Noregur. Drekaskíðanámskeið
Tveggja daga hraðnámskeið
Sendu okkur póst á utihreyfingin@utihreyfingin.is ef þú hefur áhuga á þessari eða svipaðri ferð fyrir þig og þinn hóp.
Lærðu að skíða með dreka og náðu tökum á því að ferðast langar vegalengdir með lítilli fyrirhöfn á þessu tveggja daga, þétt pakkaða námskeiði.
Kennslan fer fram á Harðangursvíðernum Noregs en þar gefast einhverjar bestu mögulegu aðstæður til að læra á þennan magnaða ferðamáta. Stærð svæðisins gerir það að verkum að hægt er að finna góðar aðstæður í öllum vindáttum og flestum veðrum. Þetta er Mekka íþróttarinnar og hingað sækir drekaskíðafólk víðs vegar að.
Kennt er á glænýja dreka með nýjasta öryggisbúnaði sem völ er á. Margar stærðir á drekum standa til boða, allt eftir vindstyrk og getu og stærð þátttakanda.
Námskeiðið stendur í allt að sex klukkustundir hvorn dag. Kennararnir á námskeiðinu eru með reynslumestu kennurum Noregs í þessari íþrótt og hafa stundað drekaflug bæði á sjó og snjó í áraraðir, sumir í áratugi.
Ferðin hefst í Osló og þaðan er ekið saman í smárútu til skíðabæjarins Geilo þar sem gist er næstu tvær nætur. Ef Downtown Abbey hefði verið kvikmyndað í Noregi þá hefði hótelið sem hópurinn gistir á, verið hinn fullkomni tökustaður þáttanna! Þetta er glæsilegt, lúxus sveitahótel þar sem dekrað er við gesti í mat og drykk sem og öllum aðbúnaði.
Ferðinni lýkur formlega með keyrslu til Osló.
Þátttakendur koma með sinn eigin skíðabúnað og þurfa að hafa góða grunnþekkingu á skíðum eða snjóbretti.
Innifalið Kennsla á skíðadreka og leiga á drekum fyrir námskeiðið. Tveggja nátta gisting á lúxus sveitahóteli með tveimur kvöld- og morgunverðum. Flutningur á fólki og farangri innan Noregs. Undirbúningsfundur, leiðsögn og utanumhald.
Athugið að hægt er að lengja ferðina með því að tengja hana við gönguskíðaferð á milli fjallaskála í tveimur norskum þjóðgörðum. Þá er gengið á ferðaskíðum í fjóra daga áður en Drekaskíðanámskeiðið hefst.

