Úti 101

32.000 kr.

Næsta námskeið hefst 2. september

Sex vikna grunnnámskeið, haldið þrisvar á ári, í janúar, maí og september.

Námskeiðið er fyrir fólk sem er að byrja að stunda útihreyfingu eða að fara af stað eftir langt hlé og vill læra undirstöðuatriði í útihlaupi, kynnast sjósundi og byggja upp þol og styrk fyrir útihreyfingu og ævintýri.

Æft er tvisvar til þrisvar í viku og mikið er um göngur, létt hlaup og þrekæfingar.

Æfingarnar fara fram á útivistarsvæðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, svo sem í Elliðaárdal, Öskjuhlíð og Laugardal en líka er gengið á lægri fjöll í nágrenni Reykjavíkur svo sem upp á Mosfell og Úlfarsfell og víðar.

Dagskrá námskeiðsins

  • Kynningarfundur 26. ágúst kl. 20:00
  • Alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30
  • Lengri æfingar aðra hvora helgi, kl. 9:30
    • Sunnudaginn 7. sept
    • Sunnudaginn 21. sept
    • Sunnudaginn 5. okt

Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á persónulegt utanumhald sem hefst með upphafsviðtali um markmið og væntingar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í útihreyfingu og að því loknu er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeið Úti 102.

Úti 101 endar á sameiginlegri útskriftaræfingu þar sem áfanganum er fagnað.

Umsjón með námskeiðinu hefur Kristín Ýr Lyngdal ásamt Helgu Maríu Heiðarsdóttur.

Title

Go to Top