver er munurinn á mismunandi skíðategundum, skíðaskóm og stöfum og hvernig á að klæða sig þegar gengið er á skíðum í spori. Á fyrstu æfingunni er svo komið að því að læra á búnaðinn, hvernig á að spenna á sig skíðin, hvernig best er að detta (því allir detta!) og taka fyrstu skíðagöngusveifluna :) Fyrstu þrjár æfingarnar eru skipulagðar dag eftir dag en einmitt með því að láta ekki of langan tíma líða á milli æfinga í upphafi, nær fólk mestum árangri og framförum. Lögð er megináhersla á að allir þátttakendur læri taktinn og nái tökum á vanaganginum, þ.e. klassíska sporinu í skíðagöngunni með alls konar tækniæfingum og leikjum. Að auki fá þátttakendur grunnkennslu í öðrum skíðagöngusporum svo sem ýtingum, ýtingum með frásparki, síldarbeinagangi upp brekkur og æfingu í því að renna niður brekkur. Hver kennslustund tekur um 2 klukkustundir og kennsla fer fram á skíðagöngusvæðinu í Bláfjöllum. Aðgangur að svæðinu er ekki innifalinn í verði. Dagskrá námskeiðsins
    • Mán. 5. jan. Kl. 20. Fræðslufundur
    • Þri. 6. jan. Kl. 18
    • Mið. 7. jan. Kl. 18
    • Fim. 8. jan. Kl. 18
    • Lau. 10. jan. Kl. 10
    Athugið að veður og snjóalög setja mjög oft strik í reikninginn þegar kemur að lagningu skíðaspora og því gæti þurft að hliðra kennslunni til um einhverja daga. Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja brautargönguskíði, gönguskíðaskó og stafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Everest. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, þrautreynt skíðagöngufólk með réttindi. Námskeiðið kostar 28 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins. Umsagnir
    • Ég hef áður farið á helgarnámskeið en fagmennskan hér er framúrskarandi í samanburði.
    • Gleði og þolinmæði kennaranna er áberandi.
    • Gott að geta klárað þetta á stuttum tíma í stað þess að draga þetta yfir nokkrar vikur.
    • Námskeiðið er vel upp byggt og frábært að blanda leikjum saman við tækniæfingar.
    • Skilvirkar æfingar, ég náði miklum framförum á fáum skiptum.
    • Frábært námskeið og rosa gaman.
    • Allt skemmtilegt og gaman að brjóta kennsluna upp með leikjum.
  • Stutt ferðaskíðanámskeið fyrir byrjendur 12. - 17. janúar Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái að kynnast ferðaskíðum / utanbrautarskíðum og þessum frábæra ferðamáta sem sameinar skíðagöngu, náttúruupplifun og vetrargleði. Þetta er stutt, snarpt en hagnýtt námskeið þar sem þú fræðist um muninn á mismunandi búnaði, lærir á skíðin og skinnin, kynnist grunntækni í beitingu skíðanna og hvernig við skíðum örugglega og áreynslulaust á mismunandi undirlagi. Við byrjum rólega, lærum á skíðin, bindingarnar og skinnin og tökum svo fyrstu skrefin í brekkum og hliðarhalla, mismunandi færi og í fjölbreyttu landslagi. Námskeiðið samanstendur af rafrænum fræðslufundi og tveimur skíðaæfingum sem taka um 2 klst hvor. Staðsetning æfinganna fer eftir snjóalögum og færð, en reynt er að miða við að ekki taki meira en 30-40 mínútur að aka frá Reykjavík á æfingastaðinn. Dagskrá námskeiðsins
    • Mán. 12. jan. Kl. 20. Rafrænn fræðslufundur
    • Mið. 14. jan. Kl. 18. Æfing
    • Lau. 17. jan. Kl. 10. Æfing
    Í kjölfar námskeiðsins býðst þeim, sem vilja halda áfram, að skrá sig í Æfingahópinn Úti ferðaskíði, þar sem við ferðumst meira, heimsækjum fullt af skemmtilegum áfangastöðum, dýpkum tæknina og njótum vetrarins saman. Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Athugaðu að ef þú hefur aldrei gengið á gönguskíðum, þá er gott að byrja á því að læra á brautarskíði, áður en þú færir þig yfir á ferðaskíðin. Sjá t.d. námskeiðið Úti brautarskíði.  Leiðbeinendur eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.
  • Úti ferðaskíði. Æfingahópur

    Price range: 28.000 kr. through 35.000 kr.
