Undir Matterhorn. Snarganga

80.000 kr.334.000 kr.

Átta dýrðardagar á stórbrotnum fjallastígum
22. – 29. ágúst

Ferðast um eitt mikilfenglegasta svæði Alpanna, fjallasalina sem liggja um hið heimsfræga Matterhorn, fjallið sem stundum er kallað Toblerone-fjallið, enda er súkkulaðið mótað eftir þríhyrndri lögun fjallsins!

Í þessari ferð er gengið á milli vinalegra og vel útbúinna fjallaskála og m.a. gengið á hæsta Alpatindinn sem hægt er að sækja heim án sérstaks háfjallaútbúnaðar, 3.600 metra yfir sjávarmáli. Við reynum okkur líka við auðvelda klettagönguleið (via ferrata), dáumst að umhverfinu speglast í blátærum fjallavötnum og böðum okkur að sjálfsögðu í einu þeirra, göngum yfir lengstu hengibrú í Ölpunum, ferðumst í kláfum og úðum í okkur svissnesku súkkulaði og bráðnum osti á meðan við fræðumst um sviplega fjallgöngusögu héraðsins og kapphlaupið um hver yrði fyrstur upp á Matterhorn.

Við köllum þennan ferðamáta snargöngu, sem er íslenskun á fyrirbærinu fast hiking og liggur á milli hefðbundinnar fjallgöngu og fjallahlaups. Í snargönguferðum er verið að njóta náttúrunnar og hraði er ekki takmark í sjálfu sér. Hins vegar er gengið í léttum utanbrautahlaupaskóm en ekki gönguskóm og leitast við að ferðast með eins léttan bakpoka og kostur er auk þess sem stundum er valhoppað við fót, því Sviss er jú heimaland sjálfrar Heidi 🙂

Hópurinn hittist á flugvellinum í Genf og ferðast saman í lest inn í Rhonedalinn, þaðan sem farið er með lítilli rútu upp í enn þrengri háfjallasal. Þar hefst svo gangan strax síðdegis á því að gengið er stuttan spöl upp í fyrsta fjallaskálann. Ferðin tekur í heild átta daga og þar af er gengið um stórkostlega fjallastíga í sjö daga. Dagleiðirnar eru um 10-13 km langar og oftast gefst tækifæri til að borða góðan hádegismat í skálum á leiðinni. Eftir því sem líður á ferðina, færist Matterhornið stöðugt nær og síðustu þrjá dagana er varla hægt að komast úr sporunum fyrir óviðjafnanlegu útsýni og fjallafegurð.

Okkar mottó er að það eigi alltaf að ljúka svona fjallaskálaferðum með góðu dekri. Hópurinn endar því í miklum vellystingum á lúxushóteli í Zermatt, þar sem hægt er að láta ferðaþreytuna líða úr sér í heitum nuddpotti á meðan sólin sest á bak við fjallið fagra. Ef fólk hefur tök á því, þá mælum við heilshugar með því að framlengja dvölinni í Zermatt um nokkra daga. Þar eru frábærir fjallahjólastígar, klettagönguleiðir og endalaus tækifæri til frekari útivistar. En svo má líka bara liggja í leti, nuddi og dekri 🙂

Daglegur farangur er ekki trússaður á milli skála, enda liggja þeir flestir langt utan akvega og alfaraleiða. Í upphafi ferðar, þ.e. á flugvellinum í Genf, eru töskur þátttakenda hins vegar sendar til Zermatt, svo að þar gefst tækifæri til að klæða sig í spariföt fyrir síðustu kvöldmáltíðina.

Ferðin er skipulögð með þeim hætti að fólk getur flogið frá Íslandi til Genfar sama dag og ferðin hefst, þ.e. 22. ágúst og jafnframt náð flugi heim frá Sviss daginn sem ferðinni lýkur, þ.e. 29. ágúst. Athugið að líka er hægt að fljúga til og frá Zurich eða Milano, allt eftir því sem hentar best. Hafið samband ef spurningar vakna.

Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall.

Innifalið í ferðinni sem kostar 334 þúsund er lestarferð til og frá Genf í upphafi og lok ferðar, skutl með rútu að upphafsstað göngunnar, gisting í sjö nætur, þar af fimm í fjallaskálum, ein á fjallahóteli og ein á lúxushóteli. Kvöldmatur öll kvöld nema síðasta kvöldið. Morgunmatur alla morgna og nesti þá daga sem ekki gefst tækifæri til að stoppa í hádegismat. Flutningur á farangri til Zermatt, far með kláfum, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald. Athugið að flug til og frá Sviss er ekki innifalið í verði.

Hægt er að greiða ferð að fullu eða staðfestingargjald 80.000 kr. og eftirstöðvar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð.
Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns.

Title

Go to Top