• Fyrir öll sem elska fjöll!
    Hægt er að skrá sig í stakar göngur

    Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni og vilja nýta hana til líkamsræktar, ásamt því að kynnast nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.

    Dagskrá Útigengisins haustið 2026

    • 6. sept. Prestahnúkur
    • 13. sept. Skessuhorn
    • 4. okt. Bláfjöll – Herdísarvík
    • 18. okt. Hrafnabjörg
    • 31. okt. Strútur
    • 15. nóv. Keilir og Lambafellsklofi
    • 29. nóv. Meðalfell – Opin ganga með súpufundi
    • 13. des. Fjallið Eina og Steinbogahellir

    Dagskrá Útigengisins er að öllu jöfnu afar fjölbreytt og glímt er við stærri og minni fjöll eftir árstíma og aðstæðum. Auk þess er reynt að blanda saman þekktum og minna þekktum tindum og gönguleiðum.

    Í haust eru alls 8 fjallgöngur á dagskrá frá byrjun september og fram í miðjan desember. Haldið er til fjalla á sunnudögum, að meðaltali aðra hvora helgi. Ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags. Að auki getur veður og aðstæður valdið því að breyta þurfi áfangastaðnum.

    Hægt er að skrá sig í stakar göngur með því að smella á nafn hvers fjalls hér að ofan. Hver ganga kostar 8.900 kr.

    Hópurinn hefur samskipti sín á milli og sameinast í bíla inni á sérstakri Facebook síðu.

    Ávinningur
    Við göngum á fjöll  til að styrkja okkur, skoða nýja staði og smám saman verðum við færari í fjallamennsku.

    Okkur í Útihreyfingunni finnst þó jafnan einn aðal ávinningurinn af reglulegum fjallgöngum (fyrir utan lögulegan afturenda…) vera andlega næringin og félagsskapurinn. Hægt er að njóta náttúrunnar og ganga í djúpum þönkum eða spjalla við ferðafélagana og kynnast nýju fólki.

    Fjallgöngur og útivera styrkja nefnilega ekki bara líkamann, lækka blóðþrýsting og bæta hjartaheilsu heldur næra ekki síður huga og sál, draga úr kvíða, þunglyndi og stressi auk þess sem félagslegi ávinningurinn er ómetanlegur. Sjá m.a. nýlega vísindagrein hér. 

    Umsjónarmenn Útigengisins eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, ásamt öðru leiðsögufólki Útihreyfingarinnar.

  • ÚTINAGLINN 2027. Kynning sunnudaginn 29. nóvember Útinaglinn 2027 verður kynntur á súpufundi á Eyri Farm í Kjós sunnudaginn 29. nóvember kl. 13:00. Á undan, kl. 10:00, býður Útihreyfingin í opna göngu á Meðalfell. Opnað verður fyrir skráningu í sjálfan Útinaglann 2027 á fundinum. En nauðsynlegt er að skrá sig á kynningarfundinn hér að neðan svo við verðum með nóg af súpu! Skráning á kynninguna og í Meðalfellsgönguna hér Fjórar þrautir: Ferðaskíði. Fjallganga. Fjallahjól. Klifur Útinaglinn er útivistar- og ævintýraáskorun, hönnuð fyrir þau sem vilja sameina útivist og þol, halda sér í formi og stíga örlítið út fyrir þægindarammann í þéttum og skemmtilegum félagsskap. Þetta er ferðalag í fjórum áföngum því þátttakendur taka þátt í fjórum mismunandi þrautum yfir árið. Árið 2027 eru það ferðaskíði, fjallganga, fjallahjól og klifur. Þau sem klára allar fjórar þrautir ársins fá heiðursnafnbótina Útinaglinn 2027. Á hverju ári verða svo nýjar áskoranir og þrautir á nýjum slóðum, því markmiðið er að halda sér í frábæru útivistarformi með því að hafa alltaf skemmtileg, krefjandi og fjölbreytt verkefni til að stefna að. Útinaglaþrautirnar eru ekki keppnir, heldur alvöru útivistaráskoranir. Þetta eru ólíkar áskoranir en allar krefjast bæði úthalds og þrautseigju þar sem þú sjálf/ur ert þinn eini keppandi. Í leiðinni kynnistu nýju fólki, nýjum stöðum, lærir eitthvað nýtt, styrkir þig og bætir og færð mögulega nýja sýn á þig og þína getu! Naglaþrautir 2027 3. apríl. Ferðaskíði um Tröllakirkju Einn dagur. 2., 3. eða 4. apríl* Skíðað umhverfis Tröllakirkju á Holtavörðuheiði. 32 km Ekið samdægurs til og frá Rvk 15. maí. Fjallganga á Þverártindsegg Einn dagur. 14., 15. eða 16. maí* Jöklaganga á Þverártindsegg í Suðursveit. 17 km Gist í Öræfum á eigin vegum fyrir og eftir göngu 24. júlí. Fjallahjól að Fjallabaki Einn dagur. 23., 24. eða 25. júlí* Hjólað frá Landmannahelli í Hvanngil. 53 km Gist að Fjallabaki á eigin vegum 7. ágúst. Klifurdagur í klettum Einn dagur. 6., 7. eða 8. ágúst* Klifrað í bestu veðurspánni, nánar á kynningarfundinum Gist á eigin vegum, staðsetning ákveðin í aðdraganda *Athugaðu að við tökum þrjár dagsetningar frá fyrir hverja þraut. Stefnt er að því að halda þær allar á laugardegi, en ef veðrið er ekki að spila með, þá eru föstudagar og sunnudagar hafðir til vara. Staðsetning fer eftir veðri og stefnt að tjaldgistingu ef farið er langt frá höfuðborgarsvæðinu. Og ef svo ólíklega vill til að það verði óveður um allt land, þá finnum við nýja dagsetningu fyrir uppbótarþraut, innan ársins.
  • Dagsferð í núvitund 6. desember Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum annan sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar. Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað! Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti. Lagt er af stað skömmu fyrir ljósaskiptin eða kl. 14:30 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna. Allir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Stutt upphafsnámskeið á brautarskíðum
    Fræðslufundur 4. janúar
    Fyrsta æfing 5. janúar

    Allir geta gengið á skíðum og allir ættu að læra þessa frábæru íþrótt sem reynir á allan líkamann og eykur úthald, þol og styrk.

