Úti rafmagnshjól. Ferðahópur
65.000 kr.
Fjórar fjallahjólaferðir frá júní til sept
Fyrsta ferð 18. júní
Þessi hópur er bæði fyrir þau sem eiga nú þegar rafmagnsfjallahjól sem og þau sem vilja kynnast svona hjólum og læra á þau. Útihreyfingin á í samstarfi við Icebike og þar verður hægt að leigja rafmagnshjól fyrir allar ferðirnar á frábærum afslætti.
Lögð er áhersla á að blanda fræðslu saman við ferðirnar. Ekki bara hjólakennslu heldur líka fræðslu um áfangastaðina og allt það áhugaverða sem fyrir augu ber á þessum ferðalögum.
Takmarkið er fjórþætt:
- Að fræðast um og kynnast skemmtilegum hjólaleiðum og áfangastöðum, bæði í nágrenni Reykjavíkur sem og lengra í burtu.
- Að læra betur á rafmagnshjólið og alla möguleika þess. Þekkja hvað er líkt og hvað ólíkt með rafmagnshjólum og hefðbundnum fjallahjólum / hjólreiðum.
- Að ná góðum tökum á fjallahjólatækninni. Æfa jafnvægið, klifur og downhill í mismunandi aðstæðum auk þess að geta farið yfir hindranir á öruggan hátt.
- Og síðast en ekki síst að skapa fallegan félagsskap hjólara sem njóta þess að vera úti að leika.
Við tökum fagnandi á móti bæði byrjendum og lengra komnum því allar ferðirnar eru skipulagðar þannig að hver og einn getur hjólað á sínum hraða.
Hópurinn hittist alls 5 sinnum, einu sinni á rafrænum upphafsfundi þar sem farið verður yfir búnaðinn og ferðalögin framundan og fjórum sinnum í fjallahjólaferðum. Þrjár fyrstu ferðirnar eru á miðvikudagskvöldum og taka 3-4 klst. en síðasta ferðin er löng laugardagsferð um Gamla Kjalveg sem endar á góðri sameiginlegri grillveislu!
Dagskrá hópsins
- 18. júní. Hengilssvæðið
- 16. júlí. Mosfellin
- 20. ágúst. Skarðsheiði
- 13. sept. Gamli Kjalvegur
Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól. Þeir sem ekki eiga, geta leigt glæsileg rafmagnshjól í toppástandi með 40% afslætti hjá Icebike eða á 78.500 kr. fyrir þrjá daga og eina helgi. Afhending og viðtaka hjólanna er í Mosfellsbæ.
Helga María Heiðarsdóttir leiðir hópinn ásamt Brynhildi Ólafsdóttur.
Þátttaka kostar 65 þúsund kr. Innifalið er utanumhald og leiðsögn. Skráðir þátttakendur verða boðaðir á upphafsfund og fá nánari upplýsingar í tölvupósti í aðdraganda námskeiðsins.