Um Útihreyfinguna

Fólkið sem stendur að Útihreyfingunni kemur úr ólíkum áttum en hefur náð tengingu í þjálfun, hreyfingu og fjallaævintýrum undanfarin ár. Öll illa haldin af hreyfiofsa og ævintýraþrá.

Við viljum halda okkur í formi til að geta lagt í ævintýri, unnið áfangasigra og náð markmiðum okkar. Við vitum að með góðum æfingafélögum, skotheldri og fjölbreyttri æfingaáætlun og stórum skammti af gleði þá er auðvelt að halda sér að verki.

Útihreyfingin er hreyfing um hreyfingu. Alls konar hreyfingu. Í stærsta æfingasal landsins. Úti.

Helga María
Helga MaríaFramkvæmdastjóri
Framkvæmdastýra milli 9 og 5. Ofurplanari, þjálfari, og jógandi leiðsögukona þess á milli.
Brynhildur Ólafsdóttir
Brynhildur ÓlafsdóttirÆvintýrahönnuður
Leiðsögukona og náttúrubarn sem elskar ekkert meira en gott bras á fjöllum!
Róbert Marshall
Róbert MarshallStjórnarformaður
Starfandi stjórnarformaður og útiþjálfari sem er jafnvígur á gítar og saxafón.
Arna Torfadóttir
Arna TorfadóttirLandvættaþjálfari
Hlaupadrottning og járnkona með keppnisskapið í lagi.
Kjartan Salómonsson
Kjartan SalómonssonLandvættaþjálfari
Hlaupasjúkur fyrrum fótboltaþjálfari sem kallar ekki allt ömmu sína.
Kristín Lyngdal
Kristín LyngdalÚti-101 þjálfari
Útivistarkona sem kemst þangað sem hún ætlar sér með gleðina að vopni.
Magnús Viðar
Magnús ViðarUmsjónarmaður Útigengisins
Fjallakóngur og flugbjörgunarsveitarmaður sem elskar að kenna fólki á GPS tæki.
Ilmur Kristjánsdóttir
Ilmur KristjánsdóttirUmsjónarmaður Útigengisins
Sögukona og jógakennari sem kann best við sig úti að leika.
Sandra Sif Morthens
Sandra Sif MorthensÚtiskrifstofan
Sí skíðandi jöklaleiðsögunemi og mikil kaffiáhugakona.
Hrönn Ívarsdóttir
Hrönn ÍvarsdóttirUmsjónarmaður Útigengisins
Fjallelskandi leiðsögukona og lífskúnstner sem líður best með ísexi í hönd.
Hafsteinn Halldórsson
Hafsteinn HalldórssonUmsjónarmaður Útigengisins
Slökkviliðsmaður, kafari og okkar varðstjóri á fjöllum.
Ert þetta þú?
Ert þetta þú?Þjálfari eða leiðsögumaður
Langar þig til að slást í hópinn? Láttu okkur þá vita!