• Úti 101

    32.000 kr.
    Kynningarfundur 8. janúar Fyrsta æfing 20. janúar Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, maí og september. Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri. Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar. Æfingarnar fara fram á útivistarsvæðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, svo sem í Elliðaárdal, Öskjuhlíð og Laugardal en líka er gengið á lægri fjöll í nágrenni Reykjavíkur svo sem upp á Mosfell og Úlfarsfell og víðar. Dagskrá
    • Alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30
    • Lengri æfingar aðra hvora helgi, kl. 9:30
      • Laugardaginn 23. jan
      • Sunnudaginn 8. feb
      • Laugardaginn 28. feb
    Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeiðið Úti 102. Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftaræfingu þar sem áfanganum er fagnað. Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal  
  • Útigengið

    Price range: 32.000 kr. through 48.000 kr.
    Fyrir öll sem elska fjöll! Níu göngur frá 18. jan til 17. maí Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni og vilja nýta hana til líkamsræktar, kynnast nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum. Vordagskráin er fjölbreytt og áhersla er á að ganga sig upp í getu til að geta glímt við meira krefjandi göngur, ásamt því að æfa sig í vetrarferðamennsku og því að nota brodda og ísöxi. Við bendum fólki sem er að byrja að ganga á fjöll að vetri til, á örstutt byrjendanámskeið í vetrarfjallamennsku. Útigengið heldur til fjalla á sunnudögum, að meðaltali aðra hvora helgi frá janúar til maí. Fyrstu göngurnar taka 3-4 klst. en þegar líður á og göngurnar verða meira krefjandi, þá verða þær líka lengri og sumar taka allan daginn, að akstri til og frá meðtöldum. Vordagskrá Útigengisins
    • 18. jan. Bjarnarfell við Geysi
    • 1. feb. Þyrill í Hvalfirði
    • 15. feb. Kálfatindar upp af Lyngdalsheiði
    • 1. mar. Vikrafell ofan við Hreðavatn
    • 15. mar. Mýrarhyrna á Snæfellsnesi
    • 29. mar. Skessuhorn í Borgarfirði
    • 19. apr. Hvalfell í Hvalfirði
    • 3. maí. Hrútaborg á Mýrunum
    • 17. maí. Blikdalshringurinn í Esju
    Athugið að ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags. Hópurinn hefur samskipti sín á milli og sameinast í bíla inni á sérstakri Facebook síðu og skráðir þátttakendur fá að auki upplýsingapóst í aðdraganda hverrar göngu. Umsjónarmenn Útigengisins eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, ásamt öðru leiðsögufólki Útihreyfingarinnar. Þátttaka í hópnum kostar 48 þúsund krónur en 32 þúsund krónur fyrir þá sem æfa með Útirækt Útihreyfingarinnar.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Úti ferðaskíði. Æfingahópur

    Price range: 28.000 kr. through 35.000 kr.
    Æfingaferðir á utanbrautarskíðum 17. janúar - 25. mars Eitt aðalmarkmið æfingahópsins er að þátttakendur læri vel á ferðaskíðin og skinnin og alla tækni við beitingu skíðanna. Brekkur upp. Brekkur niður. Hliðarhalli. Mismunandi snjóalög, færi og undirlag. Allt þarf að læra á og æfa sig í að gera. Í öðru lagi finnst okkur alltaf gaman að ganga á skíðum á nýjum stöðum. Við viljum því nota tækifærið til að kynna hópinn fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum skíðaáfangastöðum í nágrenni Reykjavíkur. Og ekki er verra ef svæðið geymir einhverja sögu sem hægt er að fræðast um. Síðast en ekki síst viljum við í sameiningu skapa fallegan félagsskap fólks sem nærist á skemmtilegri samveru og útiveru og nýtur þess að leika sér úti við í öllum veðrum. Þetta er, og á alltaf að vera, BARA GAMAN :) Hópurinn hittist alls sex sinnum. Fyrsta æfingin er á laugardegi en næstu fimm kl. 18 á miðvikudögum. Allar æfingarnar eru í nágrenni Reykjavíkur og reynt verður að miða við að aldrei taki lengri tíma en um 40 mínútur að aka á upphafsstað göngunnar. Göngurnar sjálfar taka svo að meðaltali 1.5-2.5 klst. Dagskrá
    • Lau. 17. jan. Kl. 11
    • Mið. 28. jan. Kl. 18
    • Mið. 11. feb. Kl. 18
    • Mið. 25. feb. Kl. 18
    • Mið. 11. mar. Kl. 18
    • Mið. 25. mar. Kl. 18
    Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Við bendum þeim sem eru að byrja á ferðaskíðum á stutt og snarpt byrjendanámskeið: Úti ferðaskíði Byrjendanámskeið. Leiðbeinendur og fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, sem hafa menntað sig sem skíðakennarar og gengið á ferðaskíðum þvers og kruss, bæði á Íslandi og erlendis, eru með réttindi hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og gilt skírteini í WFR eða Fyrstu hjálp í óbyggðum. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins. Þátttaka í æfingahópnum kostar 35 þúsund kr. en 28 þúsund kr. fyrir þau sem æfa með Útiræktinni.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Kajaknámskeið

    27.000 kr.
