Yfir Tindfjöll. Fjallaskíði
129.000 kr.
Þriggja daga frábær fjallaskíðaferð
1.-3. maí
Stórkostlega skemmtileg þriggja daga fjallaskíðaferð í Tindfjöllum og nágrenni, þar sem gist er í tvær nætur í nýuppgerðum og vel útbúnum fjallaskála norðan megin Tindfjallanna.
Lagt er af stað á einkabílum úr Reykjavík í rauðabýtið á föstudegi. Bílar eru skildir eftir á Hvolsvelli en þaðan er ekið með jepparútum upp að neðsta skálanum í Tindfjöllum þar sem farið er í skíðin og dagpokum skellt á bakið. Svo er skíðað og skinnað sem leið liggur upp á Tindfjallajökulinn, yfir hann og niður langa og gríðarlega skemmtilega brekku niður á jafnsléttu norðan megin fjallanna, alls tæplega 15 km leið. Þar sem brekkurnar þrýtur bíða trússbílar sem draga hópinn á skíðunum síðasta spölinn í skálann eða um 2-3 km leið.
Á laugardeginum verður skíðað í brekkunum í nágrenni skálans og jafnvel haldið upp í Tindfjöllin norðaustan megin. Á sunnudag er svo skinnað og skíðað aftur yfir Tindfjallajökulinn, með smá útúrdúr upp á Ými og Ýmu ef veður leyfir, áður en brunað er eins langt niður sunnan megin og snjóalög leyfa. Jepparútur skutla svo hópnum aftur í bílana sem bíða á Hvolsvelli.
Allur farangur hópsins, svefnpokar og matur er trússaður í skálann svo aðeins þarf að skíða með létta dagpoka, alla þrjá skíðadagana.
Athugið að þetta er frekar krefjandi skíðaferð að því leyti að fyrsti og síðasti dagurinn geta orðið töluvert langir. Þátttakendur þurfa því að vera í nokkuð góðu formi.
Ferðin kostar 129 þúsund kr. og innifalið í verðinu eru 2 gistinætur í skála, sameiginlegur kvöldmatur bæði kvöldin og morgunmatur báða morgna, trúss á farangri í og frá skála, flutningur með jepparútum að og frá upphafs- og lokastað göngunnar, leiðsögn og allt utanumhald.
Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og pökkunarpóst í aðdraganda ferðarinnar.







