NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í NÓV
KYNNINGARFUNDUR 24. SEPT
Skoraðu á sjálfan þig!
Þjálfun og undirbúningur til að ljúka heilum Landvætti sem kallar á að þátttakendur ljúki fjórum þrautum í fjórum landshlutum á innan við ári. Þrautirnar felast í skíðagöngukeppni, hjólreiðakeppni, fjallahlaupi og vatnasundskeppni.
Þetta er frábær áskorun fyrir þá sem eru nú þegar í sæmilega góðu formi, vilja komast í sitt besta lífsform og þjálfa sig í alls konar útiíþróttum. Jafnframt heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið
hálfum Landvætti.
Dagsetningar þrautanna fjögurra
- Fossavatnsgangan 12. apríl 2025
50 km skíðaganga
- Bláalónsþrautin, dagsetning 2025 ekki staðfest en síðast 8. júní 2024
60 km hjólreiðar
- Þorvaldsdalsskokkið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 6. júlí 2024
25 km fjallahlaup
- Urriðavatnssundið, dagsetning ekki staðfest 2025 en síðast 27. júlí 2024
2500 m vatnasund
Æfingaáætlunin byggir á tveimur til þremur sameiginlegum æfingum á viku. Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og aðra hvora helgi til skiptis laugardag og sunnudag kl. 9:30.
Þjálfunin styðst við æfingagrunn Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari er nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun. Athugið að þátttakendur þurfa ekki að hafa grunn í skíðagöngu til að taka þátt, því þær viðbótaræfingar sem bætast ofan á, snúa fyrst og fremst að því að kenna og ná upp færni á gönguskíðunum en einnig er um að ræða sundæfingar og kuldaþjálfun. Sérmenntaðir þjálfarar og sérfræðingar í skíðagöngu og sundi munu meðal annars koma inn á þessar æfingar.
Að öðru leyti koma margir þjálfarar með mikla þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig að námskeiðinu. Þjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi.
Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu sína og markmið og fá markvissa endurgjöf, eftirfylgni og utanumhald allt tímabilið. Í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá eru fræðslu- og upplýsingafundir haldnir fyrir hverja keppnisgrein og þátttakendur fá stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar.
Námskeiðið tekur 9 mánuði og kostar 161.100 kr. eða 17.900 kr. á mánuði. Hægt er greiða fyrir námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu.
Á meðan á námskeiðinu stendur eru þátttakendur meðlimir í Útihreyfingunni og njóta forgangs og afsláttarkjara ferðir hreyfingarinnar,
Úti ævintýri, auk góðra afsláttarkjara í völdum verslunum.
Viltu vita meira?
Hér getur þú lesið allt um hvað það þýðir að verða Landvættur.