Mosfellin. Rafmagnsfjallahjól

17.900 kr.

Kvöldhjólaferð á nýjum slóðum
16. júlí

Stórskemmtilegur fjallahjólahringur þar sem við þræðum alls konar stíga í Mosfellsbæ og nágrenni, prófum m.a. glænýja hjólaleið niður Æsustaðafjall og brunum líka niður Reykjafellið.

Lagt er af stað stundvíslega kl. 18 frá Álafossi í Mosfellsbæ, á rafmagnsfjallahjólum með nauðsynlegt viðgerðardót og nesti í bakpoka. Gera má ráð fyrir að hjóleríið taki um 3 klst. en ferðin endar á sama stað og hún byrjar.

Leiðin sem er hjóluð býður upp á alls konar skemmtilegar áskoranir sem eru til þess fallnar að bæta jafnvægi hjólaranna og æfa þá í bæði klifri og downhill og að fara yfir hindranir á öruggan hátt.

Við tökum fagnandi á móti bæði byrjendum og lengra komnum, því ferðin er skipulögð þannig að hver og einn getur hjólað á sínum hraða. Auk þess er fræðslu um hjólið og góða hjólatækni blandað inn í ferðalagið ásamt fróðleik um áfangastaðina.

Til að taka þátt þarf að eiga eða leigja fulldempað rafmagnsfjallahjól og vera með heilhjálm með kjálka (fullface hjálm) og hjólabrynju.

Skráðir þátttakendur fá tölvupóst með upplýsingum og búnaðarlista í aðdraganda ferðar.

Fararstjóri er Helga María Heiðarsdóttir.

Title

Go to Top