• Fjórar þrautir: Ferðaskíði. Fjallganga. Fjallahjól. Sundhlaup Útinaglinn er ný útivistar- og ævintýraáskorun, hönnuð fyrir þau sem vilja sameina útivist og þol, halda sér í formi og stíga örlítið út fyrir þægindarammann í þéttum og skemmtilegum félagsskap. Þetta er ferðalag í fjórum áföngum því þátttakendur taka þátt í fjórum mismunandi þrautum yfir árið. Árið 2026 eru það ferðaskíði, fjallganga, fjallahjól og sundhlaup. Þau sem klára allar fjórar þrautir ársins fá heiðursnafnbótina Útinaglinn 2026. Á hverju ári verða svo nýjar áskoranir og þrautir á nýjum slóðum, því markmiðið er að halda sér í frábæru útivistarformi með því að hafa alltaf skemmtileg, krefjandi og fjölbreytt verkefni til að stefna að. Útinaglaþrautirnar eru ekki keppnir, heldur alvöru útivistaráskoranir. Þetta eru ólíkar áskoranir en allar krefjast bæði úthalds og þrautseigju þar sem þú sjálf/ur ert þinn eini keppandi. Í leiðinni kynnistu nýju fólki, nýjum stöðum, lærir eitthvað nýtt, styrkir þig og bætir og færð mögulega nýja sýn á þig og þína getu! Naglaþrautir 2026 11. apríl. Ferðaskíði um Tröllakirkju Einn dagur. 10., 11. eða 12. apríl* Skíðað umhverfis Tröllakirkju á Holtavörðuheiði. 32 km Ekið samdægurs til og frá Rvk 20. júní. Fjallahjól að Fjallabaki Einn dagur. 19., 20. eða 21. júní* Hjólað frá Landmannahelli í Hvanngil. 53 km Gist að Fjallabaki á eigin vegum 18. júlí. Sundhlaup í Gufunesi og Viðey** Einn dagur. 17., 18. eða 19. júlí* Hlaupið í Gufunesi. 2 km Synt frá Gufunesi í Viðey. 750 m Hlaupið í Viðey. 4,5 km Synt frá Viðey í Gufunes. 750 m 22. ágúst. Fjallganga í Dyngjufjöllum Einn dagur. 21., 22. eða 23. ágúst* Gengið á 6 hæstu tinda Dyngjufjalla Gist við Öskju á eigin vegum Hvernig virkar þetta?
    • Árið 2026 er prufukeyrsla og takmörkuð pláss í boði
    • Þátttaka í öllum fjórum Naglaþrautunum kostar 128 þúsund og þátttakendur skrá sig skuldbindandi inn í allar fjórar þrautirnar í einu lagi
    • Ef hópurinn fyllist ekki, er mögulegt að selt verði inn í stakar þrautir
    • Æfingar og undirbúningur fyrir þrautirnar fara fram í Útiræktinni og þátttakendur þurfa því að vera áskrifendur í aðdraganda þrautanna
    Vertu með frá upphafi og komdu þér í frábært útivistarform til að geta tekist á við öll þau dásamlegu útivistarævintýri sem íslensk náttúra býður upp á. Skráning hér að neðan! *Athugaðu að við tökum þrjár dagsetningar frá fyrir hverja þraut. Stefnt er að því að halda þær allar á laugardegi, en ef veðrið er ekki að spila með, þá eru föstudagar og sunnudagar hafðir til vara. Ef veður er ekki hagstætt alla þessa þrjá daga, þá reynum við að flytja þrautina á milli landshluta. Og ef svo ólíklega vill til að það verði óveður um allt land, þá finnum við nýja dagsetningu fyrir uppbótarþraut, innan ársins. **Sundhlaup, hvað er nú það? Þetta er íþrótt sem rekur rætur sínar til fjögurra vina sem skoruðu hvert á annað að synda og hlaupa um 75 km leið í sænska skerjagarðinum. Og já, þau voru víst dálítið við skál þegar þetta var ákveðið :) Hér eru flottar upplýsingar frá áströlsku sundhlaupssamtökunum. Annars höldum við hjá Útihreyfingunni að mögulega sé þetta í fyrsta sinn sem sundhlaupsþraut er sett á dagskrá á Íslandi!
  • Útikonur

    9.900 kr.
