Fjallabak. Gönguhelgi

48.000 kr.

Hekla, Krakatindur og Augað
19.-20. september

Dásemdar gönguhelgi að Fjallabaki. Farið verður í þrjár afar ólíkar göngur þar sem eldfjöll, hraun og hrjóstrugt landslag svæðisins fær að njóta sín til fulls. Haustið er sérstaklega fallegt á þessum slóðum: loftið tært, litirnir djúpir og kyrrðin meiri en yfir hásumarið.

Hópurinn sameinast í bíla og ekur af stað úr Reykjavík kl. 8 á laugardagsmorgun. Þennan dag er stefnan tekin á Heklu sem jafnan er kölluð drottning íslenskra eldfjalla og rís tæplega 1500 metra yfir sjávarmáli. Göngulengd dagsins fer að nokkru eftir því hversu langt verður hægt að aka og getur annað hvort verið um 10 eða 15 km og tekið 4-7 klst.

Um nóttina er gist í svefnpokagistingu í vel búnum fjallaskála og þar mun hópurinn grilla saman og njóta samverunnar með hefðbundinni kvöldvöku.

Eftir staðgóðan, sameiginlegan morgunmat á sunnudaginn verður haldið í tvær stuttar en ólíkar göngur. Byrjað er á því að aka eftir Dómadalsleið og ganga að Rauðufossum og svo áfram að Auganu sem er eitt dulmagnaðasta náttúrufyrirbæri landsins.

Seinnipart dagsins verður svo haldið á Krakatind sem er sérlega glæsilegur, formfagur og sjaldfarinn tindur. Það er stutt ganga á tindinn með örlitlu klöngri við toppinn sem þó ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Samtals eru göngur dagsins um 14 km.

Útsýni af Heklu er vægast sagt stórbrotið og fari svo að þoka umljúki fjallið á laugardaginn, munum við svissa göngudögunum og fara þann daginn sem betur viðrar.

Að auki er vert að taka það skýrt fram að Hekla er eitt virkasta eldfjall landsins og ganga á fjallið felur alltaf í sér ákveðna áhættu sem hver og einn göngugarpur verður að vega og meta með sjálfum sér.

Ferðin kostar 48 þúsund krónur og innifalið er leiðsögn og allt utanumhald, gisting í fjallaskála, grillmáltíð og morgunmatur. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan tölvupóst, m.a. með búnaðarlista og yfirferð yfir veðurspár í aðdraganda ferðar.