Arnarstapi-Hellnar. Kajak

54.000 kr.

Líklega fallegasta kajakleið í heimi!
11. júlí

Dagsferð á kajak þar sem siglt er á milli Arnarstapa og Hellna á Snæfellsnesi, fram og til baka, með útúrdúr að Sölvahamri.

Gönguleiðin á milli þessara staða er frábær en jafnast samt ekkert á við þau ótrúlegu undur sem blasa við þegar siglt er meðfram ströndinni. Við ætlum bara að halda því blákalt fram að þetta hljóti að vera einhver fallegasta kajakleið í heiminum!

Hér er að finna alls konar hraun- og bergmyndanir, óteljandi hella, boga, göng og göt, stórkostlegt stuðlaberg í allar áttir, fullt af fossum og hreinlega endalaust fuglalíf í miklu návígi; skarfa, langvíur, álkur, teistur, lunda og allar tegundir af máfum. Yfir öllu gnæfir svo þríhyrningslaga Stapafellið og Snæfellsjökull hangir í bakgrunni sem punkturinn yfir i-ið.

Það þarf að vera sérlega lyngt og gott veður til að hægt sé að fara þessa leið á kajak. Við stefnum á laugardaginn 11. júlí en höfum sunnudaginn 12. júlí til vara og jafnvel föstudaginn 10. júlí.

Athugið að kajaknámskeið og/eða fyrri kajakreynsla er alger forkrafa inn í ferðina. Við bendum á undirbúningsnámskeið Útihreyfingarinnar. Skráðir þátttakendur fá ítarlegan upplýsinga- og pökkunarpóst í aðdraganda ferðarinnar.

Ferðin kostar 54 þúsund kr. og innifalið í verðinu er leiðsögn og allt utanumhald, leiga og flutningur á kajak, ár, toppi, svuntu og björgunarvesti. Sérhæfðir kajakleiðsögumenn fylgja hópnum alla leið.