Fimmvörðuháls. Ganga

56.000 kr.

Ævintýralegur göngudagur
25. -26. júlí

Fimmvörðuháls er fyrir löngu orðin ein vinsælasta gönguleið landsins og ekki að ástæðulausu þar sem leiðin er afar fjölbreytt og gríðarlega falleg.

Gangan yfir Fimmvörðuhálsinn er um 25 km löng og hækkunin um 1200 m. Búast má við því að gangan taki 10-11 klst. með góðum stoppum.

Eldsnemma laugardaginn 25. júlí sameinast þátttakendur í einkabíla í Reykjavík og aka á Hvolsvöll. Þaðan ekur svo rúta með hópinn að upphafsstað göngu við Skógarfoss en farangur þátttakenda er trússaður inn í Þórsmörk.

Hraði göngunnar stýrist af hópnum sem heild, enda er þetta sameiginlegt ferðalag. Markmiðið er einfaldlega að njóta þess að ganga þessa fallegu leið og koma stolt niður í Bása í lok ævintýralegs göngudags.

Í Básum bíður farangur hópsins og hægt er að fara í sturtu, grilla og borða saman. Gist verður um nóttina í svefnpokaplássi í góðum skála og skömmu eftir hádegi næsta dag, sunnudaginn 26. júlí, sækir rúta hópinn og skutlar honum aftur á Hvolsvöll þar sem ferð lýkur.

Fararstjórar eru Kristín Ýr Lyngdal og Bubba Snorradóttir.

Ferðin kostar 56 þúsund krónur og innifalið er undirbúningsfundur, leiðsögn, rútuskult í upphafi og í lok ferðar, trúss á farangri inn í Bása ásamt svefnpokagistingu inni í skála í Básum.