    Náðu tökum á tækninni 1. júní (3. júní til vara) Fátt er eins nærandi, draumkennt og dásamlegt og að líða hljóðlaust áfram á kajak í fullkominni sátt og tengingu við náttúruna. Á þessu þriggja klukkustunda námskeiði verður farið yfir þann grunn sem þarf til að geta bjargað sér á kajak og byrjað að lifa drauminn! Farið er yfir búnaðinn og áratökin útskýrð áður en allir koma sér fyrir, hver í sínum kajak og ýtt er úr vör. Í framhaldi eru áratökin æfð ásamt mismunandi aðferðum við að stýra kajaknum, halda réttri stefnu, beygja og snúa við. Farið er yfir undirstöðuatriðin í félagabjörgun og að lokum eru allir látnir velta kajaknum sínum til að æfa sig í því að komast klakklaust úr honum og upp í hann aftur. Mæting er við höfnina á Stokkseyri, kl. 18, mánudaginn 1. júní, þar sem byrjað verður á því að taka til kajakana og klæða sig í viðeigandi fatnað áður en kennsla hefst. Athugið að ef veðurguðirnir eru ekki með okkur í liði, þá er miðvikudagurinn 3. júní, hafður til vara. Þátttakendur fá allan nauðsynlegan búnað á námskeiðinu og þurfa aðeins að mæta í hlýjum fötum og með aukaföt til skiptanna. Ítarlegur upplýsingapóstur er sendur á þátttakendur í aðdraganda námskeiðs. Athugið að þetta námskeið eða sambærilegt námskeið og/eða reynsla er forkrafa inn í allar kajakferðir Útihreyfingarinnar svo sem Kajakferð á Hvítárvatn og Kajakferð í norska skerjagarðinn. Námskeiðið kostar 27.000 kr. og innifalið er kajakleiga, ár, toppur, svunta og björgunarvesti ásamt kennslu faglærðra kajakkennara.
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 15.-17. maí Þriggja daga skíðaferð yfir Drangajökul, í hinn draumfagra Reykjarfjörð á Ströndum þar sem ómótstæðileg heit sundlaug bíður ferðalanga. Skíðað er á ferðaskíðum yfir jökulinn með svefnpoka og vistir í bakpoka og gist í Reykjarfirði í tvær nætur. Ferðin hefst snemma að morgni föstudags 15. maí í Kaldalóni við Ísafjarðardjúp. Þar er stigið á skíðin, byrðar axlaðar og haldið sem leið liggur upp á Drangajökul. Gengið er yfir jökulinn og niður í Reykjarfjörð, alls um 25 km leið. Enginn vegur liggur í Reykjarfjörð sem fór í eyði árið 1964 og því er aðeins fært þangað gangandi, skíðandi eða á bát. Afkomendur síðustu ábúendanna hafa viðhaldið gömlu húsunum og hópurinn gistir einmitt í svokölluðu Gamlahúsi. Á laugardaginn mun hópurinn halda kyrru fyrir í Reykjarfirði, skoða nágrennið og liggja í bleyti í hinni víðfrægu bláu sundlaug sem er ótrúlegur unaðsreitur inni í þessu landslagi. Laugin er engin smásmíð eða 8x20 metrar og var reist af mikilli framsýni árið 1938. Eldsnemma sunnudaginn 17. maí, er svo gengið á skíðunum aftur til baka yfir Drangajökul og í bílana sem bíða í Kaldalóni. Ef veðurspá er sérlega óhagstæð þessa þrjá daga, verður skoðað að hnika ferðinni fram eða aftur um 1-2 daga. Dagleiðirnar eru langar og þátttakendur þurfa að hafa gott vald á ferðaskíðum og reynslu af ferðalögum á skíðum. Að auki má búast við að ganga þurfi nokkurn spotta bæði að og frá jöklinum með skíðin á bakinu. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og fjölbreyttar ferðaskíðaferðir Úthreyfingarinnar til að æfa sig á skíðunum. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska. Athugið að Útihreyfingin er búin að taka frá svefnpokapláss fyrir hópinn nóttina fyrir brottför, skammt frá Kaldalóni. Þeir sem það vilja, geta keypt sér gistingu þar og þá sofið lengur að morgni brottfarardagsins! Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur í aðdraganda ferðar og skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og búnaðarpóst. Nauðsynlegt er að eiga ferðaskíði, stafi með stórri kringlu og skinn undir skíðin, jöklaþrennuna; belti, brodda og ísöxi ásamt góðum bakpoka sem hægt er að hengja skíðin utan á. Ferðin kostar 94.000 kr. og innifalið er gisting í tvær nætur í Reykjarfirði, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Nokkrar umsagnir um Drangajökulsferðina
    • Skemmtilegir fararstjórar, veðurglöggir og flínkir að lesa í aðstæður.
