Blákollur. Fjallganga

5.900 kr.

Fjallganga
27. október

Blákollur er fjall sem kemur á óvart! Þetta er sjaldfarinn tindur en samt í alfaraleið því við höfum öll ekið þarna framhjá mörg hundruð sinnum.

Leiðin á tindinn opnar á útsýni á fjalllendi sem hulið er sjónum þegar ekið er framhjá Hafnarfjalli. Landsýnin á tindinum er stórfengleg. Í suðri er Akrafjall, Esjan og Reykjanesið, í vestri allt Snæfellsnesið, Baula og Holtavörðuheiði í norður og allir tindar Skarðsheiðarinnar í austur.

Gangan hefst kl. 09:00 um góðan stíg sem hefur myndast á hryggnum á leið upp á Blákoll sjálfan en búast má við að gangan taki 3-4 tíma með um það bil 700 metra hækkun yfir rúma 5 kílómetra.

Útigengið er fjallgönguhópur þar sem gleðin er í fyrirrúmi. Dagskráin er fyrir öll sem langar að kynnast fjöllum og stöðum í nágrenni Reykjavíkur. Tilvalinn hópur fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref í fjallgöngum eða þau sem langar að dusta rykið af göngubúnaðinum og vilja kynnast útivistarfólki, nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.

Title

Go to Top