Aðventuganga. Ferðaskíði

14.000 kr.

Dagsferð í núvitund
8. desember

Þessi skemmtilega aðventuhefð varð til fyrir nokkrum árum og hefur ræklega slegið í gegn. Gengið er á ferðaskíðum annan sunnudag í aðventu, með bókina Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í eyrunum, í snilldarlestri Róberts Arnfinnssonar.

Þetta er sannkölluð núvitundarganga því við tökum hlustuninni alvarlega og í þessari göngu er ekki talað, bara hlustað!

Göngumenn lifa sig inn í þjóðlegan reynsluheim fyrri alda og spegla sig í ævintýrum Fjalla-Bensa sem stundaði eftirleitir á jólaföstunni á Mývatnsöræfum. Þar gekk hann um á skíðum, oft í stórhríð og fimbulkulda, ásamt forystusauðinum Eitli og hundinum Leó og bjargaði sauðfé frá því að fenna í kaf og verða úti.

Lagt er af stað í ljósaskiptunum eða kl. 15 og gengið með höfuðljós inn í myrkrið, í alls tæplega 3 klst. Gangan hefst og endar við Skíðaskálann í Hveradölum og þar geta þátttakendur, að göngu lokinni, gætt sér á nýbökuðum vöflum og rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma. Ef ekki gefur nægan snjó til skíðagöngu frá Hveradölum, verður skoðað að færa gönguna.

Ferðin er ókeypis fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar sem þó þurfa að smella hér til að skrá sig til leiks, svo hægt sé að skipuleggja ferðina sem best. Aðrir greiða 13 þúsund kr. og fara í gegnum kaupferlið hér að neðan.

Allir skráðir þátttakendur fá nánari upplýsingapóst þegar nær dregur ferð.

Title

Go to Top