Skarvheimar. Ferðaskíði

362.000 kr.Staðfestingargjald 80.000 kr. greiðist við bókun.

Til í verslun

Skíðað á milli skála í Noregi
10.–15. mars

Krefjandi og ævintýraleg ferðaskíðaferð um hálendið á milli Jötunheima og Harðangursvíðerna

Í ár kynnum við nýtt svæði í Noregi: Skarvheima sem er víðáttumikið hálendi á milli Hallingdals og fjarðanna í vestri, með fjallgarðinn Hallingskarvet sem kennileiti. Á veturnar komast fáir þangað nema á skíðum.

Gengið er á ferðaskíðum (utanbrautarskíðum með stálköntum) í fjóra daga og gist í hlýlegum fjallaskálum og á litlum fjallahótelum, þar sem okkar bíður heitur matur á kvöldin.

Fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Leiðangurinn hefst á Gardemoen flugvelli í Osló, og þaðan er haldið með lest og rútu upp í gamalt fjallahótel fyrir norðan Hemsedal, þar sem hópurinn borðar saman kvöldmat og gistir fyrstu nóttina.

Fyrsti skíðadagurinn er stystur, aðeins um 12 km leið upp skála sem stendur í um 1.580 metra hæð. Þetta er óþjónustaður skáli, svo hópurinn vinnur saman og eldar sinn mat úr birgðum skálans. Næsta dag er gengið um 16 km í stóran og vel þjónustaðan skála norska ferðafélagsins. Þriðja daginn er er líka gengið um 16 km á skíðunum og endað í litlu og sérlega notalegu fjallahóteli þar sem öll herbergi eru með baði.

Síðasta skíðadaginn verður svo boðið upp á tvo valkosti. Þeir sem það vilja geta skíðað alls 31 km (að mestu í spori) alla leið til Geilo, þar sem ferðin endar. Einnig verður hægt að velja styttri dagleið, um það bil helming leiðarinnar, og fá akstur þaðan til Geilo. Þannig geta allir notið síðasta dagsins á sínum forsendum.

Lokahótel ferðarinnar er algjör perla og uppáhalds gististaður okkar í Noregi. Þetta er fjölskyldurekið sveitasetur frá 1917 og þar bíður okkar gufa og hreint út sagt stórkostlegur fjögurra rétta kvöldverður, eldaður úr hráefni úr héraðinu.

Að morgni síðasta dagsins er haldið með smárútu beint á Gardemoen flugvöll í góðum tíma til að ná flugi heim til Íslands.

Athugið að þetta er frekar krefjandi ferð og að stærstum hluta utan skíðaspora. Þátttakendur þurfa því að hafa góða reynslu af ferðaskíðum og vera í góðu formi.

Gott er að undirbúa sig með því að æfa með Úti ferðaskíðahópnum sem byrjar í janúar. Einnig er góð æfing að taka þátt í styttri og lengri ferðaskíðaferðum á Íslandi, svo sem Aðventugöngunni 6. desember, Þingvallaferðinni 13. febrúar og ferðinni yfir Snæfellsnes 27. febrúar.

Haldinn er rafrænn undirbúningsfundur fyrir ferð, þar sem m.a. verður farið ítarlega yfir búnað og annað skipulag.

Fararstjórar eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall.

Innifalið í ferðinni, sem kostar 362 þúsund, er öll gisting, þ.e. tvær nætur í fjallaskálum og þrjár nætur á fjallahótelum og á lúxus sveitasetri. Allur matur, nema hádegismatur ferðadagana tveggja. Lestar- og rútuferðalög, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald.

Í fjallaskálunum er gist í svefnskálum og 2–6 manna herbergjum. Sængur og koddar eru í rúmunum, en allir koma með eigin lakpoka.

Flug til og frá Noregi er ekki innifalið. Ferðin er skipulögð þannig að hægt er að fljúga til Oslóar með Icelandair að morgni 10. mars, sama dag og leiðangurinn hefst og til baka seinnipartinn 15. mars.

Staðfestingargjald ferðarinnar er 80.000 kr. og eftirstöðvar eru greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð. Lágmarksþátttaka miðast við 10 manns og hámarkið er 18 þátttakendur.