    Við hjá Útihreyfingunni höldum því fram að hvort sem fólk stefni á frama og verðlaunapalla í skíðagöngukeppnum eða þverun jökla á ferðaskíðum með púlkur í eftirdragi, þá þurfi allir að byrja á því að læra undirstöðutæknina í skíðagöngu í braut. Grunntæknina verður að læra í spori áður en sá lærdómur er yfirfærður yfir á ferðaskíðin, þannig að fólk geti byrjað að láta skíðin vinna fyrir sig og svífi áfram í staðinn fyrir að þramma!

    Þetta námskeið er því bæði hugsað fyrir byrjendur á brautarskíðum sem og þá sem hafa hingað til aðeins gengið á ferðaskíðum en vilja bæta tæknina. Þetta er líka frábært upphafsnámskeið fyrir skíðavertíðina, þ.e. fyrir þá sem þegar kunna eitthvað á brautarskíðum, en þurfa að rifja upp grunntæknina og taktana!

    Námskeiðið hefst á rafrænum fræðslufundi þar sem fjallað er um hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að búnaði, hver er munurinn á mismunandi skíðategundum, skíðaskóm og stöfum og hvernig á að klæða sig þegar gengið er á skíðum í spori.

    Á fyrstu æfingunni er svo komið að því að læra á búnaðinn, hvernig á að spenna á sig skíðin, hvernig best er að detta (því allir detta!) og taka fyrstu skíðagöngusveifluna 🙂 Æfingarnar eru svo skipulagðar með stuttu millibili, tvo daga í röð í tvær vikur, en einmitt með því að láta ekki of langan tíma líða á milli æfinga í upphafi, nær fólk mestum árangri og framförum.

    Lögð er megináhersla á að allir þátttakendur læri taktinn og nái tökum á vanaganginum, þ.e. klassíska sporinu í skíðagöngunni með alls konar tækniæfingum og leikjum. Að auki fá þátttakendur grunnkennslu í öðrum skíðagöngusporum svo sem ýtingum, ýtingum með frásparki, síldarbeinagangi upp brekkur og æfingu í því að renna niður brekkur.

    Hver kennslustund tekur um 2 klukkustundir og kennsla fer fram á skíðagöngusvæðinu í Bláfjöllum. Aðgangur að svæðinu er ekki innifalinn í verði.

    Dagskrá námskeiðsins

    • Mán. 4. jan. Kl. 20. Fræðslufundur
    • Þri. 5. jan. Kl. 18
    • Mið. 6. jan. Kl. 18
    • Þri. 12. jan. Kl. 18
    • Mið. 13. jan. Kl. 18

    Athugið að veður og snjóalög setja mjög oft strik í reikninginn þegar kemur að lagningu skíðaspora og því er afar líklegt að það þurfi að hliðra kennslunni eða að minnsta kosti einhverjum kennsludögum til um einhverja daga. Á upphafsfundinum verður nánar farið yfir snjóalög og mögulegar breytingar á dagsetningum námskeiðsins.

    Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja brautargönguskíði, gönguskíðaskó og stafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Everest.

    Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, þrautreynt skíðagöngufólk með réttindi.

    Námskeiðið kostar 34 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.

    Umsagnir

    • Ég hef áður farið á helgarnámskeið en fagmennskan hér er framúrskarandi í samanburði.
    • Gleði og þolinmæði kennaranna er áberandi.
    • Gott að geta klárað þetta á stuttum tíma í stað þess að draga þetta yfir nokkrar vikur.
    • Námskeiðið er vel upp byggt og frábært að blanda leikjum saman við tækniæfingar.
    • Skilvirkar æfingar, ég náði miklum framförum á fáum skiptum.
    • Frábært námskeið og rosa gaman.
    • Allt skemmtilegt og gaman að brjóta kennsluna upp með leikjum.
  • Stutt ferðaskíðanámskeið fyrir byrjendur
    14. – 23. janúar

    Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái að kynnast ferðaskíðum / utanbrautarskíðum og þessum frábæra ferðamáta sem sameinar skíðagöngu, náttúruupplifun og vetrargleði.

    Þetta er stutt, snarpt en hagnýtt námskeið þar sem þú fræðist um muninn á mismunandi búnaði, lærir á skíðin og skinnin, kynnist grunntækni í beitingu skíðanna og hvernig við skíðum örugglega og áreynslulaust á mismunandi undirlagi.

    Við byrjum rólega, lærum á skíðin, bindingarnar og skinnin og tökum svo fyrstu skrefin í brekkum og hliðarhalla, mismunandi færi og í fjölbreyttu landslagi.

    Námskeiðið samanstendur af rafrænum fræðslufundi og tveimur skíðaæfingum sem taka um 2 klst hvor. Staðsetning æfinganna fer eftir snjóalögum og færð, en reynt er að miða við að ekki taki meira en 30-40 mínútur að aka frá Reykjavík á æfingastaðinn.

    Dagskrá námskeiðsins

    • Fim. 14. jan. Kl. 20. Rafrænn fræðslufundur
    • Mið. 20. jan. Kl. 18. Æfing
    • Lau. 23. jan. Kl. 10. Æfing

    Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs.

    Úti ferðaskíði byrjendanámskeið kostar 18 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.

    Aldrei gengið á gönguskíðum?
    Athugaðu að ef þú hefur aldrei gengið á gönguskíðum, þá er gott að byrja á því að læra tæknina á brautarskíðum, áður en þú færir þig yfir á ferðaskíðin. Sjá t.d. námskeiðið Úti brautarskíði.

    Viltu ganga meira á ferðaskíðum?
    Þetta byrjendanámskeið á ferðaskíðum er sett upp þannig að þau sem vilja halda áfram að æfa sig, geta runnið beint inn í æfingahópinn Úti ferðaskíði. Hann byrjar laugardaginn 23. janúar, sama dag og síðasta æfing byrjendanámskeiðsins, og hittist síðan á miðvikudagskvöldum fram í miðjan mars. Þar æfum við tæknina enn betur, förum á nýja staði í nágrenni Reykjavíkur og náum góðum tökum á ferðaskíðamennskunni.

    En ferðast á gönguskíðum?
    Ef hugurinn hneygist í þá átt að ferðast á gönguskíðunum með púlku í eftirdragi og læra allt um vetrarútilegur þá er námskeiðið Ferðast á gönguskíðum fyrir þig. Það hefst með bóklegum fundi mánudaginn 18. janúar, búnaðarkvöldi fimmtudaginn 21. janúar og lýkur með vetrarútilegu helgina 30.–31. janúar.

