Útigengið
Fyrir öll sem elska fjöll!
Hægt er að kaupa sig inn í stakar göngur
Útigengið er fyrir fólk sem finnst gaman að vera úti í náttúrunni og vilja nýta hana til líkamsræktar, kynnast nýjum stöðum og bæta við færni sína á fjöllum.
Vordagskráin er fjölbreytt og áhersla er á að ganga sig upp í getu til að geta glímt við meira krefjandi göngur, ásamt því að æfa sig í vetrarferðamennsku og því að nota brodda og ísöxi. Við bendum fólki sem er að byrja að ganga á fjöll að vetri til, á örstutt byrjendanámskeið í vetrarfjallamennsku.
Útigengið heldur til fjalla á sunnudögum, að meðaltali aðra hvora helgi frá janúar til maí. Fyrstu göngurnar taka 3-4 klst. en þegar líður á og göngurnar verða meira krefjandi, þá verða þær líka lengri og sumar taka allan daginn, að akstri til og frá meðtöldum.
Hópurinn hefur hafið göngur sínar en hægt er að kaupa sig inn í stakar göngur með því að smella á linkana hér að neðan. Styttri göngurnar kosta 8.900 kr. (Þyrill, Kálfatindar, Vikrafell og Hvalfell) en þær lengri 14.900 kr. (Mýrarhyrna, Skessuhorn, Hrútaborg og Blikdalshringurinn).
Vordagskrá Útigengisins
- 17. jan. Bjarnarfell við Geysi
- 31. jan. Þyrill í Hvalfirði
- 15. feb. Kálfatindar upp af Lyngdalsheiði
- 1. mar. Vikrafell ofan við Hreðavatn
- 15. mar. Mýrarhyrna á Snæfellsnesi
- 29. mar. Skessuhorn í Borgarfirði
- 19. apr. Hvalfell í Hvalfirði
- 3. maí. Hrútaborg á Mýrunum
- 17. maí. Blikdalshringurinn í Esju
Athugið að ef veður hamlar för á sunnudegi, getur verið að göngu verði flýtt til laugardags.
Hópurinn hefur samskipti sín á milli og sameinast í bíla inni á sérstakri Facebook síðu og skráðir þátttakendur í stakar göngur fá upplýsingapóst í aðdraganda hverrar göngu.
Umsjónarmenn Útigengisins eru Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall, ásamt öðru leiðsögufólki Útihreyfingarinnar.









