Fimmvörðuháls. Námskeið
84.000 kr.
Fjallgöngunámskeið og ganga yfir Fimmvörðuháls
22. júní – 25. júlí
Fimmvörðuháls er fyrir löngu orðin ein vinsælasta gönguleið landsins og ekki að ástæðulausu þar sem leiðin er afar fjölbreytt og gríðarlega falleg. En þetta er líka dágóð fjallgönguáskorun, því gangan er löng og frekar krefjandi.
Núna er þó tækifærið komið fyrir öll sem hefur dreymt um að ganga þessa leið. Á þessu mánaðarlöngu fjallgöngunámskeiði er markmiðið að þátttakendur æfi og undirbúi sig saman, gangi sig upp í gott fjallaform og endi á sameiginlegri göngu yfir hálsinn fræga. Áhersla er lögð á samheldni, að byggja upp gönguþol og góða göngutækni og auðvitað gleðina!
Námskeiðið samanstendur af rafrænum fræðslufundi 23. júní, sex samæfingum og æfingaplani til að fylgja fyrir utan samæfingarnar. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu og á fjöllunum þar í kring. Lokagangan sjálf, yfir Fimmvörðuhálsinn, verður svo farin laugardaginn 25. júlí.
Dagskrá
- Fræðslufundur. Mán. 22. júní, kl. 20:00
- Æfing. Þri. 23. júní, kl. 17:30
- Æfing. Lau. 27. júní, kl. 9:00
- Æfing. Þri. 30. júní, kl. 17:30
- Æfing. Sun. 12. júlí, kl. 9:00
- Æfing. Þri. 14. júlí, kl. 17:30
- Æfing og undirbúningsfundur. Þri. 21. júlí, kl. 17:30
- Gengið yfir Fimmvörðuháls. Lau. 25. júlí
Gangan yfir Fimmvörðuhálsinn er um 25 km löng og hækkunin er um 1000 m. Búast má við því að gangan taki 10-11 klst. með góðum stoppum.
Eldsnemma laugardaginn 25. júlí sameinast þátttakendur í einkabíla í Reykjavík og aka á Hvolsvöll. Þaðan ekur svo rúta með hópinn að upphafsstað göngu við Skógarfoss en farangur þátttakenda er trússaður inn í Þórsmörk.
Hraði göngunnar stýrist af hópnum sem heild, enda er þetta sameiginlegt ferðalag. Markmiðið er einfaldlega að njóta þess að ganga þessa fallegu leið og koma stolt niður í Bása í lok ævintýralegs göngudags.
Í Básum bíður farangur hópsins og hægt er að fara í sturtu, grilla og borða saman. Gist verður um nóttina í svefnpokaplássi í góðum skála og skömmu eftir hádegi næsta dag, sunnudaginn 26. júlí, sækir rúta hópinn og skutlar honum aftur á Hvolsvöll þar sem ferð lýkur.
Fararstjóri og umsjónarmaður námskeiðsins er Kristín Ýr Lyngdal og með henni í göngunni yfir Fimmvörðuhálsinn er Bubba Snorradóttir.
Athugið að námskeiðið er hugsað sem nokkurs konar sjálfstætt framhald af Úti 101 og Úti 102 námskeiðunum okkar en þar fá þátttakendur grunnkennslu í göngum og léttum hlaupum. Næsta Úti 101 námskeið hefst 7. maí og er góður grunnur fyrir Fimmvörðuhálsnámskeiðið og raunar nauðsynlegt fornámskeið, a.m.k. fyrir þau sem eru að byrja að koma sér í form.
Námskeiðið kostar 84 þúsund krónur og innifalið er fræðslufundur, sex sameiginlegar æfingar, ítarlegt æfingaplan, undirbúningsfundur fyrir Fimmvörðuhálsinn, fjallaganga yfir Fimmvörðuháls, rútuskult í upphafi og í lok ferðar, trúss á farangri inn í Bása, ásamt svefnpokagistingu í Básum.