    • Frábær leið og áfangastaður.
    • Léttleikinn stendur upp úr en líka leiðarvalið, náttúran, kvöldvakan...
    • Stórkostleg upplifun að skíða yfir jökulinn frá Kaldalóni og dvelja án rafmagns og símasambands í Reykjarfirði.
    • Frábær leiðsögn og félagsskapur.
    • Náttúrufegurðin er engu lík.
    • Húslesturinn var punkturinn yfir i-ið.
    Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar 23. apríl (næstu þrír dagar til vara) Þetta ævintýri fer ofarlega á montlista alls fjallafólks, enda getum við fullyrt að um er að ræða eina allra fallegustu jökladagleið á Íslandi! Lagt er af stað í rauðabítið úr Reykjavík því þetta er löng dagleið og það þarf að nýta alla þá birtu sem gefst. Bílar eru skildir eftir við Skógafoss og hópnum skutlað með jepparútu að vesturrönd jökulsins, upp af Hamragarðaheiði, þar sem ferðalagið hefst. Gengið er á skíðunum sem leið liggur austur yfir jökulinn, yfir öskjuna og niður á Fimmvörðuháls eins langt og hægt er að skíða, en búast má við að ganga þurfi með skíðin á bakinu síðasta spölinn niður í bíla. Landslagið er gríðarfjölbreytt. Í fyrstu er löng en jöfn hækkun upp á öskjubrún, með hin fallegu Sker á vinstri hönd og óviðjafnanlegt útsýni yfir til Vestmannaeyja. Svo tekur við glíma við hájökulinn þar sem stundum þarf að skipta skíðum út fyrir jöklabrodda. Þegar komið er yfir öskjuna blasir Þórsmörk, Tindfjallajökull og reyndar allt Fjallabakið við skíðafólki ásamt kærkominni langri og mikilli brekku niður í átt að Mýrdalsjökli og svo áfram niður Fimmvörðuhálsinn meðfram gljúfrum og fossum Skógárinnar. Það er alltaf áskorun að fara upp á Eyjafjallajökul og þetta ferðalag er krefjandi, ekki síst vegna þess að um er að ræða 35-40 km langa dagleið. Við bendum fólki á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði og fjölbreyttar ferðaskíðaferðir Úthreyfingarinnar til að æfa sig á skíðunum. Þeir sem ekki eru vanir jöklaferðum þurfa að auki að hafa tekið námskeiðið Vetrarfjallamennska. Athugið að ef veðurspá er óhagstæð þennan fimmtudag, sem jafnframt er sumardagurinn fyrsti, er mögulegt að ferðin verði færð yfir á einhvern næstu þriggja daga. Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur í aðdraganda ferðar og skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og búnaðarpóst. Nauðsynlegt er að eiga ferðaskíði, stafi með stórri kringlu og skinn undir skíðin, jöklaþrennuna; belti, brodda og ísöxi ásamt góðum bakpoka sem hægt er að hengja skíðin utan á. Ferðin kostar 59.000 kr. og innifalið er undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald, skutl með jepparútu á upphafsstað og mögulegt skutl niður af Fimmvörðuhálsi í lok ferðar, eftir aðstæðum. Jöklafarar Þessi ferð telst hluti af verkefninu Jöklafarar sem er jöklaáskorun Útihreyfingarinnar, þar sem gengið er á ferðaskíðum yfir sex stærstu jökla landsins. Sjá nánar hér.
