Um Útihreyfinguna

Fólkið sem stendur að Útihreyfingunni kemur úr ólíkum áttum en hefur náð tengingu í þjálfun, hreyfingu og fjallaævintýrum undanfarin ár. Öll illa haldin af hreyfiofsa og ævintýraþrá.

Útihreyfingin er hreyfing um hreyfingu. Alls konar hreyfingu. Í stærsta æfingasal landsins. Úti.

Brynhildur Ólafs
Brynhildur Ólafs
Leiðsögukona og náttúrubarn sem elskar ekkert meira en gott bras á fjöllum!
Róbert Marshall
Róbert Marshall
Útiþjálfari sem er jafnvígur á gítar og saxafón.
Arna Torfadóttir
Arna Torfadóttir
Hlaupadrottning og járnkona sem er með keppnisskap fyrir allan hópinn.
Kjartan Salómons
Kjartan Salómons
Hlaupasjúkur fyrrum fótboltaþjálfari sem kallar ekki allt ömmu sína.
Kristín Lyngdal
Kristín Lyngdal
Útivistarkona sem kemst þangað sem hún ætlar sér með gleðina að vopni.
Bubba Snorradóttir
Bubba Snorradóttir
Yfirpeppari par exelance sem hefur einstakt lag á að gera hlutina skemmtilegri.
Helga Clara
Helga Clara
Keppniskona og húmoristi sem hættir ekki fyrr en hún er komin alla leið í mark.
Ragnheiður Stef
Ragnheiður Stef
Hlaupari, jógakennari og markþjálfi, sem brennur fyrir því að þér gangi vel!
Sirrý Ágústsdóttir
Sirrý Ágústsdóttir
Ástríðukokkur og útivistarunnandi af lífi og sál.
Ert þetta þú?
Ert þetta þú?Þjálfari eða leiðsögumaður
Langar þig til að slást í hópinn? Láttu okkur þá vita!