Jarlhettur endilangar. Fjallganga
38.000 kr.
Dagsganga meðfram öllum Jarlhettunum
4. júlí
Jarlhettur er áberandi móbergshryggur sem liggur meðfram Langjökli suðaustanverðum og státar af mörgum sérstæðum og gríðarlega fallegum tindum.
Þessir tindar eru afar ólíkir innbyrðis, lágir, háir, breiðir og mjóir og fyrir innan þau kúra fjöldamörg gömul jökullón, hvert í sínum einstaka lit.
Í þessari göngu ætlum við að skilja bíla eftir við Jarlhetturnar sunnanverðar og fá far með jeppatrukki upp í Skálpanes þaðan sem við hefjum göngu.
Við byrjum á að kíkja að Innstu-Jarlhettunni sem jafnframt er sú hæsta, í 1060 m hæð, og sú eina sem liggur ennþá að hálfu umvafinn jökli. Þaðan göngum við svo á bak við og inn á milli tindanna að Stóru-Jarlhettu (920 m) sem stundum er kölluð Tröllhetta. Við stefnum á að ganga upp á hana til að njóta stórbrotins útsýnis yfir Langjökul og Hagavatn.
Við göngulok bíður svo pulsupartý eftir hópnum við Einifell og kíkt verður upp að Hagavatni og Nýjafossi í Farinu, ef tími vinnst til, áður en haldið er aftur heim á leið.
Þetta er löng dagleið, um 22 km, með Stóru-Jarlhettu og búast má við að gangan taki 8-9 klst. Ef veður er sérlega óhagstætt þennan laugardag, þá verður skoðað og metið hvort hægt sé að hnika ferðinni fram eða aftur um 1-2 daga.
Ferðin kostar 38 þús. kr. og innifalið er jeppaskutl í upphafi ferðar, pulsupartý, leiðsögn og utanumhald. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan tölvupóst í aðraganda ferðar.