  • Dagsganga um gamla þjóðleið 14. mars Útihreyfingin hefur síðustu ár verið að þræða gamlar þjóðleiðir á Snæfellsnesi, nýja leið á hverju ári þar sem gengið er á ferðaskíðum á einum degi yfir Nesið frá norðri til suðurs. Að þessu sinni koma alls fjórar gamlar þjóðleiðir til greina en hver þeirra verður fyrir valinu fer eftir aðstæðum og snjóalögum. Sú stysta er um 15 km en sú lengsta 23 km. Allar leiðirnar liggja yfir innanvert Snæfellsnes, austan við Vatnaleiðina. Leiðirnar þræða dali og lág skörð svo að hvorki er um óyfirstíganlega hækkun né lækkun að ræða. Þátttakendur þurfa þó að hafa nokkuð gott vald á ferðaskíðum en þetta er einmitt tilvalin ferð til að taka ferðaskíðamennskuna upp á nýtt stig, æfa sig í tækninni og njóta þess að skoða nýja staði og nýtt landslag í leiðinni. Við bendum fólki líka á að nota æfingahópinn Úti ferðaskíði til að koma sér í ferðaform. Lagt er af stað snemma á laugardagsmorgun til að nýta daginn sem best og byrjað verður á því að skilja bíla eftir við lokastað göngunnar áður en haldið er á upphafsstaðinn og ferðin hefst fyrir alvöru. Gera má ráð fyrir að gengið verði allan daginn á meðan sauðljóst er og stefnt er að því að hópurinn ljúki síðan ferð með því að borða saman, annað hvort á Vegamótum eða í Borgarnesi. Það verður því ekki komið aftur til Reykjavíkur fyrr en um kvöldið. Ef veðurspáin er óhagstæð fyrir laugardaginn, er mögulegt að ferðin verði færð yfir á sunnudag. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti í aðdraganda ferðar en þurfa að lágmarki að eiga eftirfarandi búnað, fá hann lánaðan eða leigðan: Ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Ferðin kostar 27.900 kr. og innifalið í verðinu er leiðsögn og utanumhald.
  • Úti 102

    22.900 kr.

    NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST Í MARS Fjögurra vikna framhaldsnámskeið fyrir fólk sem hefur farið á Úti 101 námskeið Útihreyfingarinnar eða er með einhvern grunn í útivist og langar til að bæta við sig.

    Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

    Dagskrá síðasta námskeiðs
    • Alla þriðjudaga kl. 17:30 Styrktar- og þrekæfingar með Útihreyfingunni. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Alla fimmtudaga kl. 17:30 Tækni- og gæðaæfingar með Úti 102 þjálfara. Æfingarnar fara fram á grænum svæðum í Reykjavík og nágrenni.
    • Sunnudagar kl. 9:30 Tvær lengri helgaræfingar, sunnudagana 26. október og 9. nóvember.
    Á Úti 102 er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem vilja halda áfram að hreyfa sig eða koma sér aftur af stað í útihreyfingu.
    Námskeiðið kostar 22.900 kr. og umsjón með því hefur Kristín Ýr Lyngdal.
  • Himneskir Jötunheimar. Ferðaskíði

    Price range: 80.000 kr. through 297.000 kr.