    Námskeiðshópur frá september til júlí Kynning 1. sept. Fyrsta ganga 5. sept Fyrir konur sem vilja hreyfa sig reglulega, byggja upp gott gönguþol og upplifa skemmtileg ævintýri saman. Útikonur er námskeiðshópur fyrir konur sem langar að gera útiveru og hreyfingu að föstum hluta af lífinu. Hópurinn hittist að meðaltali fjórum sinnum í mánuði, tvisvar á þriðjudögum og tvisvar á laugardagsmorgnum, frá byrjun septembers og fram í byrjun júlí. Gengið er á fjöll og fell, en einnig meðfram sjónum og yfir holt og hæðir. Áherslan er á að byggja smám saman upp gott gönguþol og þrek þannig að við getum tekist á við stærri ævintýri eftir því sem líður á veturinn og vorið. Okkur finnst líka gaman að hafa útivistina fjölbreytta og skemmtilega. Þess vegna brjótum við reglulega upp göngurnar og prófum eitthvað allt annað svo sem hjól, gönguskíði, sjósund eða annað sem hentar hópnum og árstímanum. Skemmtilegast er svo að hafa ákveðin markmið til að stefna að og halda sér á göngutánum. Þess vegna höfum við sett hópnum tvö markmið af ólíkum toga sem bæði eru fanta spennandi.
    • Snæfellsjökull.  29. maí. Gengið á broddum og í línu upp á jökulinn* Gangan gæti færst yfir á sunnudag, ef illa viðrar þennan laugardag.
    • Fjallabak. 10.-11. júlí. Gönguhelgi, þar sem gengið verður í tvo daga, meðal annars á Grænahrygg, að Rauðufossum og Auganu. Gist í fjallaskála**
    Kynningarfundur fyrir Útikonur verður þriðjudaginn 1. september og fyrsta gangan er laugardaginn 5. september. Athugaðu að þú þarft ekki að ekki að hafa neina reynslu til að byrja. Hugmyndin er að við byggjum okkur upp saman og mætum hverri áskorun þegar að henni kemur. Markmiðið er heldur ekki að gera útivistina að átaki, frekar að skapa góðan hóp og venju sem endist til lengri tíma. Við ætlum að mæta reglulega, hreyfa okkur og verða sterkari saman og smám saman færa okkur út fyrir það sem við héldum að við gætum. Og svo auðvitað ætlum við að hafa ótrúlega gaman á leiðinni. Konur eru teknar í upphafsviðtal og vel er fylgst með framgangi og framförum þeirra m.a. inni á sameiginlegum Strava-hópi. Dagskrá hvers mánaðar er birt með góðum fyrirvara í sameiginlegum Facebook-hópi. Þar fá konur einnig allar upplýsingar um göngurnar, heimaverkefni og góða hvatningu. Umsjón með Útikonum hafa gleðisprauturnar Kristín Ýr Lyngdal og Bubba Snorradóttir. Þátttaka kostar 108.900 kr. fyrir tæpa 11 mánuði eða 9.900 kr. á mánuði. Til að skrá sig þarf einfaldlega að greiða fyrsta mánuðinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Þessi fyrsti mánuður er óskuldbindandi prufumánuður en eftir hann binda konur sig út tímabilið. *Konur sem ekki eiga brodda og ísöxi þurfa að fá slíkan búnað lánaðan eða leigðan **Við sjáum um að panta gistinguna en hún er ekki innifalin í mánaðargjaldinu og greiðist sér
  • Útigengið

    46.000 kr.