    Leiðbeinendur á öllum þessum námskeiðum eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum.

  • Námskeið í vetrarferðalögum
    • Bóklegt 18. jan.
    • Búnaðarkvöld 21. jan.
    • Verklegt 30. - 31. jan.
    Þátttakendur læra og æfa það helsta sem kunna þarf til að geta ferðast með öruggum hætti á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) um ótroðnar slóðir íslenskra óbyggða. Námskeiðið skiptist í rafrænt fræðslukvöld í gegnum Zoom, búnaðarkvöld og að lokum æfingaútilegu í nágrenni Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að reyna sig í krefjandi en öruggum vetraraðstæðum. Á fræðslukvöldinu verður m.a. farið yfir hvaða útbúnað þarf til vetrarferðalaga á skíðum, hvernig tjöld, dýnur, svefnpoka og sleða / púlku best er að nota, þau öryggisatriði sem þarf að hafa í huga, hvernig á að velja tjaldstað og tjalda í snjó, hita vatn og næra sig, halda á sér hita og útbúa klósett! Þátttakendum er í kjölfarið boðið á búnaðarkvöld í bílskúr leiðbeinenda, þar sem hægt er að skoða alls konar mismunandi búnað og auk þess að koma með eigin búnað og fá mat á honum. Á síðari hluta námskeiðsins er svo komið að því að nota þekkinguna í alvöru vetrarferðalagi. Gengið er á skíðum á laugardagsmorgni með farangurinn í eftirdragi og tjaldbúðir settar upp í snjó. Á leiðinni er skíðatæknin æfð, upp og niður brekkur sem og hliðrun í brattlendi. Hópurinn lærir og æfir að auki grunnatriði í leiðavali og rötun ásamt því hvernig á að moka út neyðarskýli í snjó og fleira. Áfangastaðurinn þessa æfingahelgi skiptir minna máli en ferðalagið sjálft og fer alfarið eftir snjóalögum og færð. Þó er stefnt að því að halda sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið kostar 68.000 kr og innifalið í verði er öll kennsla og æfingar, fræðslukvöld, búnaðarfundur, leiðsögn og utanumhald. Leiðbeinendur og kennarar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall.
  • Æfingaferðir á utanbrautarskíðum
    23. janúar – 17. mars

    Eitt aðalmarkmið æfingahópsins er að þátttakendur læri vel á ferðaskíðin og skinnin og alla tækni við beitingu skíðanna. Brekkur upp. Brekkur niður. Hliðarhalli. Mismunandi snjóalög, færi og undirlag. Allt þarf að læra á og æfa sig í að gera.

    Í öðru lagi finnst okkur alltaf gaman að ganga á skíðum á nýjum stöðum. Við viljum því nota tækifærið til að kynna hópinn fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum skíðaáfangastöðum í nágrenni Reykjavíkur. Og ekki er verra ef svæðið geymir einhverja sögu sem hægt er að fræðast um.

    Síðast en ekki síst viljum við í sameiningu skapa fallegan félagsskap fólks sem nærist á skemmtilegri samveru og útiveru og nýtur þess að leika sér úti við í öllum veðrum. Þetta er, og á alltaf að vera, BARA GAMAN 🙂

    Dagskrá æfingahópsins

    • Lau. 23. jan. Kl. 11. Fyrsta æfing
    • Mið. 3. feb. Kl. 18
    • Mið. 17. feb. Kl. 18
    • Mið. 24. feb. Kl. 18
    • Mið. 3. mar. Kl. 18
    • Mið. 17. mar. Kl. 18

    Fyrir utan fyrstu æfinguna sem er á laugardagsmorgni er stefnt að því að æfingarnar hefjist kl. 18 á miðvikudögum.

    Athugið að færð og snjóalög setja oft strik í reikninginn svo að stundum þarf að snúa upp á dagsetningarnar. Ef snjóalög leyfa, þá er reynt að miða við að allar æfingarnar verði í nágrenni Reykjavíkur og að aldrei taki lengri tíma en um 40 mínútur að aka á upphafsstað göngunnar. Göngurnar sjálfar taka svo að meðaltali 1.5-2.5 klst.

    Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs.

    Þátttaka í æfingahópnum kostar 42 þúsund kr. Þau sem eru að taka Útinagla þrautirnar greiða aðeins 7 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.

    Ertu að byrja á ferðaskíðum?
    Ef þú hefur lítið eða ekkert gengið á ferðaskíðum mælum við með því að byrja á byrjendanámskeiðinu Úti ferðaskíði, 14.–23. janúar. Þar lærirðu á skíðin, bindingarnar og skinnin og grunntæknina í beitingu skíðanna. Þetta byrjendanámskeiðið er sett upp þannig að þú getur síðan runnið beint inn í æfingahópinn, sem byrjar laugardaginn 23. janúar, sama dag og síðasta æfing byrjendanámskeiðsins.

    Langar þig að ferðast lengra?
    Ef hugurinn hneygist í þá átt að ferðast á gönguskíðunum með púlku í eftirdragi og læra allt um vetrarútilegur, þá er námskeiðið Ferðast á gönguskíðum fyrir þig. Það hefst með bóklegum fundi mánudaginn 18. janúar, búnaðarkvöldi fimmtudaginn 21. janúar og lýkur með vetrarútilegu helgina 30.–31. janúar.

    Leiðbeinendur og fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum.

    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Dagsganga í jaðri þjóðgarðsins
    13. febrúar

    Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er dásamlegt útivistarsvæði allan ársins hring en vetrarferðir þangað eru í sérstöku uppáhaldi hjá Útihreyfingunni. Þar sem Þingvellir liggja að nokkru ofan í sigdal, þá geta frosthörkur orðið þar miklar og sambland íss og snævar breytt svæðinu í stórkostlegt undraland.

    Langskemmtilegast, og raunar auðveldast líka, er að njóta þessarar dýrðar á ferðaskíðum. Það þarf þó ætíð að fara mjög varlega þegar ferðast er um Þingvallasvæðið og sérstaklega að vetri til, þar sem alls konar holur, gjótur og gjár geta leynst undir snjónum. Því mælum við alltaf með því að fylgja einhverjum sem þekkir til og veit hvar best er að fara.