    Skíðað á milli skála í Noregi 19.-24. mars Við höldum áfram að kanna ný svæði í Jötunheimum í Noregi, sem líkja má við Fjallabak okkar Íslendinga. Þetta stórkostlega fjallahérað er eitt vinsælasta útivistarsvæði Norðmanna, umkringt jöklum og hæstu fjöllum landsins. Á milli fjallanna liggja stór og mikil vötn sem á veturnar bjóða upp á sannkallaðar himnabrautir fyrir skíðafólk á gönguskíðum. Á veturnar er líka aðeins hægt að ferðast um Jötunheima fótgangandi eða á skíðum og það gerum við í þessari ferð því gengið er á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) í alls  fjóra daga og gist í huggulegum, hlýjum og oftast fullþjónustuðum fjallaskálum. Fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Leiðangurinn hefst á lestarferðalagi frá Gardemoen flugvelli í Osló. Haldið er norður í Guðbrandsdal en þaðan er svo ekið með smárútu á fyrsta næturstaðinn, sem er hálfgert fjallakofaþorp sem kúrir undir Galdhøpiggen, hæsta fjalli Noregs. Sá farangur þátttakenda sem ekki verður notaður í skíðaferðinni sjálfri, er hins vegar fluttur á síðasta næturstaðinn. Eftir staðgóðan morgunmat næsta dag hefst skíðaferðalagið sjálft, en þennan dag er gengið á skíðum um 15 km leið í stóran og góðan skála sem liggur nánast í hjarta Jötunheima, umkringdur jöklum og bröttum fjöllum. Næstu tvo daga er svo gengið á skíðunum í þessu stórbrotna umhverfi, yfir frosin og rennislétt fjallavötn og á milli ógurlegra fjalla. Gist er í einum fábrotnum og óþjónustuðum skála á leiðinni en líka í einum stærsta og þekktasta fjallaskála Norðmanna sem hefur verið starfræktur í tæplega 150 ár og státar af glænýju sánabaði með óviðjafnanlegu útsýni. Síðasta skíðadaginn er svo haldið til byggða. Þetta er lengsti dagurinn í kílómetrum talið eða alls um 24 km en allt í góðum skíðasporum á lögðum skíðabrautum. Þennan dag endar hópurinn í einum af okkar uppáhalds gististöðum, rómantísku sveitasetri með mikla sögu. Þar bíður farangurinn og góður kvöldmatur eldaður úr hráefni frá héraði. Að auki er hægt að fara í sána og heitan pott til að láta ferðaþreytuna líða úr sér eftir átök síðustu daga. Snemma næsta dag sækir smárúta hópinn og ekur honum beint á Gardemoen flugvöllinn í Osló, þaðan sem flogið er heim til Íslands, nú eða hvert á land sem er! Þátttakendur þurfa að hafa einhverja reynslu á gönguskíðum og gott er að undirbúa sig í aðdraganda ferðar með því að taka þátt í æfingahópi á ferðaskíðum eða fara í æfingaferðir. Við bendum fólki á að fylgjast vel með úrvalinu hér á vefsíðu Útihreyfingarinnar. Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur fyrir ferð þar sem m.a. verður farið ítarlega yfir búnað og annað skipulag. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sandra Sif Morthens. Innifalið í ferðinni sem kostar 297 þúsund er öll gisting, þ.e. fjórar nætur í fjallaskálum og ein nótt á gistiheimili. Allur matur, utan dagsnesti ferðadagana tvo, þ.e. fyrsta og síðasta daginn. Allar lestar- og smárútuferðir innan Noregs. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Í stóru fjallaskálunum er oftast gist í 2-4ja manna herbergjum og þar er boðið upp á alla mögulega þjónustu, hægt að kaupa drykki og ýmsan smávarning og komast í sturtu. Eina nótt er hins vegar gist í óþjónustuðum skála, þar sem hópurinn eldar sinn mat sjálfur. Flug til og frá Noregs er ekki innifalið, en ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með Icelandair að morgni 19. mars, sama dag og leiðangurinn hefst, lending í Osló um 11:30. Einnig er hægt að fljúga heim til Íslands sama dag og ferðinni lýkur, þ.e. 24. mars, brottför um kl. 13 frá Osló. Staðfestingargjald ferðarinnar er 80.000 kr. og eftirstöðvar eru greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Námskeið í vetrarferðalögum Bóklegt 21. jan og verklegt 31. jan - 1. feb Þátttakendur læra og æfa það helsta sem kunna þarf til að geta ferðast með öruggum hætti á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) um ótroðnar slóðir íslenskra óbyggða. Námskeiðið skiptist annars vegar í rafrænt fræðslukvöld í gegnum Zoom og hins vegar æfingaferð í nágrenni Reykjavíkur, þar sem markmiðið er að reyna sig í krefjandi en öruggum vetraraðstæðum. Á fræðslukvöldinu verður m.a. farið yfir hvaða útbúnað þarf til vetrarferðalaga á skíðum, hvernig tjöld, dýnur, svefnpoka og sleða / púlku best er að nota, þau öryggisatriði sem þarf að hafa í huga, hvernig á að velja tjaldstað og tjalda í snjó, hita vatn og næra sig, halda á sér hita og útbúa klósett! Þátttakendum er í kjölfarið boðið á búnaðarkvöld í bílskúr leiðbeinenda, þar sem hægt er að skoða alls konar mismunandi búnað og koma með eigin búnað og fá mat á honum. Á síðari hluta námskeiðsins er svo komið að því að nota þekkinguna í alvöru vetrarferðalagi. Gengið er á skíðum á laugardagsmorgni með farangurinn í eftirdragi og tjaldbúðir settar upp í snjó. Á leiðinni er skíðatæknin æfð, upp og niður brekkur sem og hliðrun í brattlendi. Hópurinn lærir og æfir að auki grunnatriði í leiðavali og rötun ásamt því hvernig á að moka út neyðarskýli í snjó og fleira. Áfangastaðurinn þessa æfingahelgi skiptir minna máli en ferðalagið sjálft og fer alfarið eftir snjóalögum og færð. Þó er stefnt að því að halda sig nálægt höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðið kostar 58.000 kr og innifalið í verði er öll kennsla og æfingar, fræðslukvöld, búnaðarfundur, leiðsögn og utanumhald. Leiðbeinendur og kennarar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall.