    NÆSTI HÓPUR BYRJAR 6. SEPTEMBER Fyrir öll sem elska fjöll! Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni og vilja nýta hana til líkamsræktar, ásamt því að kynnast nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum. Okkur í Útihreyfingunni finnst þó jafnan einn aðal ávinningurinn af reglulegum fjallgöngum (fyrir utan lögulegan afturenda...) vera andlega næringin og félagsskapurinn. Hægt er að njóta náttúrunnar og ganga í djúpum þönkum eða spjalla við ferðafélagana og kynnast nýju fólki. Fjallgöngur og útivera styrkja nefnilega ekki bara líkamann, lækka blóðþrýsting og bæta hjartaheilsu heldur næra ekki síður huga og sál, draga úr kvíða, þunglyndi og stressi auk þess sem félagslegi ávinningurinn er ómetanlegur. Sjá m.a. nýlega vísindagrein hér.  Dagskrá Útigengisins er að öllu jöfnu afar fjölbreytt og glímt er við stærri og minni fjöll eftir árstíma og aðstæðum. Auk þess er reynt að blanda saman þekktum og minna þekktum tindum og gönguleiðum. Í haust verður farið í alls 8 fjallgöngur frá byrjun september og fram í miðjan desember. Haldið er til fjalla á sunnudögum, að meðaltali aðra hvora helgi. Ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags. Að auki getur verið að veður valdi því að breyta þurfi áfangastaðnum. Dagskrá Útigengisins haustið 2026
    • 6. sept. Prestahnúkur
    • 13. sept. Skessuhorn
    • 4. okt. Bláfjöll - Herdísarvík
    • 18. okt. Hrafnabjörg
    • 1. nóv. Baula
    • 15. nóv. Keilir og Lambafellsklofi
    • 29. nóv. Meðalfell
    • 13. des. Fjallið Eina og Steinbogahellir
    Hópurinn hefur samskipti sín á milli og sameinast í bíla inni á sérstakri Facebook síðu. Umsjónarmenn Útigengisins eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, ásamt öðru leiðsögufólki Útihreyfingarinnar.
  • Norski skerjagarðurinn. Kajak

    Price range: 60.000 kr. through 262.000 kr.
    Fjórir himneskir ferðadagar á kajak 12.-16. ágúst, 2027 Róleg og nærandi kajakferð til Suður-Noregs þar sem ferðast er á milli fallegra og afskekktra eyja og skerja. Aðeins er róið stutt í einu, mikið staldrað við, skoðað, synt og slappað af, auk þess sem sérstakur leiðangurskokkur er með í för til að halda hópnum vel nærðum og glöðum! Svæðið er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og er hluti þess friðaður. Yfir öllu liggur andi gamals tíma, ró og friður. Fátt er eins viðeigandi og að ferðast á kajak um þetta svæði, renna hljóðlaust yfir hafflötinn og njóta nálægðarinnar við náttúruna og fjörlegt fuglalíf. Dagleiðirnar eru mjög stuttar eða frá 2 til 12 km og róið er innan skerjagarðsins í vari fyrir öldum úthafsins. Hópurinn stoppar oft til að njóta umhverfisins, fara í land, ganga og skoða sig um. Þeir sem vilja, geta róið meira útfrá náttstað. Að auki verðum við með veiðistangir og línur svo allir geta reynt sig við að veiða í matinn. Svo er auðvitað ómissandi að skella sér að minnsta kosti einu sinni á dag í hressandi sjósund en sjórinn er að öllu jöfnu um 20° á þessum árstíma. Fyrstu nóttina er gist á hóteli í fallegum strandbæ en næstu þrjár nætur er gist í skálum sem eru hver öðrum huggulegri og standa allir á draumfögrum og afskekktum eyjum sem aðeins eru aðgengilegar sjóleiðina. Í öllum skálunum er fyrirtaks aðstaða og uppábúin rúm en fólk þarf að koma með eigin skálapoka / lakpoka. Hver og einn flytur sinn eigin farangur og sameiginlegan mat í kajaknum á milli gistiskálanna. Í upphafi ferðarinnar kaupir hópurinn saman í matinn en annar fararstjóranna er lærður kokkur sem galdrar fram dásemdarmáltíðir. Auk þess verður stoppað á kaffihúsum og veitingastöðum sem finna má á sumum þeirra eyja sem heimsóttar verða. Ferðin tekur í heild fimm daga. Þar af er róið á kajak í fjóra daga en fyrsti dagurinn er ferðadagur. Þátttakendur koma sér til og frá Noregi á eigin vegum. Hópurinn hittist í Osló um hádegisbilið föstudaginn 12. ágúst og heldur af stað með rútu. Ferðinni lýkur svo í Osló mánudagskvöldið 16. ágúst eftir sameiginlegt sánabað í Oslóarfirði :) Ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið til Oslóar með morgunflugi sama dag og ferðin hefst, þ.e. föstudaginn 12. ágúst og geta annað hvort flogið heim, seint á mánudagskvöld 16. ágúst eða gist í Osló á eigin vegum í eina nótt eftir ferð og flogið heim á þriðjudagsmorgun 17. ágúst. Athugið að kajaknámskeið og/eða einhver kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Við bendum á byrjendanámskeið Útihreyfingarinnar sem tekur eitt kvöld og verður haldið í byrjun júní, 2027. Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Sirrý Ágústsdóttir. Ferðin kostar 262 þúsund kr.og innifalið er leiðsögn, undirbúningsfundur og allt utanumhald; gisting í fjórar nætur; allur matur sem borðaður er í skálunum, þ.e. morgunmatur, kvöldmatur þegar ekki er borðað á lókal veitingastöðum og nesti yfir daginn; ferðir innan Noregs með rútum og leigubílum; kajakleiga og allur tilheyrandi búnaður; einka sánugusa í lok ferðar. Athugið að flugið til og frá Noregi er ekki innifalið í verði. Til að panta ferðina þarf að greiða staðfestingargjald 60 þúsund kr. Eftirstöðvar verða svo rukkaðar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.
    Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar Þriggja ára stórbrotið ferðalag Jöklafarar er heitið á nýrri áskorun Útihreyfingarinnar þar sem þátttakendur ganga á ferðaskíðum þvert yfir sex stærstu jökla landsins, þ.e. Eyjafjallajökul, Drangajökul, Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Langjökul og Vatnajökul. Markmiðið er ekki að fara upp á hæsta tind hvers jökuls fyrir sig, þ.e. fram og til baka, heldur að skíða þvert yfir jöklana þannig að endað sé á öðrum stað en ferðin hófst. Hægt er að klára áskorunina á eigin hraða, þ.e. á eins skömmum eða löngum tíma og hentar hverjum og einum. Hins vegar skipuleggur Útihreyfingin verkefnið og mælir með því að það sé klárað á alls þremur árum frá upphafi til enda, þannig að byrjað sé á æfingum á ferðaskíðum og minni jöklum áður en ráðist er í flóknari og lengri ferðir og jöklaútilegur. Í hnotskurn Við mælum með því að þau sem hafa enga reynslu og eru að byrja frá grunni, hefji vegferðina með því að læra á ferðaskíði þ.e. utanbrautargönguskíði með stálköntum og æfa sig svo vikulega nágrenni Reykjavíkur með Úti ferðaskíðahópnum. Að auki þurfa óvanir að taka kvöldnámskeið í vetrarfjallamennsku þar sem kennd er línuhegðun á jökli og notkun á jöklabroddum og ísöxi. Fyrsta árið er frábært að stefna að því að þvera einn eða alla af þessum þremur jöklum: Drangajökul, Eyjafjallajökul og Langjökul. Þessa jökla er hægt að þvera hvern um sig á einum löngum skíðadegi og því þarf ekki að gista í tjaldi á jökli þetta fyrsta árið. Annað árið mælum við með námskeiðinu Ferðast á gönguskíðum þar sem þátttakendur læra öll trixin við að ferðast með púlku í eftirdragi og tjalda í snjó auk þess sem farið er í æfingaútilegu til að þjálfa handtökin. Að vori er síðan hægt að halda í 3-4 daga ferðir á Hofsjökul annars vegar og Mýrdalsjökul hins vegar. Síðasta árið er svo komið að konungi íslenskra jökla, sjálfum Vatnajökli. Það er ferðalag sem tekur heila viku og þarfnast góðs undirbúnings og æfinga. Ekki aðeins þurfa þátttakendur að vera í góðu líkamlegu formi og þekkja búnaðinn sinn vel, heldur er líka nauðsynlegt að undirbúa hausinn fyrir átökin og langa daga á jökli. Að lokum fá þátttakendur viðurkenningarskjal og heiðursnafnbótina Jöklafari og eru þá komnir með fullan og óskoraðan rétt til að grobba sig á alla jöklakanta, jafnvel á alþjóðavettvangi 🙂 Síðasta tækifærið? Markmið þessa verkefnis er þó ekki eingöngu að vera þátttakendum til skemmtunar og áskorunar. Með frásögnum af ferðunum í máli og myndum, viljum við líka vekja athygli almennings, heima og erlendis, á hraðri bráðnun jöklanna af völdum loftslagshlýnunar. Myndum leiðangursmanna verður m.a. safnað á sameiginlega myndasíðu á samfélagsmiðlum undir samheitinu #lastoftheglaciers eða síðustu jöklarnir. Hópurinn reynir þannig að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að okkar kynslóð verði ekki síðasta kynslóðin sem nýtur þess að ferðast á skíðum um jökla landsins. Skráning Athugið að hvorki er nauðsynlegt að klára áskorunina í ofangreindri röð né á þremur árum. Ef fólk er vant því að ferðast á skíðum þá er hægt að raða jöklaferðunum