    Í þessari ferð er stefnt að því að ganga um austurhluta þjóðgarðsins, og fara skemmtilega hringleið um Reyðarbarm, Hrútafjöll og Stóra Dímon, alls um 15 km, sem tekur um 5-6 klst. Fyrsta hluta leiðarinnar er gengið nokkuð jafnt og þétt upp í móti en hvergi mjög bratt og um leið og haldið er til baka þá tekur við þægileg lækkun, jafnvel þannig að hægt verður að renna sér frekar áreynslulaust nánast alla leið aftur í bíl!

    Lagt er af stað kl. 8 á laugardagsmorgni úr Reykjavík og stefnt að því að komið sé til baka til Reykjavíkur ekki seinna en um kl. 16.

    Athugið að endanleg ferðatilhögun svona skíðaferða þarf alltaf að taka tillit til bæði veðurs og snjóalaga. Þannig gæti þurft að breyta leiðarvali og ef veðurspáin er óhagstæð fyrir laugardaginn, er mögulegt að ferðin verði færð yfir á sunnudag.

    Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti í aðdraganda ferðar en þurfa að lágmarki að eiga eftirfarandi búnað, fá hann lánaðan eða leigðan: Ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs.

    Ferðin kostar 19.900 kr. og innifalið er leiðsögn og utanumhald.

  • Dagsganga um gamla þjóðleið
    27. febrúar

    Útihreyfingin hefur síðustu ár verið að þræða gamlar þjóðleiðir á Snæfellsnesi, nýja leið á hverju ári þar sem gengið er á ferðaskíðum á einum degi, yfir Nesið frá norðri til suðurs. Að þessu sinni koma alls fjórar gamlar þjóðleiðir til greina en hver þeirra verður fyrir valinu fer eftir aðstæðum og snjóalögum. Sú stysta er um 15 km en sú lengsta 23 km.

    Allar leiðirnar liggja yfir innanvert Snæfellsnes, austan við Vatnaleiðina. Leiðirnar þræða dali og lág skörð svo að hvorki er um óyfirstíganlega hækkun né lækkun að ræða. Þátttakendur þurfa þó að hafa nokkuð gott vald á ferðaskíðum en þetta er einmitt tilvalin ferð til að taka ferðaskíðamennskuna upp á nýtt stig, æfa sig í tækninni og njóta þess að skoða nýja staði og nýtt landslag í leiðinni.

    Lagt er af stað snemma á laugardagsmorgun til að nýta daginn sem best og byrjað verður á því að skilja bíla eftir við lokastað göngunnar áður en haldið er á upphafsstaðinn og ferðin hefst fyrir alvöru. Gera má ráð fyrir að gengið verði allan daginn á meðan sauðljóst er og stefnt er að því að hópurinn ljúki síðan ferð með því að borða saman, annað hvort á Vegamótum eða í Borgarnesi. Það verður því ekki komið aftur til Reykjavíkur fyrr en um kvöldið. Athugið að ef veðurspáin eða snjóalög eru óhagstæð er mögulegt að ferðin verði færð, jafnvel á annað landssvæði, þó aldrei nema í samráði við skráða þátttakendur.

    Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti í aðdraganda ferðar en þurfa að lágmarki að eiga eftirfarandi búnað, fá hann lánaðan eða leigðan: Ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs.

    Ferðin kostar 27.900 kr. og innifalið er leiðsögn og utanumhald.