  • Stutt upphafsnámskeið á brautarskíðum 5. - 10. janúar Allir geta gengið á skíðum og allir ættu að læra þessa frábæru íþrótt sem reynir á allan líkamann og eykur úthald, þol og styrk. Við hjá Útihreyfingunni höldum því fram að hvort sem fólk stefni á frama og verðlaunapalla í skíðagöngukeppnum eða þverun jökla á ferðaskíðum með púlkur í eftirdragi, þá þurfi allir að byrja á því að læra undirstöðutæknina í skíðagöngu í braut. Grunntæknina verður að læra í spori áður en sá lærdómur er yfirfærður yfir á ferðaskíðin, þannig að fólk geti byrjað að láta skíðin vinna fyrir sig og svífi áfram í staðinn fyrir að þramma! Þetta námskeið er því bæði hugsað fyrir byrjendur á brautarskíðum sem og þá sem hafa hingað til aðeins gengið á ferðaskíðum en vilja bæta tæknina. Þetta er líka frábært upphafsnámskeið fyrir skíðavertíðina, þ.e. fyrir þá sem þegar kunna eitthvað á brautarskíðum, en þurfa að rifja upp grunntæknina og taktana! Námskeiðið hefst á rafrænum fræðslufundi þar sem fjallað er um hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að búnaði, hver er munurinn á mismunandi skíðategundum, skíðaskóm og stöfum og hvernig á að klæða sig þegar gengið er á skíðum í spori. Á fyrstu æfingunni er svo komið að því að læra á búnaðinn, hvernig á að spenna á sig skíðin, hvernig best er að detta (því allir detta!) og taka fyrstu skíðagöngusveifluna :) Fyrstu þrjár æfingarnar eru skipulagðar dag eftir dag en einmitt með því að láta ekki of langan tíma líða á milli æfinga í upphafi, nær fólk mestum árangri og framförum. Lögð er megináhersla á að allir þátttakendur læri taktinn og nái tökum á vanaganginum, þ.e. klassíska sporinu í skíðagöngunni með alls konar tækniæfingum og leikjum. Að auki fá þátttakendur grunnkennslu í öðrum skíðagöngusporum svo sem ýtingum, ýtingum með frásparki, síldarbeinagangi upp brekkur og æfingu í því að renna niður brekkur. Hver kennslustund tekur um 2 klukkustundir og kennsla fer fram á skíðagöngusvæðinu í Bláfjöllum. Aðgangur að svæðinu er ekki innifalinn í verði. Dagskrá námskeiðsins
    • Mán. 5. jan. Kl. 20. Fræðslufundur
    • Þri. 6. jan. Kl. 18
    • Mið. 7. jan. Kl. 18
    • Fim. 8. jan. Kl. 18
    • Lau. 10. jan. Kl. 10
    Athugið að veður og snjóalög setja mjög oft strik í reikninginn þegar kemur að lagningu skíðaspora og því gæti þurft að hliðra kennslunni til um einhverja daga. Þátttakendur þurfa að eiga eða leigja brautargönguskíði, gönguskíðaskó og stafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Everest. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, þrautreynt skíðagöngufólk með réttindi. Námskeiðið kostar 28 þúsund kr. Skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins. Umsagnir
    • Ég hef áður farið á helgarnámskeið en fagmennskan hér er framúrskarandi í samanburði.
    • Gleði og þolinmæði kennaranna er áberandi.
    • Gott að geta klárað þetta á stuttum tíma í stað þess að draga þetta yfir nokkrar vikur.
    • Námskeiðið er vel upp byggt og frábært að blanda leikjum saman við tækniæfingar.
    • Skilvirkar æfingar, ég náði miklum framförum á fáum skiptum.
