Indónesía. Köfun og jóga
Price range: 100.000 kr. through 544.000 kr.
AÐEINS 4 LAUS PLÁSS
Dekurævintýri á Bali og Flores
7.-20. nóvember
Ný fjórtán daga ævintýraferð til indónesíska eyjaklasans þar sem ótrúleg náttúrufegurð og iðandi dýralíf blandast framandi og litríkri menningu. Hér ætlum við að sleppa tökum og slaka á, sigla á milli eyja inni í þjóðgarði, læra að kafa, stunda jóga og njóta.
Ferðinni er annars vegar heitið til eyjarinnar Flores og nálægra smáeyja og hins vegar til Bali. Þetta eru tveir afar ólíkir heimar, ekki síst vegna þess að Flores er enn að miklu leyti ósnortin af túrisma á meðan Bali hefur verið áfangastaður ferðamanna í áratugi.
Hópurinn flýgur á eigin vegum til Bali í upphafi ferðar og gistir saman á flugvallarhóteli í Denpasar fyrstu nóttina (7. nóvember) áður en flogið er yfir til eyjunnar Flores daginn eftir. Þar hefst ferðin í litlum en líflegum strandbæ við flóa sem er fullur af bátum af öllum stærðum og gerðum. Hópurinn tekur því rólega fyrstu dagana á meðan verið er að lenda í nýju umhverfi og jafna sig á löngu flugi.
Hér er andrúmsloftið hrátt og menningin ólík því sem við eigum að venjast. Ákall til bæna heyrist úr moskunum á ýmsum tímum sólarhringsins og lífið á götum úti fer fram í hávaða, hlátri, óhreinindum og miklum hita. Við kynnumst þessu ómótstæðilega bæjarlífi en höldum líka inn í land og upp í frjósamar hæðirnar þar sem við lærum að þekkja í sundur jurtir og elda hefðbundinn florískan mat.
Eftir þrjár nætur, flytur hópurinn sig um borð í seglbát og lærir að kafa á meðan siglt er á milli eyja og sandskerja í Komodo þjóðgarðinum. Þátttakendur geta valið um yfirborðsköfun (snorkl) í tærum sjónum eða grunnnámskeið í djúpsjávarköfun niður á allt að 18 metra dýpi. Þau sem þegar eru með köfunarréttindi geta tekið upprifjunarnámskeið og/eða bætt við sig framhaldsréttindum.
Athugið að köfunarnámskeiðin eru skipulögð og haldin af afar traustu belgísku fjölskyldufyrirtæki sem setur öryggið ofar öllu og hefur rekið köfunarþjónustu og haldið köfunarnámskeið í Flores í 12 ár við góðan orðstír. Við útskrift fá þátttakendur alþjóðleg PADI köfunarréttindi og PADI skírteini.
Á milli þess sem hópurinn kafar og skoðar fjölbreytt neðansjávarlífið, m.a. risaskötur og skjaldbökur, þá er legið í leti á dekki, synt í heitum og tærum sjónum eða skotist í land til að ganga um, skoða leðurblökur í þúsundavís og hina gríðarstóru og ófrýnilegu Komododreka sem eru stærstu eðlur jarðarinnar. Hér bókstaflega hægist á lífinu og nýr og rólegri taktur tekur yfir.
Eftir fjögurra daga siglingu er farið í land á lítilli og nánast mannlausri eyju, þar sem hópurinn gistir í litlum en vel útbúnum tveggja manna strandkofum við litríkt kóralrif. Ef hvít sandströnd og vaggandi hengirúm er ekki nóg til að fá alla inn í núvitundarástand þá eru alls konar dekurmeðferðir, jóga og nudd einnig í boði! Svo má líka alltaf skreppa út á kajak eða siglingabretti, snorkla eða kafa meira.
Við kveðjum þessa Róbinson Krúsó paradís eftir þrjár nætur, fljúgum yfir til eyjunnar Bali og dveljum síðustu dagana í bænum Ubud, þar sem öll skilningarvitin hrökkva í gang eftir undangengin rólegheit. Ubud er menningarmiðstöð eyjunnar. Hér eru musteri með blómaskreytingum og reykelsisilmi við hvert fótmál, mannmergð og gríðarleg umferð en líka jóga, innhverf íhugun og nudd í öðru hverju húsi. Og maturinn er hreint út sagt stórkostlegur!
Við gistum hér í þrjár nætur á frábærlega staðsettu fimm stjörnu og margverðlaunuðu hóteli. Dagarnir hefjast á sameiginlegri jógastund á meðan sólin rís yfir trjátoppunum en svo gerir hver og einn það sem hugurinn girnist. Hægt er að rölta á milli mustera, versla, ganga um hrísgrjónaakrana, fara í nudd, skoða apa, prufa alls konar mismunandi jógatíma eða bara hanga í hótelsundlauginni 😉
Verð 544 þúsund kr.
Innifalið: Allar ferðir, flug og akstur innan Indónesíu, gisting í 13 nætur með morgunmat, allar máltíðir um borð í seglbátnum, PADI köfunarnámskeið og réttindi, allur tilheyrandi köfunarbúnaður og námsgögn, rafrænt bóklegt köfunarnámskeið í aðdraganda ferðar, matreiðslunámskeið, jógatímar, aðgangseyrir í Komodo þjóðgarðinn, leiðsögn og allt utanumhald. Aukagjald er tekið fyrir einkakáetu í seglbátnum þær þrjár nætur sem þar er gist. Alls 15 þúsund fyrir hefðbundna káetu fyrir tvo (2,5 þús. pr. nótt pr. mann) eða 27 þúsund fyrir lúxus káetu fyrir tvo (4,5 þús. pr. nótt pr. mann.
Ekki innifalið: Flug til og frá Indónesíu, þjórfé, einstaklingsbundnar ferðatryggingar og annað sem ekki er upp talið hér að ofan.
100,000 kr. staðfestingargjald er greitt við pöntun og eftirstöðvar í síðasta lagi átta vikum fyrir ferð.