saman á hvern þann hátt sem hentar og jafnvel byrja á Vatnajökli! Að auki geta þeir sem þegar eru búnir að þvera einhverja jökla auðvitað líka verið með og bætt í safnið. Til að taka þátt þarf aðeins að skrá sig til leiks með því að smella hér. Í kjölfarið verður þér boðið inn í sérstakan FB hóp allra þátttakanda og ævintýrið hefst. Hér að neðan setjum við jafnóðum inn linka inn á viðeigandi jöklaferðir og undirbúningsnámskeið auk ferða sem hægt er að nýta til að æfa skíðatæknina og handtökin. JÖKLAFERÐIR 2026 Eyjafjallajökull. 23. apríl 2026 Drangajökull. 15.-17. maí 2026 Vatnajökull. Aftur á dagskrá 2027 Langjökull. Aftur á dagskrá 2027 Mýrdalsjökull. Á dagskrá 2027 Hofsjökull. Á dagskrá 2027 UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ 2026 Úti ferðaskíði. Námskeið og æfingahópur. Aftur á dagskrá 2027 Ferðast á gönguskíðum. Námskeið og útilega. Aftur á dagskrá 2027 Vetrarfjallamennska. Grunnnámskeið. Aftur á dagskrá 2027 ÆFINGAFERÐIR 2026. Ferðir 2027 detta inn haustið 2026 Yfir Tindfjöll. Þriggja daga fjallaskíðaferð.
  • UPPSELT Skráðu þig á biðlista hér Dekurævintýri á Bali og Flores 7.-20. nóvember Ný fjórtán daga ævintýraferð til indónesíska eyjaklasans þar sem ótrúleg náttúrufegurð og iðandi dýralíf blandast framandi og litríkri menningu. Hér ætlum við að sleppa tökum og slaka á, sigla á milli eyja inni í þjóðgarði, læra að kafa, stunda jóga og njóta. Ferðinni er annars vegar heitið til eyjarinnar Flores og nálægra smáeyja og hins vegar til Bali. Þetta eru tveir afar ólíkir heimar, ekki síst vegna þess að Flores er enn að miklu leyti ósnortin af túrisma á meðan Bali hefur verið áfangastaður ferðamanna í áratugi. Hópurinn flýgur á eigin vegum til Bali í upphafi ferðar og gistir saman á flugvallarhóteli í Denpasar fyrstu nóttina (7. nóvember) áður en flogið er yfir til eyjunnar Flores daginn eftir. Þar hefst ferðin í litlum en líflegum strandbæ við flóa sem er fullur af bátum af öllum stærðum og gerðum. Hópurinn tekur því rólega fyrstu dagana á meðan verið er að lenda í nýju umhverfi og jafna sig á löngu flugi. Hér er andrúmsloftið hrátt og menningin ólík því sem við eigum að venjast. Ákall til bæna heyrist úr moskunum á ýmsum tímum sólarhringsins og lífið á götum úti fer fram í hávaða, hlátri, óhreinindum og miklum hita. Við kynnumst þessu ómótstæðilega bæjarlífi en höldum líka inn í land og upp í frjósamar hæðirnar þar sem við lærum að þekkja í sundur jurtir og elda hefðbundinn florískan mat. Eftir þrjár nætur, flytur hópurinn sig um borð í seglbát og lærir að kafa á meðan siglt er á milli eyja og sandskerja í Komodo þjóðgarðinum. Þátttakendur geta valið um yfirborðsköfun (snorkl) í tærum sjónum eða grunnnámskeið í djúpsjávarköfun niður á allt að 18 metra dýpi. Þau sem þegar eru með köfunarréttindi geta tekið upprifjunarnámskeið og/eða bætt við sig framhaldsréttindum. Athugið að köfunarnámskeiðin eru skipulögð og haldin af afar traustu belgísku fjölskyldufyrirtæki sem setur öryggið ofar öllu og hefur rekið köfunarþjónustu og haldið köfunarnámskeið í Flores í 12 ár við góðan orðstír. Við útskrift fá þátttakendur alþjóðleg PADI