    • Frábært námskeið og rosa gaman.
    • Allt skemmtilegt og gaman að brjóta kennsluna upp með leikjum.
  • Kvöldganga í ljósadýrð 23. janúar Við fögnum myrkrinu og snjónum á köldu janúarkvöldi með því að halda í stjörnu- og norðurljósaskoðun á gönguskíðum. Markmiðið er að njóta kvöldsins, spjalla og fræðast um ljósasýningu himingeimsins, bæði stjörnur og norðurljós. Með því að ganga á skíðum halda allir sér heitum í vetrarnóttinni en við setjum líka upp tjald þar sem hægt er að leita skjóls og kveikjum lítinn varðeld auk þess að ylja okkur saman á heitu súkkulaði undir stjörnubjörtum himninum. Stefnt er að því að ganga í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, kl. 20, föstudagskvöldið 23. janúar og að ferðin taki alls 2-3 klst., þannig að þátttakendur verði komnir heim og undir sæng fyrir miðnætti. Athugið að áfangastaðurinn miðar þó alltaf við snjóalög, veður og ekki síst skýjahuluspá en það getur reynst nauðsynlegt að færa ferðina fram eða aftur um eitt eða tvö kvöld, eftir spá. Ferðalagið hentar öllum getustigum og er tilvalið fyrir byrjendur á ferðaskíðum. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti í aðdraganda ferðar en þurfa að lágmarki að eiga eftirfarandi búnað, fá hann lánaðan eða leigðan: Ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Ferðin kostar 14.900 kr. og innifalið er leiðsögn og utanumhald.
  • Tjaldnótt í krúnudjásni Hvítárvatns, Karlsdrætti 25.-26. júlí Sólkatla, Baldheiði og Hrefnubúðir. Örnefnin í kringum Karlsdrátt í Hvítárvatni eru nánast óþekkt og það er ótrúlegt til þess að hugsa að við séum rétt hjá Kili, Hvítárnesi og Bláfellshálsi en samt á svo framandi slóðum. Karlsdráttur er lítill og aflokaður, gróðursæll vogur í norðurenda Hvítárvatns þar sem fjölbreytt plöntulíf birtist óvænt milli jökulvatns og eyðisanda. Hér vex birki upp í miðjar hlíðar og einkennisblóm staðarins, eyrarrósin er alltumlykjandi. Alls vaxa hér 82 aðrar plöntutegundir í rúmlega 400 metra hæð yfir sjávarmáli sem þykir einstakt á Íslandi. Gegnt voginum skríður Norðurjökull út úr Langjökli við hlið Skriðufells og kelfir næstum því ofan í fölgrænt jökulvatnið. Neðar fellur sama jökulvatn í foss allra íslenskra fossa, Gullfoss í gljúfri Hvítár, sem Hvítárvatnið dregur nafn sitt af. Við leggjum í hann með vistir og viðlegubúnað til tveggja daga frá bökkum Hvítárvatns og róum 8-10 kílómetra leið að höfðanum sem lokar af voginum. Þarna sláum við upp tjöldum og gistum eina töfranótt í þessari vin á hálendinu. Þau allra hörðustu baða sig að sjálfsögðu í Hvítárvatni! Í morgunsárið daginn eftir, fyllum við á brúsa með tæru lindarvatni og göngum á Sólkötlu sem rís í ríflega 1000 metra hæð yfir sjávarmáli. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Langjökul og jökulskerin Þursaborg og Fjallkirkju auk þess sem Hrútfellið, Hvítárvatnið sjálft og sögufrægt umhverfi Kjalvegar blasir við frá afar sjaldséðu sjónarhorni. Gangan er um 10 km fram og til baka. Að göngu lokinni, seinnipart sunnudags tökum við saman tjaldbúðir og róum til baka sömu leið og við komum. Athugið að kajaknámskeið og/eða kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á undirbúningsnámskeið Útihreyfingarinnar. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og pökkunarpóst í aðdraganda ferðarinnar. Ferðin kostar 83.000 kr. og innifalið í verðinu er leiðsögn og utanumhald, leiga og flutningur á kajak, ár, toppi, svuntu og björgunarvesti. Sérhæfðir kajakleiðsögumenn fylgja hópnum alla leið.