    Æfingaferðir á utanbrautarskíðum 17. janúar - 25. mars Eitt aðalmarkmið æfingahópsins er að þátttakendur læri vel á ferðaskíðin og skinnin og alla tækni við beitingu skíðanna. Brekkur upp. Brekkur niður. Hliðarhalli. Mismunandi snjóalög, færi og undirlag. Allt þarf að læra á og æfa sig í að gera. Í öðru lagi finnst okkur alltaf gaman að ganga á skíðum á nýjum stöðum. Við viljum því nota tækifærið til að kynna hópinn fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum skíðaáfangastöðum í nágrenni Reykjavíkur. Og ekki er verra ef svæðið geymir einhverja sögu sem hægt er að fræðast um. Síðast en ekki síst viljum við í sameiningu skapa fallegan félagsskap fólks sem nærist á skemmtilegri samveru og útiveru og nýtur þess að leika sér úti við í öllum veðrum. Þetta er, og á alltaf að vera, BARA GAMAN :) Hópurinn hittist alls sex sinnum. Fyrsta æfingin er á laugardegi en næstu fimm kl. 18 á miðvikudögum. Allar æfingarnar eru í nágrenni Reykjavíkur og reynt verður að miða við að aldrei taki lengri tíma en um 40 mínútur að aka á upphafsstað göngunnar. Göngurnar sjálfar taka svo að meðaltali 1.5-2.5 klst. Dagskrá
    • Lau. 17. jan. Kl. 11
    • Mið. 28. jan. Kl. 18
    • Mið. 11. feb. Kl. 18
    • Mið. 25. feb. Kl. 18
    • Mið. 11. mar. Kl. 18
    • Mið. 25. mar. Kl. 18
    Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Leiðbeinendur og fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins. Þátttaka í æfingahópnum kostar 35 þúsund kr. en 28 þúsund kr. fyrir þau sem æfa með Útiræktinni.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Námskeið í vetrarferðalögum Bóklegt 21. jan og verklegt 31. jan - 1. feb Þátttakendur læra og æfa það helsta sem kunna þarf til að geta ferðast með öruggum hætti á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) um ótroðnar slóðir íslenskra óbyggða. Námskeiðið skiptist annars vegar í rafrænt fræðslukvöld í gegnum Zoom og hins vegar æfingaferð í nágrenni Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að reyna sig í krefjandi en öruggum vetraraðstæðum. Á fræðslukvöldinu verður m.a. farið yfir hvaða útbúnað þarf til vetrarferðalaga á skíðum, hvernig tjöld, dýnur, svefnpoka og sleða / púlku best er að nota, þau öryggisatriði sem þarf að hafa í huga, hvernig á að velja tjaldstað og tjalda í snjó, hita vatn og næra sig, halda á sér hita og útbúa klósett! Á síðari hluta námskeiðsins er svo komið að því að nota þekkinguna í alvöru vetrarferðalagi. Gengið er á skíðum á laugardagsmorgni með farangurinn í eftirdragi og tjaldbúðir settar upp í snjó. Á leiðinni er skíðatæknin æfð, upp og niður brekkur sem og hliðrun í brattlendi. Hópurinn lærir og æfir að auki grunnatriði í leiðavali og rötun ásamt því hvernig á að moka út neyðarskýli í snjó og fleira. Áfangastaðurinn þessa æfingahelgi skiptir minna máli en ferðalagið sjálft og fer alfarið eftir snjóalögum og færð. Þó er stefnt að því að halda sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið kostar 58.000 kr og innifalið í verði er öll kennsla og æfingar, búnaðarfundur, leiðsögn og utanumhald.
  • Himneskir Jötunheimar. Ferðaskíði

    Price range: 80.000 kr. through 297.000 kr.
