Útinaglinn 2027. Kynning. Opin ganga á Meðalfell og súpufundur

0 kr.

Opin ganga á Meðalfell í Kjós sunnudaginn 29. nóvember 2026 og súpufundur á Eyri Farm á eftir, þar sem Útinaglinn 2027 er kynntur.

Útihreyfingin býður öllum að slást í hópinn á Meðalfell. Við hittumst kl. 10 við austurenda Meðalfells (sjá hér á korti) og göngum saman í rólegheitum yfir fjallið endilangt. Gangan endar um kl. 12:30.

Eftir göngu ökum við í 5 mínútur yfir á Eyri Farm í Kjós, þar sem Útinaglinn 2027 verður kynntur. Fjórar útivistarþrautir: ferðaskíði, fjallganga, fjallahjól og klifur. Matarmikil súpa og brauð til sölu á staðnum.

Þau sem það vilja geta mætt kl. 12:30–13:00 beint á súpufundinn á Eyri Farm (sjá hér á korti).

Skráning er nauðsynleg, svo við vitum hversu mörgum við eigum von á í súpu. Veldu hér að neðan hvort þú kemur í gönguna og á súpufundinn eða bara á súpufundinn. Skráningu lýkur fyrir hádegi föstudaginn 27. nóvember.