  • Dagsferð í núvitund 14. desember Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum þriðja sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar. Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað! Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti. Lagt er af stað skömmu fyrir ljósaskiptin eða kl. 14:30 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna. Ferðin er ókeypis fyrir þá sem æfa með Útihreyfingunni í Útiræktinni. Aðrir greiða 14.900 þúsund kr. og fara í gegnum kaupferlið hér að neðan. Allir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Norski skerjagarðurinn. Kajak

    Price range: 60.000 kr. through 226.000 kr.
    Fjórir himneskir ferðadagar á kajak 14.-18. ágúst, 2026 Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli fallegra og afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, synt og slappað af, auk þess sem sérstakur leiðangurskokkur er með í för til að halda hópnum vel nærðum og glöðum! Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna og fjörlegt fuglalíf. Dagleiðirnar eru mjög stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma. Fyrstu nóttina er gist á hóteli í fallegum strandbæ en næstu þrjár nætur er gist í skálum sem eru hver öðrum glæsilegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / lakpoka. Hver og einn flytur sinn eigin farangur og sameiginlegan mat í kajaknum á milli gistiskálanna. Í upphafi ferðarinnar kaupir hópurinn saman í matinn en annar fararstjóranna er lærður kokkur og galdrar fram dásemdarmáltíðir bæði kvölds og morgna. Auk þess verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða. Ferðin tekur í heild fimm daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti dagurinn er ferðadagur. Þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum. Hópurinn heldur svo af stað frá Osló með rútu eftir hádegi föstudaginn 14. ágúst og ferðinni lýkur í Osló þriðjudagskvöldið 18. ágúst. Ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með morgunflugi sama dag og ferðin hefst, þ.e. föstudaginn 14. ágúst og geta annað hvort flogið heim, seint á þriðjudagskvöld 18. ágúst eða gist í Osló í eina nótt eftir ferð og flogið heim á miðvikudagsmorgun 19. ágúst. Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið í byrjun júní, 2026. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir. Verð 226.000 kr. Innifalið: Gisting í 4 nætur, allur matur sem borðaður er skálunum, þ.e. morgunmatur, kvöldmatur og nesti, ferðir innan Noregs með rútum og leigubílum, kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Ekki innifalið: Flug til Noregs. Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 60.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Dagsganga í jaðri þjóðgarðsins 14. febrúar Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er dásamlegt útivistarsvæði allan ársins hring en vetrarferðir þangað eru í sérstöku uppáhaldi hjá Útihreyfingunni. Þar sem Þingvellir liggja að nokkru ofan í sigdal, þá geta frosthörkur orðið þar miklar og sambland íss og snævar breytt svæðinu í stórkostlegt undraland. Langskemmtilegast, og raunar auðveldast líka, er að njóta þessarar dýrðar á ferðaskíðum. Það þarf þó ætíð að fara mjög varlega þegar ferðast er um Þingvallasvæðið og sérstaklega að vetri til, þar sem alls konar holur, gjótur og gjár geta leynst undir snjónum. Því mælum við alltaf með því að fylgja einhverjum sem þekkir til og veit hvar best er að fara. Í þessari ferð er stefnt að því að ganga um austurhluta þjóðgarðsins, og fara skemmtilega hringleið um Reyðarbarm, Hrútafjöll og Stóra Dímon, alls um 15 km, sem tekur um 5-6 klst. Fyrsta hluta leiðarinnar er gengið nokkuð jafnt og þétt upp í móti en hvergi mjög bratt og um leið og haldið er til baka þá tekur við þægileg lækkun, jafnvel þannig að hægt verður að renna sér frekar áreynslulaust nánast alla leið aftur í bíl! Lagt er af stað kl. 8 á laugardagsmorgni úr Reykjavík og stefnt að því að komið sé til baka til Reykjavíkur ekki seinna en um kl. 16. Athugið að endanleg ferðatilhögun svona skíðaferða þarf alltaf að taka tillit til bæði veðurs og snjóalaga. Þannig gæti þurft að breyta leiðarvali og ef veðurspáin er óhagstæð fyrir laugardaginn, er mögulegt að ferðin verði færð yfir á sunnudag. Þátttakendur fá nánari upplýsingar og búnaðarlista í tölvupósti í aðdraganda ferðar en þurfa að lágmarki að eiga eftirfarandi búnað, fá hann lánaðan eða leigðan: Ferðaskíði, þ.e. utanbrautarskíði með stálköntum, skinn undir skíðin og skíðastafi. Hægt er að leigja skíði á nokkrum stöðum, m.a. hjá skíðaleigu Útilífs. Ferðin kostar 19.900 kr. og innifalið er leiðsögn og utanumhald.
Go to Top