Hornstrandir. Allt á bakinu

112.000 kr.

Fjórir göngudagar á hjara veraldar
24.-27. júlí

Á Hornströndum rennur hrikaleg náttúrufegurð saman við dulmagnað andrúmsloft horfinna tíma á svo ólýsanlegan hátt að ferðalangar fá ekki nóg og þurfa að koma aftur og aftur. Þetta er náttúruperla sem sannarlega liggur við endimörk hins byggilega heims og hér háðu ábúendur fyrri tíma hreint ótrúlega lífsbaráttu. Á Hornströndum fær fólk enda á tilfinninguna að náttúruöflin sýni annað hvort sínar allra bestu eða allra verstu hliðar, en lítið þar á milli!

Í þessari ferð verður gist í tjöldum í þrjár nætur og gengið í fjóra daga um svæði sem margir líta á sem hjarta Hornstranda, þ.e. svæðið umhverfis Hornbjarg og Hælavíkurbjarg. Þetta er svokölluð hægferð, þ.e. aðalmarkmiðið er að njóta þess að vera á staðnum, ganga á eigin hraða, hlusta á fuglana og gaggið í friðaðri tófunni. Tvo fyrstu dagana er gengið með allan viðlegubúnað á bakinu en tvo seinni dagana með léttan dagpoka. Hópurinn fær svo sendar vistir fyrir sameiginlega grillveislu síðasta kvöldið.

Snemma fyrsta daginn er siglt frá Ísafirði yfir á Hesteyri og samdægurs gengið yfir Kjaransvíkurskarð í Hlöðuvík (16 km) þar sem tjaldað er. Á öðrum degi er gengið upp Skálakamb og um Atlaskarð yfir í Höfn í Hornvík (12 km) þar sem tjaldað verður til tveggja nátta. Veður og skýjalög fá að ráða gönguskipulagi síðustu daganna. Annan daginn verður að minnsta kosti gengið á Hornbjarg (18 km) og hinn yfir í Látravík (12 km) eða Rekavík bak Höfn (10 km), allt eftir veðri og vindum. Síðla síðasta daginn, eftir hressandi sjóbað, nær bátur í hópinn og komið verður til baka til Ísafjarðar um kvöldmatarleytið.

Fararstjórar í þessari ferð eru frænkurnar og garparnir Andrea Sigrún Harðardóttir og Hildur Jóna Gylfadóttir sem rekja ættir sínar í Hornvík og dvelja þar hvert einasta sumar. Þær þekkja þarna hvern krók og kima og bókstaflega allar sögur svæðisins og kunna að auki þá list að segja skemmtilega frá 🙂

Ferðin kostar 112 þúsund kr. Athugið að hægt er að greiða ferðina í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Innifalið er siglingin, leiðsögn og utanumhald plús grillmáltíð síðasta kvöldið.

Skráðir þátttakendur verða boðaðir á rafrænan upplýsingafund í aðdraganda ferðar og fá að auki ítarlegan tölvupóst með búnaðarlista og góðum undirbúningsráðum.

Title

Go to Top