Jöklafarar. Áskorun

Jöklaáskorun Útihreyfingarinnar
Þriggja ára stórbrotið ferðalag

Jöklafarar er heitið á nýrri áskorun Útihreyfingarinnar þar sem þátttakendur ganga á ferðaskíðum þvert yfir sex stærstu jökla landsins, þ.e. Eyjafjallajökul, Drangajökul, Mýrdalsjökul, Hofsjökul, Langjökul og Vatnajökul.

Markmiðið er ekki að fara upp á hæsta tind hvers jökuls fyrir sig, þ.e. fram og til baka, heldur að skíða þvert yfir jöklana þannig að endað sé á öðrum stað en ferðin hófst.

Hægt er að klára áskorunina á eigin hraða, þ.e. á eins skömmum eða löngum tíma og hentar hverjum og einum. Hins vegar skipuleggur Útihreyfingin verkefnið og mælir með því að það sé klárað á alls þremur árum frá upphafi til enda, þannig að byrjað sé á æfingum á ferðaskíðum og minni jöklum áður en ráðist er í flóknari og lengri ferðir og jöklaútilegur.

Í hnotskurn

Þeir sem hafa enga reynslu og eru að byrja frá grunni, geta hafið vegferðina strax í janúar á næsta ári, 2025 með því að læra á ferðaskíði þ.e. utanbrautargönguskíði með stálköntum og æfa sig svo vikulega nágrenni Reykjavíkur með Úti ferðaskíðahópnum. Að auki þurfa óvanir að taka kvöldnámskeið þar sem kennd er línuhegðun á jökli og notkun á jöklabroddum og ísöxi.

Að vori verða svo þrír jöklar þveraðir: Drangajökull, Eyjafjallajökull og Langjökull. Þessa jökla er hægt að þvera hvern um sig á einum löngum skíðadegi og því þarf ekki að gista í tjaldi á jökli þetta fyrsta árið.

Annað árið hefst á námskeiðinu Ferðast á gönguskíðum þar sem þátttakendur læra öll trixin við að ferðast með púlku í eftirdragi og tjalda í snjó auk þess sem farið er í æfingaútilegu til að þjálfa handtökin. Að vori er síðan haldið í 3-4 daga ferðir á Hofsjökul annars vegar og Mýrdalsjökul hins vegar.

Síðasta árið er svo komið að konungi íslenskra jökla, sjálfum Vatnajökli. Það er ferðalag sem tekur heila viku og þarfnast góðs undirbúnings og æfinga. Ekki aðeins þurfa þátttakendur að vera í góðu líkamlegu formi og þekkja búnaðinn sinn vel, heldur er líka nauðsynlegt að undirbúa hausinn fyrir átökin og langa daga á jökli.

Að lokum fá þátttakendur viðurkenningarskjal og heiðursnafnbótina Jöklafari og eru þá komnir með fullan og óskoraðan rétt til að grobba sig á alla jöklakanta, jafnvel á alþjóðavettvangi 🙂

Síðasta tækifærið?

Markmið þessa verkefnis er þó ekki eingöngu að vera þátttakendum til skemmtunar og áskorunar. Með frásögnum af ferðunum í máli og myndum, viljum við líka vekja athygli almennings, heima og erlendis, á hraðri bráðnun jöklanna af völdum loftslagshlýnunar. Myndum leiðangursmanna verður m.a. safnað á sameiginlega myndasíðu á samfélagsmiðlum undir samheitinu #lastoftheglaciers eða síðustu jöklarnir.

Hópurinn reynir þannig að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo að okkar kynslóð verði ekki síðasta kynslóðin sem nýtur þess að ferðast á skíðum um jökla landsins.

Skráning

Athugið að hvorki er nauðsynlegt að klára áskorunina í ofangreindri röð né á þremur árum. Ef fólk er vant því að ferðast á skíðum þá er hægt að raða jöklaferðunum saman á hvern þann hátt sem hentar og jafnvel byrja á Vatnajökli! Að auki geta þeir sem þegar eru búnir að þvera einhverja jökla auðvitað líka verið með og bætt í safnið.

Til að taka þátt þarf aðeins að skrá sig til leiks með því að smella hér. Í kjölfarið verður þér boðið inn í sérstakan FB hóp allra þátttakanda og ævintýrið hefst.

Hér að neðan eru linkar inn á viðeigandi jöklaferðir og undirbúningsnámskeið auk ferða sem hægt er að nýta til að æfa skíðatæknina og handtökin.

JÖKLAFERÐIR 2025
Eyjafjallajökull. 29. mars
Drangajökull. 12.-14. apríl
Vatnajökull. 30. apríl – 7. maí
Langjökull. 14.-15. júní
Mýrdalsjökull. Á dagskrá 2026
Hofsjökull. Á dagskrá 2026

UNDIRBÚNINGSNÁMSKEIÐ 2025
Úti ferðaskíði. Námskeið og æfingahópur. Hefst 8. jan.
Vetrarfjallamennska. Grunnnámskeið. 24. feb og 3. mars
Ferðast á gönguskíðum. Námskeið og útilega. 13. jan. og 25.-26. jan.

ÆFINGAFERÐIR 2025
Norðurljósaganga á ferðaskíðum. Kvöldganga. 18. jan.
Þingvellir. Dagsferð. 8. feb.
Undir Tröllakirkju. Púlkuferðalag. 15.-16. feb.
Yfir Snæfellsnes. Dagsferð. 22. feb.
Tvídægra. Skíðað á milli skála. 28. feb-2. mars.
Ok. Dagsferð. 15. mars
Jötunheimar í Noregi. Skíðað á milli skála. 20.-25. mars

Title

Go to Top