  • Skíðað á milli skála í Noregi 10.–15. mars Krefjandi og ævintýraleg ferðaskíðaferð um hálendið á milli Jötunheima og Harðangursvíðerna Í ár kynnum við nýtt svæði í Noregi: Skarvheima sem er víðáttumikið hálendi á milli Hallingdals og fjarðanna í vestri, með fjallgarðinn Hallingskarvet sem kennileiti. Á veturnar komast fáir þangað nema á skíðum. Gengið er á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) í fjóra daga og gist í hlýlegum fjallaskálum og á litlum fjallahótelum, þar sem okkar bíður heitur matur á kvöldin. Fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Leiðangurinn hefst á Gardemoen flugvelli í Osló, og þaðan er haldið með lest og rútu upp í gamalt fjallahótel fyrir norðan Hemsedal, þar sem hópurinn borðar saman kvöldmat og gistir fyrstu nóttina. Fyrsti skíðadagurinn er stystur, aðeins um 12 km leið upp skála sem stendur í um 1.580 metra hæð. Þetta er óþjónustaður skáli, svo hópurinn vinnur saman og eldar sinn mat úr birgðum skálans. Næsta dag er gengið um 16 km í stóran og vel þjónustaðan skála norska ferðafélagsins. Þriðja daginn er er líka gengið um 16 km á skíðunum og endað í litlu og sérlega notalegu fjallahóteli þar sem öll herbergi eru með baði. Síðasta skíðadaginn verður svo boðið upp á tvo valkosti. Þeir sem það vilja geta skíðað alls 31 km (að mestu í spori) alla leið til Geilo, þar sem ferðin endar. Einnig verður hægt að velja styttri dagleið, um það bil helming leiðarinnar, og fá akstur þaðan til Geilo. Þannig geta allir notið síðasta dagsins á sínum forsendum. Lokahótel ferðarinnar er algjör perla og uppáhalds gististaður okkar í Noregi. Þetta er fjölskyldurekið sveitasetur frá 1917 og þar bíður okkar gufa og hreint út sagt stórkostlegur fjögurra rétta kvöldverður, eldaður úr hráefni úr héraðinu. Að morgni síðasta dagsins er haldið með smárútu beint á Gardemoen flugvöll í góðum tíma til að ná flugi heim til Íslands. Athugið að þetta er frekar krefjandi ferð og að stærstum hluta utan skíðaspora. Þátttakendur þurfa því að hafa góða reynslu af ferðaskíðum og vera í góðu formi. Gott er að undirbúa sig með því að æfa með Úti ferðaskíðahópnum sem byrjar í janúar. Einnig er góð æfing að taka þátt í styttri og lengri ferðaskíðaferðum á Íslandi, svo sem Aðventugöngunni 6. desember, Þingvallaferðinni 13. febrúar og ferðinni yfir Snæfellsnes 27. febrúar. Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur fyrir ferð, þar sem m.a. verður farið ítarlega yfir búnað og annað skipulag. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni, sem kostar 362 þúsund, er öll gisting, þ.e. tvær nætur í fjallaskálum og þrjár nætur á fjallahótelum og á lúxus sveitasetri. Allur matur, nema hádegismatur ferðadagana tveggja. Lestar- og rútuferðalög, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Í fjallaskálunum er gist í svefnskálum og 2–6 manna herbergjum. Sængur og koddar eru í rúmunum, en allir koma með eigin lakpoka. Flug til og frá Noregi er ekki innifalið. Ferðin er skipulögð þannig að hægt er að fljúga til Oslóar með Icelandair að morgni 10. mars, sama dag og leiðangurinn hefst og til baka seinnipartinn 15. mars. Staðfestingargjald ferðarinnar er 80.000 kr. og eftirstöðvar eru greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðast við 10 manns og hámarkið er 18 þátttakendur.
    Skoða og bóka This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 6.-8. maí 2027 Þriggja daga skíðaferð yfir Drangajökul, í hinn draumfagra Reykjarfjörð á Ströndum þar sem ómótstæðileg heit sundlaug bíður ferðalanga. Skíðað er á ferðaskíðum yfir jökulinn með svefnpoka og vistir í bakpoka og gist í Reykjarfirði í tvær nætur. Ferðin hefst snemma að morgni uppstigningardags, fimmtudagsins 6. maí, í Kaldalóni við Ísafjarðardjúp. Þar er stigið á skíðin, byrðar axlaðar og haldið sem leið liggur upp á Drangajökul. Gengið er yfir jökulinn og niður í Reykjarfjörð, alls um 25 km leið. Enginn vegur liggur í Reykjarfjörð sem fór í eyði árið 1964 og því er aðeins fært þangað gangandi, skíðandi eða á bát. Afkomendur síðustu ábúendanna hafa viðhaldið gömlu húsunum og hópurinn gistir einmitt í svokölluðu Gamlahúsi. Á föstudaginn mun hópurinn halda kyrru fyrir í Reykjarfirði, skoða nágrennið og liggja í bleyti í hinni víðfrægu bláu sundlaug sem er ótrúlegur unaðsreitur inni í þessu landslagi. Laugin er engin smásmíð eða 8x20 metrar og var reist af mikilli framsýni árið 1938. Eldsnemma laugardaginn 8. maí, er svo gengið á skíðunum aftur til baka yfir Drangajökul og í bílana sem bíða í Kaldalóni. Ef veðurspá er sérlega óhagstæð þessa þrjá daga, verður skoðað að hnika ferðinni fram eða aftur um 1-2 daga. Dagleiðirnar eru langar og þátttakendur þurfa að hafa gott vald á ferðaskíðum og reynslu af ferðalögum á skíðum. Að auki má búast við að ganga þurfi nokkurn spotta bæði að og frá jöklinum með skíðin á bakinu. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og fjölbreyttar ferðaskíðaferðir Úthreyfingarinnar til að æfa sig á skíðunum. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska. Athugið að Útihreyfingin er búin að taka frá svefnpokapláss fyrir hópinn nóttina fyrir brottför, skammt frá Kaldalóni. Þeir sem það vilja, geta keypt sér gistingu þar og þá sofið lengur að morgni brottfarardagsins! Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur í aðdraganda ferðar og skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og búnaðarpóst. Nauðsynlegt er að eiga ferðaskíði, stafi með stórri kringlu og skinn undir skíðin, jöklaþrennuna; belti, brodda og ísöxi ásamt góðum bakpoka sem hægt er að hengja skíðin utan á. Innifalið í verði er gisting í tvær nætur í Reykjarfirði, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Nokkrar umsagnir um Drangajökulsferðina
    • Skemmtilegir fararstjórar, veðurglöggir og flínkir að lesa í aðstæður.
    • Frábær leið og áfangastaður.
    • Léttleikinn stendur upp úr en líka leiðarvalið, náttúran, kvöldvakan...
    • Stórkostleg upplifun að skíða yfir jökulinn frá Kaldalóni og dvelja án rafmagns og símasambands í Reykjarfirði.
    • Frábær leiðsögn og félagsskapur.
    • Náttúrufegurðin er engu lík.
    • Húslesturinn var punkturinn yfir i-ið.
    Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.
  • Fjórir himneskir ferðadagar á kajak
    14.-18. ágúst, 2027

    Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli fallegra og afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, synt og slappað af, auk þess sem sérstakur leiðangurskokkur er með í för til að halda hópnum vel nærðum og glöðum!

    Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna og fjörlegt fuglalíf.

    Dagleiðirnar eru mjög stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma.

    Fyrstu nóttina er gist á hóteli í fallegum strandbæ en næstu þrjár nætur er gist í skálum sem eru hver öðrum huggulegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / lakpoka.

    Hver og einn flytur sinn eigin farangur og sameiginlegan mat í kajaknum á milli gistiskálanna. Í upphafi ferðarinnar kaupir hópurinn saman í matinn en annar fararstjóranna er lærður kokkur sem galdrar fram dásemdarmáltíðir. Auk þess verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða.

    Ferðin tekur í heild fimm daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti dagurinn er ferðadagur. Þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum. Hópurinn hittist í Osló um hádegisbilið laugardaginn 14. ágúst og heldur af stað með rútu. Ferðinni lýkur svo í Osló miðvikudagskvöldið 18. ágúst eftir sameiginlegt sánabað í Oslóarfirði 🙂

    Ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með morgunflugi sama dag og ferðin hefst, þ.e. laugardaginn 14. ágúst og geta annað hvort flogið heim, seint á miðvikudagskvöld 18. ágúst eða gist í Osló á eigin vegum í eina nótt eftir ferð og flogið heim á fimmtudagsmorgun 19. ágúst.

    Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið í byrjun júní, 2027.

    Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir.

    Ferðin kostar 262 þúsund kr.og innifalið er leiðsögn, undirbúningsfundur og allt utanumhald; gisting í fjórar nætur; allur matur sem borðaður er í skálunum, þ.e. morgunmatur, kvöldmatur þegar ekki er borðað á lókal veitingastöðum og nesti yfir daginn; ferðir innan Noregs með rútum og leigubílum; kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður; einka sánugusa í lok ferðar. Athugið að flugið til og frá Noregi er ekki innifalið í verði.

    Til að panta ferðina þarf að greiða staðfestingargjald 60 þúsund kr. Eftirstöðvar verða svo rukkaðar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.