    Skíðað á milli skála í Noregi 19.-24. mars Við höldum áfram að kanna ný svæði í Jötunheimum í Noregi, sem líkja má við Fjallabak okkar Íslendinga. Þetta stórkostlega fjallahérað er eitt vinsælasta útivistarsvæði Norðmanna, umkringt jöklum og hæstu fjöllum landsins. Á milli fjallanna liggja stór og mikil vötn sem á veturnar bjóða upp á sannkallaðar himnabrautir fyrir skíðafólk á gönguskíðum. Á veturnar er líka aðeins hægt að ferðast um Jötunheima fótgangandi eða á skíðum og það gerum við í þessari ferð því gengið er á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) í alls  fjóra daga og gist í huggulegum, hlýjum og oftast fullþjónustuðum fjallaskálum. Fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Leiðangurinn hefst á lestarferðalagi frá Gardemoen flugvelli í Osló. Haldið er norður í Guðbrandsdal en þaðan er svo ekið með smárútu á fyrsta næturstaðinn, sem er hálfgert fjallakofaþorp sem kúrir undir Galdhøpiggen, hæsta fjalli Noregs. Sá farangur þátttakenda sem ekki verður notaður í skíðaferðinni sjálfri, er hins vegar fluttur á síðasta næturstaðinn. Eftir staðgóðan morgunmat næsta dag hefst skíðaferðalagið sjálft, en þennan dag er gengið á skíðum um 15 km leið í stóran og góðan skála sem liggur nánast í hjarta Jötunheima, umkringdur jöklum og bröttum fjöllum. Næstu tvo daga er svo gengið á skíðunum í þessu stórbrotna umhverfi, yfir frosin og rennislétt fjallavötn og á milli ógurlegra fjalla. Gist er í einum fábrotnum og óþjónustuðum skála á leiðinni en líka í einum stærsta og þekktasta fjallaskála Norðmanna sem hefur verið starfræktur í tæplega 150 ár og státar af glænýju sánabaði með óviðjafnanlegu útsýni. Síðasta skíðadaginn er svo haldið til byggða. Þetta er lengsti dagurinn í kílómetrum talið eða alls um 24 km en allt í góðum skíðasporum á lögðum skíðabrautum. Þennan dag endar hópurinn í einum af okkar uppáhalds gististöðum, rómantísktu sveitasetri með mikla sögu. Þar bíður farangurinn og góður kvöldmatur eldaður úr hráefni frá héraði. Að auki er hægt að fara í sána og heitan pott til að láta ferðaþreytuna líða úr sér eftir átök síðustu daga. Snemma næsta dag sækir smárúta hópinn og ekur honum beint á Gardemoen flugvöllinn í Osló, þaðan sem flogið er heim til Íslands, nú eða hvert á land sem er! Þátttakendur þurfa að hafa einhverja reynslu á gönguskíðum og gott er að undirbúa sig í aðdraganda ferðar með því að taka ferðaskíðanámskeið eða fara í æfingaferðir. Við bendum fólki á að fylgjast vel með úrvalinu hér á vefsíðu Útihreyfingarinnar. Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur fyrir ferð þar sem m.a. verður farið ítarlega yfir búnað og annað skipulag. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni sem kostar 297 þúsund er öll gisting, þ.e. fjórar nætur í fjallaskálum og ein nótt á gistiheimili. Allur matur, utan dagsnesti ferðadagana tvo, þ.e. fyrsta og síðasta daginn. Allar lestar- og smárútuferðir innan Noregs. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Í stóru fjallaskálunum er oftast gist í 2-4ja manna herbergjum og þar er boðið upp á alla mögulega þjónustu, hægt að kaupa drykki og ýmsan smávarning og komast í sturtu. Eina nótt er hins vegar gist í óþjónustuðum skála, þar sem hópurinn eldar sinn mat sjálfur. Flug til og frá Noregs er ekki innifalið, en ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með Icelandair að morgni 19. mars, sama dag og leiðangurinn hefst, lending í Osló um 11:30. Einnig er hægt að fljúga heim til Íslands sama dag og ferðinni lýkur, þ.e. 24. mars, brottför um kl. 13 frá Osló. Staðfestingargjald ferðarinnar er 80.000 kr. og eftirstöðvar eru greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 30. apríl - 7. maí Stórkostlegur vikulangur leiðangur þar sem sjálfur konungur jöklanna, Vatnajökull, er genginn endilangur á ferðaskíðum. Svona leiðangrar verða jafnan eitt af stærstu ævintýrunum í lífi hverrar manneskju. Við lofum ógleymanlegu, valdeflandi og krefjandi ferðalagi, fyrir bæði líkama og sál. Þátttakendur ganga á svokölluðum ferðaskíðum (utanbrautargönguskíðum með stálköntum) og draga púlkur / sleða með öllum farangrinum á eftir sér. Gist er í tjöldum á jöklinum í fjórar nætur en eina nótt í skála á Grímsfjalli. Gert er ráð fyrir að jöklagangan sjálf taki 6-7 daga en nokkrir dagar eru hafðir til vara ef hópurinn þarf að hafast við á jöklinum og bíða af sér veður og jafnframt til að gera ráð fyrir ferðalögum til og frá jökli. Það fer eftir færð og veðri í aðdraganda ferðar hvort gengið verður frá austri til vesturs eða frá vestri til austurs. Leiðangurinn hefst því annað hvort við Jöklasel á Skálafellsjökli við suðurbrún Vatnajökuls eða upp frá Jökulheimum undir Tungnaárjökli við vesturbrún jökulsins. Ógnarfegurð, alger kyrrð og mikil núvitund felst í svona löngu ferðalagi yfir jökul. Fegurðin getur stundum