Hálfvættir

Þjálfun og undirbúningur til að ljúka hálfum vegalengdum Landvættaáskorunarinnar. Þetta er heppilegur næsti áfangi fyrir þá sem hafa lokið Úti 101 námskeiðinu.

Þjálfunin byggir á æfingagrunni Útihreyfingarinnar en verður því sérhæfðari þegar nær dregur keppnunum með sértækri æfingaáætlun og þjálfun.

Vörðurnar á leiðinni eru fjórar.

  • Fossavatnsgangan
    25 km skíðaganga

  • Bláalónsþrautin
    30 km hjólreiðar

  • Þorvaldsdalsskokkið
    16 km fjallahlaup

  • Urriðavatnssundið
    1250 m vatnasund

Innifalið í Landvættanámskeiði Útihreyfingarinnar er 8 mánaða æfingaáætlun með þremur sameiginlegum æfingum á viku. Þátttakendur fara í gegnum upphafsviðtal um stöðu og markmið og fá góða eftirfylgni allt tímabilið. Í gegnum allt námskeiðið er mikil kennsla og fræðsla, m.a. um tækni, búnað, keppnisundirbúning og keppnisnæringu. Þá fá þátttakendur stuðning og fylgni í gegnum keppnirnar sjálfar.

Margir þjálfarar með sérhæfða þekkingu og reynslu í hverri grein fyrir sig, koma að námskeiðinu. Landvættaþjálfarar Útihreyfingarinnar eru allir með margfalda Landvættatitla og hafa þjálfað vel yfir 50% af öllum þeim sem klárað hafa Landvættaþrautirnar frá upphafi.

Námskeiðið kostar 161.100 kr. eða 20.200 kr. á mánuði í 8 mánuði. Ef keypt er 12 mánaða áskrift af Útihreyfingunni er veittur afsláttur af námskeiðsgjaldinu. Þá kostar námskeiðið 192.800 eða 16.100 á mánuði.

Landvættanámskeiðið hefst með upphafsfundi mánudaginn 21. nóvember og fyrsta æfingin er daginn eftir.

  • Verð 47.500

  • Persónuleg ráðgjöf

  • Regluleg endurgjöf

  • Skráning í Útihreyfinguna skilyrði

Skráning. Hálfvættir með 8 mánaða Útihreyfingu – 161.100
Skráning. Hálfvættir með 12 mánaða Útihreyfingu – 192.800 kr.