Kerlingarfjöll Fjallaskíðanámskeið I
88.000 kr. – 116.000 kr.
Fyrir byrjendur og lengra komna
3.-5. nóvember
Þriggja daga stórskemmtilegt fjallaskíðanámskeið í Kerlingarfjöllum, vöggu íslenskrar skíðamenningar. Hér hafa Íslendingar lært að skíða í árafjöld og hvergi er betra að æfa sig í skíðalistinni. Í Kerlingarfjöllum má finna brekkur við allra hæfi, allt frá þægilegum aflíðandi byrjendabrekkum yfir í snarbrattar jökulhlíðar. Að auki er frábært að ferðast vítt og breitt um þessa fallegustu útsýnistinda landsins með fjallaskíðin á fótunum og koma niður á allt öðrum stað en upp var farið.
Þátttakendum er skipt upp í getuhópa og á meðan sumir eru að læra að nota fjallaskíði í fyrsta sinn, þá eru aðrir komnir lengra og fá tækifæri til að fínpússa tæknina, fara hærra, lengra og hraðar. Byrjendur fá kennslu í grunnatriðum fjallaskíðamennsku; hækkanir með skinnum og broddum, undirbúning skíðaferða og leiðarval ásamt kennslu í skíðatækni utan brauta. Að auki verður farið yfir meginatriði í snjóflóðamati og notkun snjóflóðaýla. Það er góð regla að rifja árlega upp tæknina við snjóflóðaleit og björgun og sett verður upp æfingaleit í því skyni.
Allir þátttakendur fá persónulegar ábendingar og leiðsögn þrautreyndra skíðakennara og myndbandsupptökur eru notaðar til að fínstilla tæknina hjá hverjum og einum.
Miðað er við að þátttakendur komi á eigin fjallabílum í Kerlingarfjöll og lagt er af stað í samfloti um hádegisbil á föstudegi. Ef Kjalvegur er ófær, þá mun Útihreyfingin hafa milligöngu um flutning á þátttakendum í fjallarútu. Áætluð heimkoma aftur til Reykjavíkur er síðla dags á sunnudag.
Gist er í tvær nætur á nýju og glæsilegu fjallahóteli í Kerlingarfjöllum, Highland Base með morgunmat og kvöldmat. Þar er líka frábær aðstaða til að halda hefðbundna Kerlingarfjallakvöldvöku með gítarspili við arineld.
Námskeiðið kostar 88.000 kr. fyrir meðlimi Útihreyfingarinnar en annars 116.000 kr. Athugið að hægt er að greiða námskeiðið í einu lagi eða skipta greiðslum eins og hver og einn kýs inni í greiðsluferlinu sjálfu. Verð miðar við tveggja manna herbergi en hægt er að panta einstaklingsherbergi gegn hærra gjaldi. Sendið fyrirspurn á utihreyfingin@utihreyfingin.is.
Innifalið: Gisting í tvær nætur á hótelherbergi með sérbaðherbergi, tveir morgunverðir og tveir kvöldverðir, dagsnesti og fordrykkur. Skíðakennsla, leiðsögn og utanumhald.
Athugið að þessi ferð er líka á dagskrá helgi seinna eða 10.-12. nóvember.