NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 3. OKT
Námskeið þar sem útivist er notuð til endurhæfingar ásamt samveru og jafningjaspjalli
Ætlað öllum sem eru að koma sér aftur af stað eftir erfið veikindi svo sem krabbameinsmeðferð. Leiðarljós námskeiðsins er fólk finni sinn eigin kraft og frið í náttúrunni og öðlist styrk í gegnum samveru með öðrum sem eru á sama stað.
Frábært fyrsta skrefið fyrir meistara sem vilja koma sér í gott útivistarform, sigra fjöll og firnindi og sig sjálf í leiðinni. Léttar göngur, kaffispjall og raunhæf markmið, eitt skref í einu!
Hópurinn hittist alls fimm sinnum og lokatakmarkið er hæg ganga upp á Úlfarsfell sem rís tæplega 300 metra yfir sjávarmál.
Dagskrá námskeiðsins
- 3. okt, kl. 14. Laugardalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall í Kaffi Flóru.
- 10. okt, kl. 14. Öskjuhlíð. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bragganum.
- 17. okt, kl. 14. Elliðaárdalur. Ganga og léttar æfingar. Kaffispjall á Bístró.
- 24. okt, kl. 14. Úlfarsfell. Sigurgangan :)
- Í lok námskeiðs verður bónusferð í sjósund í Nauthólsvík.