Gamli Kjalvegur. Rafmagnsfjallahjól

32.900 kr.

Ein flottasta hjóladagleið landsins
13.
september

Gamli Kjalvegur, þjóðleiðin frá Hveravöllum niður að Hvítárvatni, er hreint út sagt stórkostleg hjólaleið og hentar fullkomlega sem góð dagleið fyrir rafmagnsfjallahjól, alls um 45 km.

Hjólað er á alls konar undirlagi. Á malarvegum, yfir helluhraun, um sandorpin svæði og á vel þjöppuðum moldargötum á milli angandi lyngbreiða svo eitthvað sé nefnt.

Í þessari ferð er hvorki mikið klifur né downhill en við þorum hins vegar að fullyrða að einhver flottasta náttúrulega flæðihjólabraut landsins sé að finna á þessu svæði. Komdu með og upplifðu flæðið!

Útsýnið er frábært. Við hjólum í hálfhring um Hrútfellið fallega, með Langjökul á aðra hönd, meðfram farvegi Fúlukvíslar, um svipmikil hraun og stórkostleg gljúfur.

Að auki er þetta gríðarlega sögfrægt svæði. Hér eru slóðir Reynisstaðabræðra, Fjalla Eyvindar og Höllu auk margs konar hyskis, bæði þessa heims og annars og nóg af skemmtilegum sögum til að rifja upp.

Lagt er af stað úr Reykjavík kl. 8 á laugardagsmorgun og gera þarf ráð fyrir að ferðin taki allan laugardaginn og fram á kvöld. Stefnt er að því að enda ferðina á góðri útigrillveislu áður en ekið verður aftur til Reykjavíkur.

Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól. Ekki er verra ef þátttakendur eru með heilhjálm með kjálka (fullface hjálm) og hjólabrynju. Allir þurfa að auki að taka með viðgerðardót og gott nesti í bakpoka.

Skráðir þátttakendur fá tölvupóst með ítarlegum upplýsingum um alla ferðatilhögun og búnaðarlista í aðdraganda ferðar.

Fararstjóri er Brynhildur Ólafsdóttir.

Title

Go to Top