Fjallastígar Mallorca. Gönguferð

Price range: 80.000 kr. through 348.000 kr.

Upplifunarveisla fyrir sál og líkama
19.-27. apríl

Í þessari ferð þarf oft að stoppa. Anda inn. Anda út. Og andvarpa svo af ánægju yfir lífsins lystisemdum.

Gengið er á aldagömlum steinlögðum stígum um Tramuntana fjöllin á spænsku eyjunni Mallorca. Á milli friðsælla strand- og fjallaþorpa, um ilmandi appelsínu- og sítrónulundi, gil og klettaborgir, blágræn fjallavötn og litlar sandvíkur.

Fjölbreytt dýralíf, marglitt blómskrúð og ævaforn, kræklótt ólífutré gleðja augað við hvert fótmál. Svo ekki sé talað um matinn! Ferskur fiskur, ferskur appelsínusafi, sælkeratómatar, ólífur fyrir alla bragðlauka, brakandi súrdeigsbrauð, bragðsterkar harðpulsur og ótrúlegir eftirréttir úr möndlum og hunangi sem hvoru tveggja eru þekktar landbúnaðarafurðir frá eyjunni.

Þetta er hlið á Mallorca sem fæstir kynnast og er í órafjarlægð og hrópandi andstöðu við háværa strandbari og yfirfullar sólarstrendur sem er ímynd flestra af þessari fallegu Miðjarðarhafseyju.

Ferðin tekur alls níu daga en fyrsti og síðasti dagurinn eru ferðadagar. Gengið er í sex daga og dagleiðirnar eru frekar þægilegar og engin lengri en 15 km. Einn hvíldardagur er í lok ferðar í dásemdar afslöppun og dekri í gríðarfallegum strandbæ. Gist er í fimm nætur á hótelum og gistiheimilum, tvær nætur í fjallaskálum og eina nótt á lúxushóteli. Athugið að þar sem ekki er hægt að trússa farangur í fjallaskálana, þá þurfa þátttakendur að ganga með bakpoka með fötum til skiptanna þá daga. Annars verður farangur fluttur á milli næturstaða.

Ferðin hefst í Barcelona seinnpart sunnudaginn 19. apríl, þaðan sem hópurinn flýgur saman til Mallorca. Frá flugvellinum er ferðast í smárútu upp í Tramuntana fjöllin og fyrstu nóttina er gist í sögufrægu og afar fallegu fjallaþorpi, þar sem tími gefst til að skoða sig aðeins um og snæða góðan kvöldverð.

Daginn eftir er gengið yfir Tramuntana fjallgarðinn og byrjað á því að ganga upp á ríflega 900 metra hátt fjall þar sem stórkostlegt útsýni opnast yfir stóran hluta Mallorca. Svo er fetað hægt og rólega niður bratt gil og niður í annað ekki síður fallegt fjallaþorp þar sem gist er um nóttina. 12 km. 700 m hækkun.

Á þriðja degi er byrjað á því að ganga niður að sjó til að taka smá dýfu, áður en haldið verður eftir stíg sem liggur eftir norðurströnd eyjunnar með útsýni yfir blágrænt hafið og friðsæla aldinlundi. Næstu tvær nætur er gist í litlum strandbæ þar sem hægt er að busla í sjónum og gæða sér á nýveiddu fiskmeti. 13 km. 500 m hækkun.

Á fjórða degi er gengið um vínekrur og á fremur fáförnum stíg meðfram sjávarsíðunni að dásamlegum hálfföldum ströndum, þar sem hægt er að fara í sjóinn eða bara taka því rólega. Hópurinn siglir til baka með báti en það er ekki síður upplifun að sjá klettótta strandlengjuna frá hafi. Gist er á sama hóteli og nóttina áður. 10 km. 350 m hækkun.

Fimmti dagurinn hefst á menningarlegu ferðalagi með opnum sporvagni inn í næsta þorp þar sem kíkt verður á lítil söfn með verkum Picasso og Miró, rölt á milli búða og bragðað á dæmigerðum réttum eyjunnar. Um hádegisbil nær smárúta í hópinn og skutlar honum að stíg sem liggur upp á snarbratta en hreint ótrúlega fallega klettaborg sem hýsir gamla kapellu og lítinn kastala sem búið er að breyta í fjallaskála. Útsýnið er óviðjafnanlegt og næturstaðurinn svo einstakur að honum verður vart lýst með orðum. Þetta er einfaldlega eitthvað sem fólk verður að upplifa á eigin skinni! 6 km. 600 m hækkun.

Á sjötta degi er haldið niður af klettaborginni og rölt upp í annan fjallaskála sem er umvafinn aldingarði með kvakandi froskum! Þetta er léttur dagur og nægur tími til að slaka á og skoða umhverfið. 14 km. 400 m hækkun.

Fimmti dagurinn er lengsti göngudagurinn en stærsti hluti leiðarinnar liggur niður í móti. Gengið er um gil, í gegnum nokkur lítil jarðgöng allt þar til komið er að gríðarstóru uppistöðulóni. Skömmu síðar hefst niðurgangan, á ævafornum steinlögðum götum niður þverbratt en geysifagurt gil, um falleg fjallaþorp og á stórskemmtilegt lítið gistiheimili. Um kvöldið verður farið á einhvern besta veitingastað Mallorca, sem sérhæfir sig í óvenjulegum og hreint ótrúlega bragðgóðum smáréttum. 15 km. 600 m hækkun og 1200 m lækkun.

Næstsíðasti dagurinn er dekurdagur og hefst á um klukkustundar löngu rútuferðalagi beint á lúxushótel við draumfagra strönd. Hér er hægt að láta gönguþreytuna líða úr sér í leti, synda í sjónum eða liggja marflöt undir sólhlíf. Hópurinn snæðir svo saman síðustu kvöldmáltíðina og nóg er úrvalið.

Snemma síðasta daginn ferðast hópurinn með rútu á flugvöllinn í Mallorca og flýgur til Barcelona þar sem ferð lýkur í tæka tíð til að hægt sé að ná flugi seinnipart dags heim til Íslands eða hvert á land sem er.

Leiðsögumenn ferðarinnar eru Brynhildur Ólafsdóttir og matgæðingurinn Sirrý Ágústsdóttir, sem mun hafa yfirumsjón með matarupplifun hópsins.

Innifalið í ferðinni, sem kostar 348 þúsund er flug frá Barcelona til Mallorca og til baka, gisting í átta nætur, allur morgunmatur og tvær kvöldmáltíðir, flutningur á farangri og allar ferðir með smárútum, báti, sporvagni etc. innan Mallorca, undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald.

Athugið að flug til og frá Barcelona er ekki innifalið en ferðin er skipulögð þannig að þátttakendur geta flogið frá Íslandi til Barcelona, á upphafsdegi ferðarinnar, þ.e. snemma sunnudaginn 19. apríl og heim frá Barcelona, sama dag og ferð líkur, þ.e. mánudaginn 27. apríl.

Lágmarksþátttaka miðar við 10 manns. Sökum þess að ekki er hægt að tryggja gistingu í fjallaskálunum nema með því að bóka hana nokkra mánuði fram í tímann, þá er nauðsynlegt að áhugasamir greiði staðfestingargjald ferðarinnar sem fyrst. Eftirstöðvar eru síðan greiddar í síðasta lagi sex vikum fyrir ferð.