Útihreyfingin í 8 mánuði

113.600 kr.

Átta mánaða áskrift að Útihreyfingunni.

Æfingaáætlun sem byggir á tveimur til þremur sameiginlegum krossþjálfunaræfingum á viku þar sem blandað er saman mismunandi æfingum og mismunandi hreyfingu. Markmiðið er að tryggja líkamlega getu, þol og þrek fyrir alls konar útivist og ævintýramennsku.

Meðlimir Útihreyfingarinnar æfa allt árið um kring.

  • Þriðjudagar kl. 17:30 – Úti þrek
    Styrktar- og þrekæfingar ásamt alls konar hraðasprettum. Oftast hlaupandi en stundum á hjólum. Æfingarnar fara fram í Elliðaárdal, Öskjuhlíð, Laugardal og víðar.
  • Fimmtudagar kl. 17:30 – Úti fimi
    Tækni- og gæðaæfingar. Hlaup, hjól eða skíði. Á Hólmsheiðinni, Úlfarsfelli, í Heiðmörk, Bláfjöllum og víðar.
  • Laugardagar / sunnudagar kl. 9:30 – Úti að leika
    Lengri hreyfing til skiptis á laugardögum og sunnudögum. Fjallganga, hjólreiðar, fjallahlaup, fjallaskíði, gönguskíði, kajak, ferðaskíði, klifur, sjósund. Gamlir og nýir slóðar í nágrenni Reykjavíkur.

Æfingarnar eru hraðaskiptar og henta öllum getustigum. Við bendum þó byrjendum og þeim sem eru að fara af stað eftir langt hlé, á Úti 101, 4ra mánaða byrjendanámskeið sem hefjast í janúar og september á hverju ári. Þar er lögð áhersla á hæga uppbyggingu með auknu utanumhaldi, kennslu og fræðslu.

Við trúum ekki á átaksverkefni en vitum að það getur verið erfitt að halda sér að verki. Þess vegna er persónulegt utanumhald mikilvægur þáttur í Útihreyfingunni. Strax eftir skráningu er meðlimum boðið í rafrænt upphafsviðtal um markmið og væntingar, ásamt því að þrisvar á ári fá allir endurgjöf og mat á stöðu sinni og árangri.

Meðlimir í Útihreyfingunni njóta forgangs og afsláttar í flestar ferðir og námskeið hreyfingarinnar, Úti ævintýri.

20.766 kr. í 6 mánuði

Title

Go to Top