köfunarréttindi og PADI skírteini. Á milli þess sem hópurinn kafar og skoðar fjölbreytt neðansjávarlífið, m.a. risaskötur og skjaldbökur, þá er legið í leti á dekki, synt í heitum og tærum sjónum eða skotist í land til að ganga um, skoða leðurblökur í þúsundavís og hina gríðarstóru og ófrýnilegu Komododreka sem eru stærstu eðlur jarðarinnar. Hér bókstaflega hægist á lífinu og nýr og rólegri taktur tekur yfir. Eftir fjögurra daga siglingu er farið í land á lítilli og nánast mannlausri eyju, þar sem hópurinn gistir í litlum en vel útbúnum tveggja manna strandkofum við litríkt kóralrif. Ef hvít sandströnd og vaggandi hengirúm er ekki nóg til að fá alla inn í núvitundarástand þá eru alls konar dekurmeðferðir, jóga og nudd einnig í boði! Svo má líka alltaf skreppa út á kajak eða siglingabretti, snorkla eða kafa meira. Við kveðjum þessa Róbinson Krúsó paradís eftir þrjár nætur, fljúgum yfir til eyjunnar Bali og dveljum síðustu dagana í bænum Ubud, þar sem öll skilningarvitin hrökkva í gang eftir undangengin rólegheit. Ubud er menningarmiðstöð eyjunnar. Hér eru musteri með blómaskreytingum og reykelsisilmi við hvert fótmál, mannmergð og gríðarleg umferð en líka jóga, innhverf íhugun og nudd í öðru hverju húsi. Og maturinn er hreint út sagt stórkostlegur! Við gistum hér í þrjár nætur á frábærlega staðsettu fimm stjörnu og margverðlaunuðu hóteli. Dagarnir hefjast á sameiginlegri jógastund á meðan sólin rís yfir trjátoppunum en svo gerir hver og einn það sem hugurinn girnist. Hægt er að rölta á milli mustera, versla, ganga um hrísgrjónaakrana, fara í nudd, skoða apa, prufa alls konar mismunandi jógatíma eða bara hanga í hótelsundlauginni ;) Verð 544 þúsund kr. Innifalið: Allar ferðir, flug og akstur innan Indónesíu, gisting í 13 nætur með morgunmat, allar máltíðir um borð í seglbátnum, PADI köfunarnámskeið og réttindi, allur tilheyrandi köfunarbúnaður og námsgögn, rafrænt bóklegt köfunarnámskeið í aðdraganda ferðar, matreiðslunámskeið, jógatímar, aðgangseyrir í Komodo þjóðgarðinn, leiðsögn og allt utanumhald. Aukagjald er tekið fyrir einkakáetu í seglbátnum þær þrjár nætur sem þar er gist. Alls 15 þúsund fyrir hefðbundna káetu fyrir tvo (2,5 þús. pr. nótt pr. mann) eða 27 þúsund fyrir lúxus káetu fyrir tvo (4,5 þús. pr. nótt pr. mann. Ekki innifalið: Flug til og frá Indónesíu, þjórfé, einstaklingsbundnar ferðatryggingar og annað sem ekki er upp talið hér að ofan. 100,000 kr. staðfestingargjald er greitt við pöntun og eftirstöðvar í síðasta lagi átta vikum fyrir ferð.  
  • Ævintýralega góð gjöf Dýrmætasta gjöfin er alltaf samvera með þeim sem þér þykir vænt um. Og það verður ekki betra en þegar samveran er í formi skemmtilegrar útivistar þar sem allir leika sér saman. Gefðu þér eða þínum gjafabréf sem gildir í alla útihreyfingu, námskeið eða ævintýri Útihreyfingarinnar. Það er hægt er að velja upphæð hér að neðan. Svo má senda póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is til að gefa gjafabréf með upphæð að eigin vali eða til að panta gjafabréf inn í sérstaka ævintýraferð með Útihreyfingunni. Gjafabréfið kemur fallega uppsett í tölvupósti til útprentunar.
