• Landvættur 2025

    161.100 kr.
    UPPHAFSFUNDUR Rafrænn fundur miðvikud. 30. okt. kl. 20. Smellið hér FYRSTA ÆFING Elliðaárdalur, þriðjud. 5. nóv. kl. 17:30. Skoraðu á sjálfan þig! Þjálfun og undirbúningur til að ljúka heilum Landvætti sem kallar á að þátttakendur ljúki fjórum þrautum í fjórum landshlutum á innan við ári. Þrautirnar felast í skíðagöngukeppni, hjólreiðakeppni, fjallahlaupi og vatnasundskeppni. Þetta er frábær áskorun fyrir þá sem eru nú þegar í sæmilega góðu formi, vilja komast í sitt besta lífsform og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Jafnframt heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið hálfum Landvætti. Dagsetningar þrautanna fjögurra
    • Fossavatnsgangan 12. apríl 2025 50 km skíðaganga
    • Bláalónsþrautin, dagsetning 2025 ekki staðfest en síðast 8. júní 2024 60 km hjólreiðar
    • Þorvaldsdalsskokkið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 6. júlí 2024 25 km fjallahlaup
    • Urriðavatnssundið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 27. júlí 2024 2500 m vatnasund
    Æfingaáætlunin byggir á tveimur til þremur sameiginlegum æfingum á viku. Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og aðra hvora helgi til skiptis laugardag og sunnudag kl. 9:30. Þjálfunin styðst við æfingagrunn Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari er nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun. Athugið að þátttakendur þurfa ekki að hafa grunn í skíðagöngu til að taka þátt, því þær viðbótaræfingar sem bætast ofan á, snúa fyrst og fremst að því að kenna og ná upp færni á gönguskíðunum en einnig er um að ræða sundæfingar og kuldaþjálfun. Sérmenntaðir þjálfarar og sérfræðingar í skíðagöngu og sundi munu meðal annars koma inn á þessar æfingar. Að öðru leyti koma margir þjálfarar með mikla þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig að námskeiðinu. Þjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi. Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu sína og markmið og fá markvissa endurgjöf, eftirfylgni og utanumhald allt tímabilið. Í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá eru fræðslu- og upplýsingafundir haldnir fyrir hverja keppnisgrein og þátttakendur fá stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar. Námskeiðið tekur 9 mánuði og kostar 161.100 kr. eða 17.900 kr. á mánuði. Hægt er greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara í ferðir hreyfingarinnar, Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum. Viltu vita meira? Hér getur þú lesið allt um hvað það þýðir að verða Landvættur.
  • Vatnajökull. Ferðaskíði

    229.000 kr.265.000 kr.
    Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 30. apríl - 7. maí Stórkostlegur vikulangur leiðangur þar sem sjálfur konungur jöklanna, Vatnajökull, er genginn endilangur á ferðaskíðum. Svona leiðangrar verða jafnan eitt af stærstu ævintýrunum í lífi hverrar manneskju. Við lofum ógleymanlegu, valdeflandi og krefjandi ferðalagi, fyrir bæði líkama og sál. Þátttakendur ganga á svokölluðum ferðaskíðum (utanbrautargönguskíðum með stálköntum) og draga púlkur / sleða með öllum farangrinum á eftir sér. Gist er í tjöldum á jöklinum í fjórar nætur en eina nótt í skála á Grímsfjalli. Gert er ráð fyrir að jöklagangan sjálf taki 6-7 daga en nokkrir dagar eru hafðir til vara ef hópurinn þarf að hafast við á jöklinum og bíða af sér veður og jafnframt til að gera ráð fyrir ferðalögum til og frá jökli. Það fer eftir færð og veðri í aðdraganda ferðar hvort gengið verður frá austri til vesturs eða frá vestri til austurs. Leiðangurinn hefst því annað hvort við Jöklasel á Skálafellsjökli við suðurbrún Vatnajökuls eða upp frá Jökulheimum undir Tungnaárjökli við vesturbrún jökulsins. Ógnarfegurð, alger kyrrð og mikil núvitund felst í svona löngu ferðalagi yfir jökul. Fegurðin getur stundum verið yfirþyrmandi. Rósrauð sólris og sólsetur einkenna jökulinn og á leiðinni gefst stórkostlegt útsýni á marga af hæstu tindum landsins. Oft er þó líka gengið í hrímþoku eða algerri hvítablindu sem reynir á skilningarvitin á allt annan hátt. Þegar ferðalagið er nokkurn veginn hálfnað, nánast á miðjum jöklinum, er komið á Grímsfjall við Grímsvatnaeldstöðina. Þar bíður vistlegur skáli Jöklarannsóknarfélagsins eftir göngufólkinu, hlýr og notalegur. Í skálanum er hægt að kjarna sig, elda dýrindismat, þurrka föt ef á þarf að halda og síðast en ekki síst láta þreytuna líða úr sér í goðsagnakenndu jöklagufubaði! Heildarvegalengd leiðangursins er 130 km og gert er ráð fyrir að hópurinn skíði 20-25 km á hverjum degi, eftir færð og veðri. Þetta er krefjandi ferð sem hentar vönu ferðafólki með reynslu af vetrarferðalögum eða fólki sem ætlar að nota veturinn fyrir leiðangurinn til að læra og æfa sig. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og námskeiðið Ferðast á gönguskíðum. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist töluvert og kynnist fyrir ferð og æfi sig að einhverju leyti saman, en stungið verður upp á sameiginlegum ferðum og æfingum í aðdraganda leiðangursins. Brynhildur Ólafsdóttir og Helga María Heiðarsdóttir leiða ferðina en báðar eru mjög reynslumiklar og hafa leiðsagt fjölmargar ævintýraferðir, bæði hérlendis og erlendis. Þær eru með gilt Wilderness First Responder skírteini og hafa lokið réttindanámi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna (AIMG), bæði í fjalla- og jöklaleiðsögn. Ferðin kostar 229.000 kr. fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en annars 265.000 kr. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið í verðinu er gisting í eina nótt á Grímsfjalli, far með jepparútum til og frá Reykjavík og að og frá jökli, nokkrir undirbúningsfundir, aðstoð með búnað, næringu, æfingaáætlun og pökkun, ein óveðursútilega í aðraganda ferðar ásamt leiðsögn og utanumhaldi í sjálfum leiðangrinum. Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.

Title

Go to Top