• Fjölskylduferð par exelans Sendu okkur póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is ef þú hefur áhuga á þessari eða svipaðri ferð fyrir þig og þinn hóp. Þetta er afslappandi draumaferð fyrir foreldra með orkumikla unglinga og hreint frábær fermingargjöf. Auk þess að læra að sörfa á brimbretti er áhersla lögð á að gera skemmtilega hluti saman og skapa góðar minningar. Hópurinn hefur aðsetur í notalegum brimbrettabúðum / surf camp / gistiheimili rétt utan við fallegt sveitaþorp, skammt norður af Biarritz í Suður-Frakklandi. Gist er í hefðbundnum herbergjum og í svokölluðum glæsilegutjöldum. (Glæsilega er íslenskun á enska orðinu glamping, dregið af orðinu útilega!). Í húsinu og samliggjandi garði eru sameiginleg setusvæði, hengirúm, trampólín, badminton- og blakvöllur, lítil sundlaug, borðtennisborð og fleiri leiktæki, meðal annars margs konar hjólabretti sem gaman er að æfa sig á. Garðurinn er bæði friðsæll og fallegur og liggur í þéttu skóglendi þar sem oft má sjá ýmis skógardýr á vappi. Ingrid og Mathieu, hjónin sem reka búðirnar, eru ekki bara brimbrettameistarar heldur líka yndislegir gestgjafar og aldrei að vita nema þau taki fróðleiksfúsa gesti í örlitla frönskukennslu :) Hópurinn borðar morgunmat saman á hverjum morgni og hefur síðan val um að elda saman í vel útbúnu sameiginlegu eldhúsi, nýta sér grillaðstöðuna í garðinum eða skreppa í bæinn þar sem góðir veitingastaðir eru á hverju horni. Brimbrettakennslan sjálf fer að mestu fram við fullkomnar aðstæður á stórkostlegri villiströnd sem liggur við Biscayaflóa, í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá búðunum. Allt svæðið er eitt stórt Mekka fyrir brimbrettaunnendur enda hægt að finna öldur við allra hæfi. Kennararnir hafa marga fjöruna sopið og búa að áratuga reynslu við að kenna bæði fullorðnum og börnum niður í 7 ára aldur á brimbretti. Flestir eru farnir að standa upp á brettinu og svífa á öldunum eftir aðeins nokkra daga, sumir jafnvel á fyrsta degi. Hver brimbrettatími tekur um það bil einn og hálfan tíma og á eftir er ágætt, að minnsta kosti fyrir þá fullorðnu, að jafna sig með smá lúr annað hvort undir sólhlíf á ströndinni eða í hengirúmi í garðinum. Hver tími í sjónum reynir glettilega mikið á og gott er að endurnýja orkuna með því að taka slökun inn á milli. Yngri og orkumeiri meðlimir hópsins þurfa þó ekki að láta sér leiðast á meðan, því nóg er við að vera, ekki bara í búðunum sjálfum heldur er boðið upp á margs konar afþreyingu í nágrenninu. Meðal annars er hægt að leigja hjól og skoða sig um eða róa á kajak á stóru vatni skammt frá. Skipulögð verður að minnsta kosti ein hópferð í stórskemmtilegan via ferrata adrenalíngarð og að auki er stefnt að einu spássikvöldi í nálægum strandbæ. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi á eigin vegum í brimbrettabúðirnar, en við hjá Útihreyfingunni aðstoðum þátttakendur við skipulagningu á ferðum til og frá. Innifalið í ferðinni er allt utanumhald og fararstjórn í Frakklandi, gisting með morgunverði í sex nætur og fimm kennslustundir á brimbretti.  
  • Ævintýralega góð gjöf Dýrmætasta gjöfin er alltaf samvera með þeim sem þér þykir vænt um. Og það verður ekki betra en þegar samveran er í formi skemmtilegrar útivistar þar sem allir leika sér saman. Gefðu þér eða þínum gjafabréf sem gildir í alla útihreyfingu, námskeið eða ævintýri Útihreyfingarinnar. Það er hægt er að velja upphæð hér að neðan. Svo má senda póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is til að gefa gjafabréf með upphæð að eigin vali eða til að panta gjafabréf inn í sérstaka ævintýraferð með Útihreyfingunni. Gjafabréfið kemur fallega uppsett í tölvupósti til útprentunar.
  • Tveggja daga hraðnámskeið Sendu okkur póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is ef þú hefur áhuga á þessari eða svipaðri ferð fyrir þig og þinn hóp. Lærðu að skíða með dreka og náðu tökum á því að ferðast langar vegalengdir með lítilli fyrirhöfn á þessu tveggja daga, þétt pakkaða námskeiði. Kennslan fer fram á Harðangursvíðernum Noregs en þar gefast einhverjar bestu mögulegu aðstæður til að læra á þennan magnaða ferðamáta. Stærð svæðisins gerir það að verkum að hægt er að finna góðar aðstæður í öllum vindáttum og flestum veðrum. Þetta er Mekka íþróttarinnar og hingað sækir drekaskíðafólk víðs vegar að. Kennt er á glænýja dreka með nýjasta öryggisbúnaði sem völ er á. Margar stærðir á drekum standa til boða, allt eftir vindstyrk og getu og stærð þátttakanda. Námskeiðið stendur í allt að sex klukkustundir hvorn dag. Kennararnir á námskeiðinu eru með reynslumestu kennurum Noregs í þessari íþrótt og hafa stundað drekaflug bæði á sjó og snjó í áraraðir, sumir í áratugi. Ferðin hefst í Osló og þaðan er ekið saman í smárútu til skíðabæjarins Geilo þar sem gist er næstu tvær nætur. Ef Downtown Abbey hefði verið kvikmyndað í Noregi þá hefði hótelið sem hópurinn gistir á, verið hinn fullkomni tökustaður þáttanna! Þetta er glæsilegt, lúxus sveitahótel þar sem dekrað er við gesti í mat og drykk sem og öllum aðbúnaði. Ferðinni lýkur formlega með keyrslu til Osló. Þátttakendur koma með sinn eigin skíðabúnað og þurfa að hafa góða grunnþekkingu á skíðum eða snjóbretti. Innifalið Kennsla á skíðadreka og leiga á drekum fyrir námskeiðið. Tveggja nátta gisting á lúxus sveitahóteli með tveimur kvöld- og morgunverðum. Flutningur á fólki og farangri innan Noregs. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Athugið að hægt er að lengja ferðina með því að tengja hana við gönguskíðaferð á milli fjallaskála í tveimur norskum þjóðgörðum. Þá er gengið á ferðaskíðum í fjóra daga áður en Drekaskíðanámskeiðið hefst.  
Go to Top