verið yfirþyrmandi. Rósrauð sólris og sólsetur einkenna jökulinn og á leiðinni gefst stórkostlegt útsýni á marga af hæstu tindum landsins. Oft er þó líka gengið í hrímþoku eða algerri hvítablindu sem reynir á skilningarvitin á allt annan hátt. Þegar ferðalagið er nokkurn veginn hálfnað, nánast á miðjum jöklinum, er komið á Grímsfjall við Grímsvatnaeldstöðina. Þar bíður vistlegur skáli Jöklarannsóknarfélagsins eftir göngufólkinu, hlýr og notalegur. Í skálanum er hægt að kjarna sig, elda dýrindismat, þurrka föt ef á þarf að halda og síðast en ekki síst láta þreytuna líða úr sér í goðsagnakenndu jöklagufubaði! Heildarvegalengd leiðangursins er 130 km og gert er ráð fyrir að hópurinn skíði 20-25 km á hverjum degi, eftir færð og veðri. Þetta er krefjandi ferð sem hentar vönu ferðafólki með reynslu af vetrarferðalögum eða fólki sem ætlar að nota veturinn fyrir leiðangurinn til að læra og æfa sig. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og námskeiðið Ferðast á gönguskíðum, en hvoru tveggja verður á dagskrá í janúar 2026. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska (sem er líka alltaf á dagskrá Útihreyfingarinnar á vormánuðum) eða sambærilegt. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist töluvert og kynnist fyrir ferð og æfi sig að einhverju leyti saman, en stungið verður upp á sameiginlegum ferðum og æfingum í aðdraganda leiðangursins. Brynhildur Ólafsdóttir og Helga María Heiðarsdóttir leiða ferðina en báðar eru mjög reynslumiklar og hafa leiðsagt fjölmargar ævintýraferðir, bæði hérlendis og erlendis. Þær eru með gilt Wilderness First Responder skírteini og hafa lokið réttindanámi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna (AIMG), bæði í fjalla- og jöklaleiðsögn. Ferðin kostar 265.000 kr. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið í verðinu er gisting í eina nótt á Grímsfjalli, far með jepparútum til og frá Reykjavík og að og frá jökli, nokkrir undirbúningsfundir, aðstoð með búnað, næringu, æfingaáætlun og pökkun, ein óveðursútilega í aðraganda ferðar ásamt leiðsögn og utanumhaldi í sjálfum leiðangrinum. Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.
  • Norski skerjagarðurinn. Kajak

    Price range: 60.000 kr. through 226.000 kr.
    Fjórir himneskir ferðadagar á kajak 14.-18. ágúst, 2026 Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli fallegra og afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, synt og slappað af, auk þess sem sérstakur leiðangurskokkur er með í för til að halda hópnum vel nærðum og glöðum! Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna og fjörlegt fuglalíf. Dagleiðirnar eru mjög stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma. Fyrstu nóttina er gist á hóteli í fallegum strandbæ en næstu þrjár nætur er gist í skálum sem eru hver öðrum glæsilegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / lakpoka. Hver og einn flytur sinn eigin farangur og sameiginlegan mat í kajaknum á milli gistiskálanna. Í upphafi ferðarinnar kaupir hópurinn saman í matinn en annar fararstjóranna er lærður kokkur og galdrar fram dásemdarmáltíðir bæði kvölds og morgna. Auk þess verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða. Ferðin tekur í heild fimm daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti dagurinn er ferðadagur. Þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum. Hópurinn heldur svo af stað frá Osló með rútu eftir hádegi föstudaginn 14. ágúst og ferðinni lýkur í Osló þriðjudagskvöldið 19. ágúst. Ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með morgunflugi sama dag og ferðin hefst, þ.e. föstudaginn 14. ágúst og geta annað hvort flogið heim, seint á þriðjudagskvöld 18. ágúst eða gist í Osló í eina nótt eftir ferð og flogið heim á miðvikudagsmorgun 19. ágúst. Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið í byrjun júní, 2026. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir. Verð 226.000 kr. Innifalið: Gisting í 4 nætur, ferðir innan Noregs með rútum og leigubílum, kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Ekki innifalið: Flug til Noregs. Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 60.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Ævintýralega góð gjöf Dýrmætasta gjöfin er alltaf samvera með þeim sem þér þykir vænt um. Og það verður ekki betra en þegar samveran er í formi skemmtilegrar útivistar þar sem allir leika sér saman. Gefðu þér eða þínum gjafabréf sem gildir í alla útihreyfingu, námskeið eða ævintýri Útihreyfingarinnar. Það er hægt er að velja upphæð hér að neðan. Svo má senda póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is til að gefa gjafabréf með upphæð að eigin vali eða til að panta gjafabréf inn í sérstaka ævintýraferð með Útihreyfingunni. Gjafabréfið kemur fallega uppsett í tölvupósti til útprentunar.
Go to Top