Aðild

Vertu með okkur úti að leika allan ársins hring. Þú getur slegist í hópinn hvenær sem er.

Við bjóðum upp á þrjár mislangar áskriftarleiðir í Útihreyfingunni: 4 mánuði, 8 mánuði, og 12 mánuði.

Hagstæðast er að vera í ársáskrift og ef fleiri en einn frá sama lögheimili skráir sig í Útihreyfinguna í 12 mánuði, fá viðbótarmeðlimir 20% fjölskylduafslátt.

Það skiptir þó ekki öllu máli hvað þú kaupir langa áskriftarleið því allir meðlimir Útihreyfingarinnar æfa eftir sömu æfingaáætlun sem byggir á tveimur til þremur sameiginlegum krossþjálfunaræfingum á viku. Æfingarnar eru getu- og hraðaskiptar og blandað er saman mismunandi æfingum og mismunandi hreyfingu. Markmiðið er að tryggja líkamlega getu, þol og þrek fyrir alls konar útivist og ævintýramennsku.

Persónulegt utanumhald er mikilvægur þáttur í Útihreyfingunni og strax eftir skráningu er öllum meðlimum boðið í rafrænt upphafsviðtal um markmið og væntingar.

Úti 101 er sex vikna grunnnámskeið fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir frekari útihreyfingu og ævintýri.

Meðlimir í Útihreyfingunni njóta forgangs og afsláttar í flest Útiævintýri hreyfingarinnar, þ.e. ferðir og námskeið.