    Skoða og bóka This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Dýrðardagar undir stórbrotnum Alpatindum 26. ágúst - 2. september, 2027 Ævintýraleg snargönguferð innan um stórbrotnustu alpatinda Sviss, þar sem saga háfjallaklifurs hófst. Svæðið er fyrirmynd Tolkiens að heimkynnum álfanna í Hringadróttinssögu enda annálað fyrir himneska fegurð. Gengið er um stórkostlega fjallastíga undir og að frægustu fjallaþrenningu Alpanna: Eiger, Mönch og Jungfrau. Upplifunin er engu lík. Við reynum okkur líka við auðvelda en valkvæða klettagöngu, göngum smáspöl á jökli og hendum okkur við hvert gefið tækifæri í hressandi alpabað í öllum þeim blágrænu fjallavötnum sem á leið okkar verða. Við köllum þennan ferðamáta snargöngu, sem er íslenskun á fyrirbærinu fast hiking og liggur á milli hefðbundinnar fjallgöngu og fjallahlaups. Í snargönguferðum er verið að njóta náttúrunnar og hraði er ekki takmark í sjálfu sér. Hins vegar er leitast við að ferðast með eins léttan bakpoka og kostur er og stundum er valhoppað við fót, því Sviss er jú heimaland sjálfrar Heidi :) Ferðin hefst í Zurich með því að hópurinn ferðast saman með lest til bæjarins Interlaken þar sem gist er fyrstu tvær næturnar. Næstu sex daga er svo gengið í ólýsanlegu útsýni og fjallafegurð. Dagleiðirnar eru mislangar en að meðaltali er farið um 15 km á dag. Stysti dagurinn er 10 km en sá lengsti 23 km. Marga daga er líka hægt að velja um bæði lengri og styttri leiðir, þar sem stundum er hægt að taka kláf upp/niður. Þar sem að mestu er gengið langt utan akvega og alfaraleiða þá er ekki hægt að trússa daglegan farangur á milli næturstaða. Hann er hins vegar fluttur frá upphafsstað og á lokastað ferðarinnar auk þess að um mitt ferðalagið verður hægt að komast í töskurnar, skipta um föt og losa sig við allan óþarfa. Með þessum hætti þarf aldrei að ganga meira en í tvo daga án þess að komast í farangurinn. Þrjár nætur er gist í sögufrægum fjallaskálum og þrjár nætur á huggulegum gistiheimilum. Síðustu nóttinni er svo eytt í gleði á góðu hóteli með sundlaug, gufu og öllum heimsins þægindum. Ferðin er skipulögð með þeim hætti að fólk getur flogið frá Íslandi til Zurich sama dag og ferðin hefst, þ.e. 26. ágúst og jafnframt náð flugi heim frá Sviss daginn eftir síðustu nóttina, þ.e. 2. september. Athugið að einnig er hægt að fljúga til og frá Genfar eða koma annars staðar frá og slást í hópinn í Interlaken. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Innifalið í ferðinni, sem kostar 392 þúsund er gisting í sjö nætur, allur morgunmatur og allar kvöldmáltíðir í skálum, allar ferðir í lestum og kláfum, flutningur á farangri á milli staða, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Flug til og frá Sviss er ekki innifalið. Til að panta ferðina þarf að greiða staðfestingargjald 80 þúsund kr. Eftirstöðvar verða svo rukkaðar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns. Umsagnir um ferðina

    „Það er alltaf ævintýri að ferðast með Brynhildi og Róberti! Þau eru meistarar í að deila fróðleik og sögum af svæðinu og eiga þátt í að búa til einstaka stemmingu, eins og fararstjórar Útihreyfingarinnar allir.“

    „Fyrsta sinn sem ég fer í svona ferð og stóðst hún allar mínar væntingar og meira til. Frábær leiðsögn með endalausum fróðleik um fjöll og menn og allt skipulag upp á 10.“

    „Enginn dagur eins sem gerði þetta einstaklega spennandi, ævintýralega gaman og oft farið út fyrir þægindarammann sem var mikill persónulegur sigur.“

    „Minningarbankinn stútfullur af myndum og einstakri upplifun. Þakklát fyrir frábæra ferðafélaga og magnað ævintýri.“

