Móskarðshnjúkar, Laufskörð og Hátindur

5.900 kr.

Fjallganga
25. maí

Við göngum upp að Bláhnjúk og áfram inn í Móskarðið. Þar er stefnan tekin í vestur og Móskarðshnjúkanir þræddir þangað til að Laufskörðum sleppir. Síðan er  gengið í sveig og upp á Hátindinn og fram á Hátindshyrnuna til að skoða og mæra útsýnið. Þaðan er gengið er tilbaka niður hrygginn við Hátindshyrnu og niður í Þverdalinn.

Þessi ganga er um 12 km fram og tilbaka með hækkun upp á ca 750 mtr. Lagt er af stað úr bænum um kl. 9:00 um morguninn en allar frekari upplýsingar eru sendar á skráða þátttakendur þegar nær dregur.

Útigengið fer í vikulegar gönguferðir með gleðina í fyrirrúmi. Dagskráin er fyrir öll sem langar að kynnast fjöllum og stöðum í nágrenni Reykjavíkur. Tilvalinn gönguhópur fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref í fjallgöngum eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum og vilja kynnast útivistarfólki, nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.

Title

Go to Top