Snæfellsnesið endilangt. Raðganga
69.000 kr.
Fjögurra daga leiðangur með allt á bakinu
25.-28. júní
Útihreyfingin kynnir ómótstæðilega raðgöngu þar sem gengið er með allt á bakinu eftir hæstu tindum, eggjum og brúnum Snæfellsnessins.
Gengið verður í fjóra daga á hverju sumri í fjögur ár, frá 2026 til 2030, allt frá djúprótum fjallgarðsins við Bröttubrekku í austri, út á ystu nöf við Djúpalónssand í vestri. Að mestu er gengið um afar fáfarnar slóðir í mögnuðu landslagi en þrisvar sinnum er gengið niður og þvert á fjallvegi sem skera gönguleiðina.
Fyrsti hluti raðgöngunnar hefst uppi á Bröttubrekku og endar í Hnappadalnum, austur undir Ljósufjöllum. Annað árið er gengið eftir Ljósufjöllunum endilöngum niður að Vatnaleiðinni. Þriðja árið er gengið alla leið að Fróðárheiði eftir afar fjölbreyttum fjallstindum, m.a. Helgrindum, með útsýni bæði norður yfir Breiðarfjörðinn og suður yfir Faxaflóa. Fjórða og síðasta árið er gengið að og yfir Snæfellsjökul og niður að sjó við Djúpalónssand.
Fyrsti hluti: Brattabrekka-Rauðamelsölkelda
Sumarið 2026 verður gengið í fjóra daga og gist í tjöldum í þrjár nætur. Fyrsta daginn eru bílar þátttakenda skildir eftir þar sem göngu lýkur og rúta skutlar hópnum að upphafsstað göngunnar, þar sem fjallvegurinn um Bröttubrekku liggur hæst í rúmlega 400 m hæð. Gengið er sem leið liggur yfir í Langavatnsdal þar sem tjaldað er fyrstu nóttina.
Næsta dag er haldið um Mjóadal og Svínbjúg að enda Hítarvatns. Þriðja daginn verður haldið upp á Geirhnúk sem er hæsti tindur þessa fyrsta hluta raðgöngunnar og liggur í rétt tæplega 900 m hæð og tjaldað við Lönguvötn. Síðasta daginn er svo haldið yfir veginn um Heydal, meðfram Oddastaðavatni og að Rauðamelsölkeldu þar sem ferð endar.
Hver dagleið er 12-15 km og alls verða gengnir rétt ríflega 50 km. Athugið að ef veðurspá er sérlega óhagstæð þessa daga, verður skoðað og metið hvort hægt sé að hnika ferðinni fram eða aftur um 1-2 daga.
Ferðin kostar 69.000 kr. og innifalið er rútuskutl í upphafi ferðar, leiðsögn og utanumhald. Skráðir þátttakendur verða boðaðir á rafrænan undirbúningsfund og fá ítarlegan tölvupóst með búnaðarlista og góðum undirbúningsráðum.
Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall leiða ferðina.