    Skoða og bóka This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • UPPSELT Námskeiðshópur frá september til júlí Næsti hópur byrjar í september 2027 Fyrir konur sem vilja hreyfa sig reglulega, byggja upp gott gönguþol og upplifa skemmtileg ævintýri saman. Útikonur er námskeiðshópur fyrir konur sem langar að gera útiveru og hreyfingu að föstum hluta af lífinu. Hópurinn hittist að meðaltali fjórum sinnum í mánuði, tvisvar á þriðjudögum og tvisvar á laugardagsmorgnum, frá byrjun septembers og fram í byrjun júlí. Gengið er á fjöll og fell, en einnig meðfram sjónum og yfir holt og hæðir. Áherslan er á að byggja smám saman upp gott gönguþol og þrek þannig að við getum tekist á við stærri ævintýri eftir því sem líður á veturinn og vorið. Okkur finnst líka gaman að hafa útivistina fjölbreytta og skemmtilega. Þess vegna brjótum við reglulega upp göngurnar og prófum eitthvað allt annað svo sem hjól, gönguskíði, sjósund eða annað sem hentar hópnum og árstímanum. Skemmtilegast er svo að hafa ákveðin markmið til að stefna að og halda sér á göngutánum. Þess vegna höfum við sett hópnum tvö markmið af ólíkum toga sem bæði eru fanta spennandi. Þetta eru lokamarkmiðin fyrir núverandi námskeiðshóp:
    • Snæfellsjökull.  29. maí. Gengið á broddum og í línu upp á jökulinn* Gangan gæti færst yfir á sunnudag, ef illa viðrar þennan laugardag.
    • Fjallabak. 10.-11. júlí. Gönguhelgi, þar sem gengið verður í tvo daga, meðal annars á Grænahrygg, að Rauðufossum og Auganu. Gist í fjallaskála**
    Athugaðu að þú þarft ekki að ekki að hafa neina reynslu til að byrja. Hugmyndin er að við byggjum okkur upp saman og mætum hverri áskorun þegar að henni kemur. Markmiðið er heldur ekki að gera útivistina að átaki, frekar að skapa góðan hóp og venju sem endist til lengri tíma. Við ætlum að mæta reglulega, hreyfa okkur og verða sterkari saman og smám saman færa okkur út fyrir það sem við héldum að við gætum. Og svo auðvitað ætlum við að hafa ótrúlega gaman á leiðinni. Konur eru teknar í upphafsviðtal og vel er fylgst með framgangi og framförum þeirra m.a. inni á sameiginlegum Strava-hópi. Dagskrá hvers mánaðar er birt með góðum fyrirvara í sameiginlegum Facebook-hópi. Þar fá konur einnig allar upplýsingar um göngurnar, heimaverkefni og góða hvatningu. Umsjón með Útikonum hafa gleðisprauturnar Kristín Ýr Lyngdal og Bubba Snorradóttir. Þátttaka kostar 108.900 kr. fyrir tæpa 11 mánuði eða 9.900 kr. á mánuði. Fyrsti mánuðurinn er óskuldbindandi prufumánuður en eftir hann binda konur sig út tímabilið. *Konur sem ekki eiga brodda og ísöxi þurfa að fá slíkan búnað lánaðan eða leigðan. **Við sjáum um að panta gistinguna en hún er ekki innifalin í mánaðargjaldinu og greiðist sér.
  • Dekurævintýri á Bali og Flores 1.–14. nóvember 2027 11.–24. nóvember 2027 Fjórtán daga ævintýraferð til indónesíska eyjaklasans þar sem ótrúleg náttúrufegurð og iðandi dýralíf blandast framandi og litríkri menningu. Hér ætlum við að sleppa tökum og slaka á, sigla á milli eyja inni í þjóðgarði, læra að kafa, stunda jóga og njóta. Ferðin er fámenn, aðeins 10 manns í hverjum hópi, en þannig næst persónulegri upplifun, við komumst á staði sem stórir hópar ná ekki til og getum haldið þeim rólega takti sem ferðin snýst um. Um borð í seglbátnum er hópurinn einn með áhöfninni og sínum einka köfunarkennurum. Ferðinni er annars vegar heitið til eyjarinnar Flores og nálægra smáeyja og hins vegar til Bali. Þetta eru tveir afar ólíkir heimar, ekki síst vegna þess að Flores er enn að miklu leyti ósnortin af túrisma á meðan Bali hefur verið áfangastaður ferðamanna í áratugi. Hópurinn flýgur á eigin vegum til Bali í upphafi ferðar og gistir saman á flugvallarhóteli í Denpasar fyrstu nóttina áður en flogið er yfir til eyjunnar Flores daginn eftir. Þar hefst ferðin í litlum en líflegum strandbæ við flóa sem er fullur af bátum af öllum stærðum og gerðum. Hópurinn tekur því rólega fyrstu dagana á meðan verið er að lenda í nýju umhverfi og jafna sig á löngu flugi. Hér er andrúmsloftið hrátt og menningin ólík því sem við eigum að venjast. Ákall til bæna heyrist úr moskunum á ýmsum tímum sólarhringsins og lífið á götum úti fer fram í hávaða, hlátri, óhreinindum og miklum hita. Við kynnumst þessu ómótstæðilega bæjarlífi en höldum líka inn í land og upp í frjósamar hæðirnar þar sem við lærum að þekkja í sundur jurtir og elda hefðbundinn florískan mat. Eftir þrjár nætur, flytur hópurinn sig um borð í seglbát og lærir að kafa á meðan siglt er á milli eyja og sandskerja í Komodo þjóðgarðinum. Þátttakendur geta valið um yfirborðsköfun (snorkl) í tærum sjónum eða grunnnámskeið í djúpsjávarköfun niður á allt að 18 metra dýpi. Þau sem þegar eru með köfunarréttindi geta tekið upprifjunarnámskeið og/eða bætt við sig framhaldsréttindum. Athugið að köfunarnámskeiðin eru skipulögð og haldin af afar traustu belgísku fjölskyldufyrirtæki sem setur öryggið ofar öllu og hefur rekið köfunarþjónustu og haldið köfunarnámskeið í Flores í 12 ár við góðan orðstír. Við útskrift fá þátttakendur alþjóðleg PADI köfunarréttindi og PADI skírteini. Á milli þess sem hópurinn kafar og skoðar fjölbreytt neðansjávarlífið, m.a. risaskötur og skjaldbökur, þá er legið í leti á dekki, synt í heitum og tærum sjónum eða skotist í land til að ganga um, skoða leðurblökur í þúsundavís og hina gríðarstóru og ófrýnilegu Komododreka sem eru stærstu eðlur jarðarinnar. Hér bókstaflega hægist á lífinu og nýr og rólegri taktur tekur yfir. Eftir fjögurra daga siglingu er farið í land á lítilli og nánast mannlausri eyju, þar sem hópurinn gistir í litlum en vel útbúnum tveggja manna strandkofum við litríkt kóralrif. Ef hvít sandströnd og vaggandi hengirúm er ekki nóg til að fá alla inn í núvitundarástand þá eru alls konar dekurmeðferðir, jóga og nudd einnig í boði! Svo má líka alltaf skreppa út á kajak eða siglingabretti, snorkla eða kafa meira. Við kveðjum þessa Róbinson Krúsó paradís eftir þrjár nætur, fljúgum yfir til eyjunnar Bali og dveljum síðustu dagana í bænum Ubud, þar sem öll skilningarvitin hrökkva í gang eftir undangengin rólegheit. Ubud er menningarmiðstöð eyjunnar. Hér eru musteri með blómaskreytingum og reykelsisilmi við hvert fótmál, mannmergð og gríðarleg umferð en líka jóga, innhverf íhugun og nudd í öðru hverju húsi. Og