  • Hekla, Krakatindur og Augað 19.-20. september Dásemdar gönguhelgi að Fjallabaki. Farið verður í þrjár afar ólíkar göngur þar sem eldfjöll, hraun og hrjóstrugt landslag svæðisins fær að njóta sín til fulls. Haustið er sérstaklega fallegt á þessum slóðum: loftið tært, litirnir djúpir og kyrrðin meiri en yfir hásumarið. Hópurinn sameinast í bíla og ekur af stað úr Reykjavík kl. 8 á laugardagsmorgun. Þennan dag er stefnan tekin á Heklu sem jafnan er kölluð drottning íslenskra eldfjalla og rís tæplega 1500 metra yfir sjávarmáli. Göngulengd dagsins fer að nokkru eftir því hversu langt verður hægt að aka og getur annað hvort verið um 10 eða 15 km og tekið 4-7 klst. Um nóttina er gist í svefnpokagistingu í vel búnum fjallaskála og þar mun hópurinn grilla saman og njóta samverunnar með hefðbundinni kvöldvöku. Eftir staðgóðan, sameiginlegan morgunmat á sunnudaginn verður haldið í tvær stuttar en ólíkar göngur. Byrjað er á því að aka eftir Dómadalsleið og ganga að Rauðufossum og svo áfram að Auganu sem er eitt dulmagnaðasta náttúrufyrirbæri landsins. Seinnipart dagsins verður svo haldið á Krakatind sem er sérlega glæsilegur, formfagur og sjaldfarinn tindur. Það er stutt ganga á tindinn með örlitlu klöngri við toppinn sem þó ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Samtals eru göngur dagsins um 14 km. Útsýni af Heklu er vægast sagt stórbrotið og fari svo að þoka umljúki fjallið á laugardaginn, munum við svissa göngudögunum og fara þann daginn sem betur viðrar. Að auki er vert að taka það skýrt fram að Hekla er eitt virkasta eldfjall landsins og ganga á fjallið felur alltaf í sér ákveðna áhættu sem hver og einn göngugarpur verður að vega og meta með sjálfum sér. Ferðin kostar 48 þúsund krónur og innifalið er leiðsögn og allt utanumhald, gisting í fjallaskála, grillmáltíð og morgunmatur. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan tölvupóst, m.a. með búnaðarlista og yfirferð yfir veðurspár í aðdraganda ferðar.
  • Dagsferð í núvitund 6. desember Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum annan sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar. Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað! Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti. Lagt er af stað skömmu fyrir ljósaskiptin eða kl. 14:30 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna. Allir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.
  • Líklega fallegasta kajakleið í heimi! 29. ágúst Dagsferð á kajak þar sem siglt er á milli Arnarstapa og Hellna á Snæfellsnesi, fram og til baka, með útúrdúr að Sölvahamri. Gönguleiðin á milli þessara staða er frábær en jafnast samt ekkert á við þau ótrúlegu undur sem blasa við þegar siglt er meðfram ströndinni. Við ætlum bara að halda því blákalt fram að þetta hljóti að vera einhver fallegasta kajakleið í heiminum! Hér er að finna alls konar hraun- og bergmyndanir, óteljandi hella, boga, göng og göt, stórkostlegt stuðlaberg í allar áttir, fullt af fossum og hreinlega endalaust fuglalíf í miklu návígi; skarfa, langvíur, álkur, teistur, lunda og allar tegundir af máfum. Yfir öllu gnæfir svo þríhyrningslaga Stapafellið og Snæfellsjökull hangir í bakgrunni sem punkturinn yfir i-ið. Það þarf að vera sérlega lyngt og gott veður til að hægt sé að fara þessa leið á kajak. Við stefnum á laugardaginn 29. ágúst en höfum sunnudaginn 30. ágúst til vara og jafnvel föstudaginn 28. ágúst. Athugið að kajaknámskeið og/eða fyrri kajakreynsla er forkrafa inn í ferðina. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og pökkunarpóst í aðdraganda ferðarinnar. Ferðin kostar 54 þúsund kr. og innifalið í verðinu er leiðsögn og allt utanumhald, leiga og flutningur á kajak, ár, toppi, svuntu og björgunarvesti. Sérhæfðir kajakleiðsögumenn fylgja hópnum alla leið.
Go to Top