21.-22. október

EYJAFJÖLLIN ÞVERS OG KRUSS

Upplyftandi og nærandi tveggja daga útivistarhelgi þar sem fallegir og fáfarnir staðir utan alfaraleiða eru skoðaðir. Eðaldekur í gistingu, mat og drykk. Plús besti félagsskapurinn. Er hægt að biðja um meira?

DAGSKRÁ

Lagt af stað úr Reykjavík í rauðabítið laugardaginn 21. október og ekið í samfloti undir Eyjafjöll. Þar munum við byrja á því að ganga upp á sjálf Eyjafjöllin og hlaupa/ganga svo eftir endilöngum brúnum fjallanna allt að Seljalandsfossi. Þetta er sjaldséð og afar fallegt sjónarhorn á Eyjafjöll og fáir sem þarna fara um, aðrir en bændur í smölun. Þeir sem fara hraðast fá það hlutverk að ná í bílana sem voru skildir eftir á upphafsstað. Um 12 km og ca. 300 m hækkun.

Þegar allir eru komnir af fjalli verður farið í þrjár til fjórar stuttar en skríkjandi skemmtilegar giljagöngur áður en hópurinn pakkar sér aftur inn í bíla og ekur stuttan spöl á gististaðinn þar sem fordrykkur og gúmmulaði, heitur pottur og gufa bíður ferðalanga. Um leið og allir eru sjænaðir og fínir verður borinn fram dýrindis kvöldmatur og svo tekur gleðin völd 🙂

Daginn eftir þegar allir eru búnir að gæða sér á ríflegum morgunmat og pakka sér saman verður haldið í landkönnunarferð innst inn í Fljótshlíðina þar sem deginum verður varið í að skoða alls konar fjallaskepnur svo sem Einhyrning, Hest, Meri og Hrútkoll!

Við byrjum á því að ganga hægt og rólega upp á hið sérstaka móbergsfjall Einhyrning sem lítur frekar óárennilega út en er tiltölulega auð- og fljótgengið. Þegar komið er aftur niður, verður rölt niður eftir alveg dásamlega fallegu og stórbrotnu gili sem liggur undir Tindfjöllunum og fáir þekkja. Um 10 km og ca. 300 m hækkun.

 

VERÐ og SKRÁNING

Ferðin kostar 54 þúsund krónur og innifalið í verðinu er gisting í eina nótt í tveggja manna herbergi, fordrykkur, dýrindis kvöldmáltíð, ríflegur morgunmatur, leiðsögn og utanumhald.
Þið skráið ykkur einfaldlega með því að smella á viðeigandi greiðslulink hér að neðan.

Greiða fyrir einn, smella hér: Alls 54 þúsund
Greiða fyrir tvo, smella hér: Alls 108 þúsund

 

Nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum þegar nær dregur, m.a. pökkunarlisti, listi yfir ferðafélagana, röðun í herbergi, samflot í bíla etc.