maturinn er hreint út sagt stórkostlegur! Við gistum hér í þrjár nætur á frábærlega staðsettu fimm stjörnu og margverðlaunuðu hóteli. Dagarnir hefjast á sameiginlegri jógastund á meðan sólin rís yfir trjátoppunum en svo gerir hver og einn það sem hugurinn girnist. Hægt er að rölta á milli mustera, versla, ganga um hrísgrjónaakrana, fara í nudd, skoða apa, prufa alls konar mismunandi jógatíma eða bara hanga í hótelsundlauginni 😉 Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall. Verð 668 þúsund kr. Innifalið: Allar ferðir, flug og akstur innan Indónesíu, gisting í 13 nætur með morgunmat, allar máltíðir um borð í seglbátnum, PADI köfunarnámskeið og réttindi, allur tilheyrandi köfunarbúnaður og námsgögn, rafrænt bóklegt köfunarnámskeið í aðdraganda ferðar, matreiðslunámskeið, fótanudd, jógatímar, aðgangseyrir í Komodo þjóðgarðinn, leiðsögn og allt utanumhald. Ekki innifalið: Flug til og frá Indónesíu, þjórfé, einstaklingsbundnar ferðatryggingar og annað sem ekki er upp talið hér að ofan. 100.000 kr. staðfestingargjald er greitt við bókun og boðið er upp á að greiða eftirstöðvarnar á tvennan hátt. Annars vegar í átta jöfnum mánaðargreiðslum, 71.000 kr., fyrsta hvers mánaðar, frá 1. mars til 1. október 2027, og hins vegar í einu lagi, átta vikum fyrir ferð.  
    Skoða og bóka This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Hópur 2: 11.–24. nóvember 2027. Sjá aðalsíðu ferðarinnar.
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar Þriggja ára stórbrotið ferðalag Jöklafarar er heitið á skemmtilegri áskorun Útihreyfingarinnar þar sem þátttakendur ganga á ferðaskíðum þvert yfir sex stærstu jökla landsins, þ.e. Eyjafjallajökul, Drangajökul, Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Langjökul og Vatnajökul. Markmiðið er ekki að fara upp á hæsta tind hvers jökuls fyrir sig, þ.e. fram og til baka, heldur að skíða þvert yfir jöklana þannig að endað sé á öðrum stað en ferðin hófst. Hægt er að klára áskorunina á eigin hraða, þ.e. á eins skömmum eða löngum tíma og hentar hverjum og einum. Hins vegar skipuleggur Útihreyfingin verkefnið og mælir með því að það sé klárað á að minnstak kosti þremur árum frá upphafi til enda, þannig að byrjað sé á æfingum á ferðaskíðum og minni jöklum áður en ráðist er í flóknari og lengri ferðir og jöklaútilegur. Í hnotskurn Við mælum með því að þau sem hafa enga reynslu og eru að byrja frá grunni, hefji vegferðina með því að læra á ferðaskíði þ.e. utanbrautargönguskíði með stálköntum og æfa sig svo vikulega nágrenni Reykjavíkur með Úti ferðaskíðahópnum. Að auki þurfa óvanir að taka námskeið í vetrarfjallamennsku þar sem kennd er línuhegðun á jökli og notkun á jöklabroddum og ísöxi. Fyrsta árið er svo frábært að stefna að því að þvera einn eða alla af þessum þremur jöklum: Drangajökul, Eyjafjallajökul og Langjökul. Þessa jökla er hægt að þvera hvern um sig á einum löngum skíðadegi og því þarf ekki að gista í tjaldi á jökli þetta fyrsta árið. Annað árið mælum við með námskeiðinu Ferðast á gönguskíðum þar sem þátttakendur læra öll trixin við að ferðast með púlku í eftirdragi og tjalda í snjó auk þess sem farið er í æfingaútilegu til að þjálfa handtökin. Að vori er síðan hægt að halda í 3-4 daga ferðir á Hofsjökul annars vegar og Mýrdalsjökul hins vegar. Síðasta árið er svo komið að konungi íslenskra jökla, sjálfum Vatnajökli. Það er ferðalag sem tekur heila viku og þarfnast góðs undirbúnings og æfinga. Ekki aðeins þurfa þátttakendur að vera í góðu líkamlegu formi og þekkja búnaðinn sinn vel, heldur er líka nauðsynlegt að undirbúa hausinn fyrir átökin og langa daga á jökli. Að lokum fá þátttakendur viðurkenningarskjal og heiðursnafnbótina Jöklafari og eru þá komnir með fullan og óskoraðan rétt til að grobba sig á alla jöklakanta, jafnvel á alþjóðavettvangi 🙂 Skráning Athugið að hvorki er nauðsynlegt að klára áskorunina í ofangreindri röð né á þremur árum. Ef fólk er vant því að ferðast á skíðum þá er hægt að raða jöklaferðunum saman á hvern þann hátt sem hentar og jafnvel byrja á Vatnajökli! Að auki geta þeir sem þegar eru búnir að þvera einhverja jökla auðvitað líka verið með og bætt í safnið. Til að taka þátt þarf aðeins að skrá sig til leiks með því að senda okkur póst. Í kjölfarið verður þér boðið inn í sérstakan FB hóp allra þátttakanda og ævintýrið hefst. Hér að neðan setjum við jafnóðum inn linka inn á viðeigandi jöklaferðir og undirbúningsnámskeið, auk ferða sem hægt er að nýta til að æfa skíðatæknina og handtökin. JÖKLAFERÐIR 2027 Ferðir á jökla næsta vor detta inn í október.
    • Eyjafjallajökull
    • Drangajökull
    • Langjökull
    • Mýrdalsjökull
    • Hofsjökull
    • Vatnajökull
    UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ 2027
    • Úti ferðaskíði. Námskeið og æfingahópur. Byrjar í janúar
    • Ferðast á gönguskíðum. Námskeið og útilega. 18. jan. 21. jan og 30.-31. jan
    • Vetrarfjallamennska. Grunnnámskeið. Á dagskrá í febrúar
    ÆFINGAFERÐIR 2027. Ferðir næsta vetrar koma hér inn í október. Síðasta tækifærið? Markmið þessa verkefnis er þó ekki eingöngu að vera þátttakendum til skemmtunar og áskorunar. Með frásögnum af ferðunum í máli og myndum, viljum við líka vekja athygli almennings, heima og erlendis, á hraðri bráðnun jöklanna af völdum loftslagshlýnunar. Myndum leiðangursmanna verður m.a. safnað á sameiginlega myndasíðu á samfélagsmiðlum undir samheitinu #lastoftheglaciers eða síðustu jöklarnir. Hópurinn reynir þannig að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að okkar kynslóð verði ekki síðasta kynslóðin sem nýtur þess að ferðast á skíðum um jökla landsins.
  • Ævintýralega góð gjöf Dýrmætasta gjöfin er alltaf samvera með þeim sem þér þykir vænt um. Og það verður ekki betra en þegar samveran er í formi skemmtilegrar útivistar þar sem allir leika sér saman. Gefðu þér eða þínum gjafabréf sem gildir í alla útihreyfingu, námskeið eða ævintýri Útihreyfingarinnar. Það er hægt er að velja upphæð hér að neðan. Svo má senda póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is til að gefa gjafabréf með upphæð að eigin vali eða til að panta gjafabréf inn í sérstaka ævintýraferð með Útihreyfingunni. Gjafabréfið kemur fallega uppsett í tölvupósti til útprentunar.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
Go to Top